Um Atlantsála
Atlantic Crossing
Leiknir þættir um norsku krónprinsessuna Mörthu og áhrif hennar á heimsmálin á tíma seinni heimsstyrjaldarinnar. Árið er 1940 og Noregur er á valdi Þýskalands nasista. Martha krónprinsessa og fimm börn hennar gerast pólitískir flóttamenn í Hvíta húsinu. Vera hennar í Washington lætur Roosevelt forseta Bandaríkjanna ekki ósnortinn og færir hörmungarnar í Evrópu nær honum. Þættirnir byggjast á sönnum atburðum og segja frá hörmungum stríðsins. Meðal aðalleikara eru Sofia Helin og Kyle MacLachlan. Leikstjóri: Alexander Eik. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.