Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Reykjanesbæjar: Valgerður Björk Pálsdóttir, Grétar Þór Sigurðsson, Kristján Jóhannsson.
Lið Hálendisins: Elísabet Margeirsdóttir, Einar Skúlason, Lára Ómarsdóttir.

Dana er 9 ára stelpa sem elskar risaeðlur. Líf hennar breytist til frambúðar þegar hún fær gefins handbók um risaeðlur, sem kennir henni ekki aðeins nýja hluti um dýrin, heldur gefur henni ofurkrafta sem gera henni kleift að sjá fyrir sér risaeðlur í raunveruleikanum.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.
Fimmtán vinsælustu lög Bubba, að mati þjóðarinnar, skoðuð ofan í kjölinn. Hér er farið yfir lögin í 5.–1. sæti og rifjuð upp eftirminnileg augnablik í lífi Bubba.
Rómantísk gamanmynd frá 2022. Henry Copper er mislukkaður, ungur, breskur rithöfundur og skáldsagan hans hefur varla selst í heimalandinu. Þegar bókin slær óvænt í gegn í Mexíkó ákveður hann að ferðast þangað til að fylgja velgengni hennar eftir. Þar kemst hann fljótt að ástæðunni fyrir vinsældum bókarinnar – þýðandinn, María, breytti sögunni í sjóðheita erótíska ástarsögu. Leikstjóri: Analeine Cal y Mayor. Aðalhlutverk: Sam Claflin, Verónica Echegui og Antonia Clarke.
Suðurkóresk spennumynd um rannsóknarlögreglumann sem rannsakar dauða manns sem féll fram af kletti. Meðan á rannsókninni stendur kynnist hann dularfullri eiginkonu þess látna og þau þróa með sér flókið samband. Leikstjóri: Park Chan-wook. Aðalhlutverk: Park Hae-il, Tang Wei og Lee Jung-hyun. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.