Paradís
Paradise II
Önnur þáttaröðin þar sem finnska lögreglukonan Hilkka Mäntymäki fæst við morðrannsóknir innan finnska samfélagsins á Costa del Sol á Spáni. Maður finnst myrtur og reynist vera með húðflúr með merki íshokkíliðs frá Oulu í Finnlandi. Hilkka er fengin til að rannsaka málið sem teygir anga sína víða. Aðalhlutverk: Riitta Havukainen, Fran Perea og María Romero. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.