Kæfandi ást
Smother
Írsk spennuþáttaröð frá 2021. Val Alhern býr með fjölskyldu sinni í smábæ á Írlandi. Eiginmaður hennar finnst látinn í fjöru við klettarætur morguninn eftir fjölskylduboð og þegar Val fer að grennslast fyrir um dánarorsökina koma gömul og grafin fjölskylduleyndarmál í ljós. Aðalhlutverk: Dervla Kirwan, Gemma-Leah Devereux og Nimah Walsh. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.