Velferð eldri borgara - fræðslufundur
Fræðslufundur á vegum Öldrunarráðs Íslands og Landssambands eldri borgara. Hverjar eru áskoranir eldri borgara og hvernig er hægt að eiga innihaldsríkt líf alla ævi? Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flytur opnunarávarp. Fundarstjóri er Jórunn Frímannsdóttir, formaður Öldrunarráðs Íslands.