Flugslysið í Færeyjum
Flogvanlukkan í Mykinesi
Færeysk heimildarmynd í tveimur hlutum um flugslys sem varð 26. september 1970. Fokker Friendhip flugvél Flugfélags Íslands fórst í hlíðum fjallsins Knúkur á eyjunni Mykines í Færeyjum með þeim afleiðingum að flugstjórinn Bjarni Jensson og sjö færeyskir farþegar fórust. Tuttugu og sex björguðust en margir voru illa slasaðir. Leikstjórar: Dagmar Joensen-Næs og Jens Jákup Hansen.