Stundin okkar

Þessi með Jóla-Frímó, Jóla-Matargati og jólalaginu

Í þessum þætti taka Linda og Tinna á móti keppendum í Jóla-Frímó, þar sem keppt er í sértaklega jólalegum þrautum. Ylfa og Máni búa til jólalegan eftirrétt og mæðgurnar Sigga Eyrún og Lára Björk syngja jólalagið Jólaljósin skær. Krakkarnir í Stundin rokkar flytja síðan frumsamda lagið sitt í bílskúrnum.

Frumsýnt

13. des. 2020

Aðgengilegt til

31. des. 2025
Stundin okkar

Stundin okkar

Krakkar stýra fjölbreyttum smáseríum í Stundinni okkar í vetur - sem fjalla um ALLT milli himins og jarðar.

Leikin spennusería, fjörug þrauta- og spurningakeppni, girnileg matargerð, glymjandi rokktónlist og friðsamlegt jóga eru meðal þess sem verður á dagskrá í þessum elsta sjónvarpsþætti landsins.

Aðalþáttastjórnendur eru Helena Lapas, Imani Ósk Biallo, Kári Hlíðberg og Tómas Aris Dimitropoulos. Fjöldi annarra krakka kemur fram í þáttunum.

Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir og Ragnar Eyþórsson.

Þættir

,