Leit
Senda inn fyrirspurn
Ef þú finnur ekki þær upplýsingar sem þú leitar að hér á ruv.is/hjalp þá getur þú sent inn fyrirspurn með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Spurt og svarað
Eru sérstakar flýtileiðir fyrir blinda á nýja vefnum?
Nokkur atriði varðandi aðgengi blindra að vefnum, beinni útsendingu útvarps og sjónvarps á vef og fleira:
Á RÚV.is eru þessar flýtileiðir til staðar, þær sömu og vöru á gamla vefnum, en þarna fer spilari sjálfkrafa beint af stað:
Sjónvarpið í beinni, www.ruv.is/ruv/beint
RÚV2 í beinni, www.ruv.is/ruv-ithrottir/beint
Rás 1 í beinni, www.ruv.is/ras-1/beint
Rás 2 í beinni, www.ruv.is/ras-2/beint
Rondo, www.ruv.is/rondo/beint
Dagskrá RÚV, RÚV2, Rás1 og Rás2 er hægt að nálgast með því að notast við aðgangslykilinn (accesskey) „d" sem vísar notendum í felliglugga (combobox) sem gerir notendum kleift að fara í gegnum dagskránna hjá okkur 14 daga aftur í tímann og 14 daga fram í tímann.
Einnig er hægt að nota aðganslykilinn „f” til að fara í valmynd fyrir þá fréttaflokka sem við erum með í boði. Þaðan er hægt að fara í yfirgripsmikinn fréttalista fyrir hvern flokk.
Í annað stað eru flýtileiðir á lyklaborði til að hefja og stöðva streymi. Þessir flýtilyklar eru sérstaklega hugsaðir til að auðvelda notkun spilara fyrir beint streymi útvarps og sjónvarps og upptökuafspilun í spilara.
Til að byrja og stöða spilun bæði í beinu streymi og í spilara er ýtt á ALT og 6.
Til að hækka hljóðstyrk er ýtt á ALT og 7 og til að lækka er ýtt á ALT og 5.
Til að spóla til baka í upptökum í spilara er ýtt á ALT og 4 og til að fara áfram er ýtt á ALT og 8.
Loks er vefþulan sett upp til að gagnast þeim sem ekki geta sjálfir lesið texta.
Birt : 05.03.2015 - 09:34