Leigjendur óskast
Stath Lets Flats II
Önnur þáttaröð þessara bresku gamanþátta um grísk-kýpverska leigumiðlarann Stath sem vinnur fyrir fjölskyldufyrirtækið Michael and Eagle. Hann er ekki góður leigumiðlari en reynir að gera föður sínum til hæfis. Þættirnir eru eftir grínistann Jamie Demetriou sem einnig leikur aðalhlutverkið. Þeir hafa hlotið þrenn BAFTA-verðlaun.