Horfna rafherbergið
Det forsvundne ravkammer
Dönsk leikin þáttaröð fyrir alla fjölskylduna um hinn 12 ára Níels og vini hans sem komast að áformum um að loka skólanum þeirra vegna tilkomu nýrrar hraðbrautar. Þau eru staðráðin í að bjarga skólanum og leita til landeiganda á svæðinu í von um aðstoð. Þar komast þau á snoðir um falinn fjársjóð í neðanjarðarbyrgi frá seinni heimsstyrjöld sem leynist undir lóð landeigandans. Leikstjóri: Søren Balle. Meðal leikenda eru Bertil Karlshøj Smith, Marinus Refnov, Cecilia Loffredo, Safina Coster-Waldau, Tobias Burø og Ella Isabel Camara.