The Courier
Milligöngumaðurinn
Spennumynd frá 2020 byggð á atburðum í Kúbudeilunni haustið 1962. Hátt settur sovéskur leyniþjónustumaður setur sig í samband við CIA í von um að draga úr spennunni milli stórveldanna. Bandaríska leyniþjónustan fær breskan kaupsýslumann til að vera milligöngumaður. Veldur hann verkefninu þegar heimurinn er undir? Leikstjóri: Dominic Cooke. Aðalhlutverk: Benedict Cumberbatch, Merab Nindze og Rachel Brosnahan. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.