Í þættinum fáum við að kynnast þeim keppendum sem keppa í seinni undanúrslitum Söngvakeppninnar í ár, við breytum til í Kveikt á perunni, enginn Hljóðkútur og engin Hermikráka heldur kynnum við inn liðinn Stuðningslið spreytir sig, þar sem krakkar úr klappliðunum reyna að næla sér í stig með því að leysa fyndnar örþrautir.
Við fáum að sjá fyrstu stuttmyndina sem við framleiddum úr innsendum handritum inn í Sögur. Myndin heitir Töfraálfurinn og handritið skrifaði Fura Liv Víglundsdóttir. Við skyggnumst bak við tjöldin við gerð á stuttmyndinni Undarlegi dagurinn eftir Ylfu og Dísu en þá mynd sjáum við svo í næsta þætti.
Þátttakendur:
Ísabella Þóra Haraldsdóttir
Kristín Lea Þráinsdóttir
Valgerður Birna Magnúsdóttir
Katrín Leifsdóttir
Orri Eliasen
Aron Hannes
Áttan: Sonja Valdín og Egill Ploder
Dagur Sigurðsson
Stefanía Svavarsdóttir, Agnes Marinósdóttir og Regína Lilja Magnúsdóttir
Rakel Pálsdóttir
Ylfa Ásgerður Eyjólfsdóttir og Hafdís Svava Ragnheiðardóttir
Salka Sól Eyfeld
Júlía Guðrún Lovísa Henje
Bjarki Kjærnested
Kolviður Gísli Helgason
Ragnheiður Sigurðurdóttir Bjarnarsson