Fæðingar og geðrof
My baby, Psychosis & me
Heimildarmynd frá BBC um erfiða reynslu tveggja mæðra sem fóru í geðrof í kjölfar fæðingar, eitt alvarlegasta ástand sem geðræn veikindi geta valdið. Um ein af hverjum 500 fæðingum getur valdið geðrofsástandi. Nýbakaðar mæður í slíku ástandi upplifa öfgafullar andstæður tilfinninga og undarlegar og hættulegar hugsanir sækja á þær. Í myndinni er fjallað um hvernig það er að glíma við þetta hættulega ástand.