
Gamansamir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það, enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Dóttir Edda strútapabba fer í balletham og krákubarnið tekur snúning með henni. Eddi er dauðhræddur um að krákan snúist of hratt og sleppi dóttur hans, með þeim afleiðingum að hún slasi sig! Hann verður að stoppa dansinn og það strax.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Ný sería um hinn vinsæla Bjössa Brunabangsa! Í þessari seríu fylgjumst við með hetjunni Bjössa brunabangsa, sem elskar að keyra slökkviliðsbíl og slökkva elda. Á hverjum einasta degi leysir hann spennandi verkefni með hjálp frá samstarfsfólki sínu.
Jöklarnir hafa hopað og allar þjóðsagnaverurnar úr gömlu bókunum eru komnar fram í dagsljósið. Ormhildur og Albert gamli leggja af stað í leiðangur með Guðrúnu og Brynhildi. Þau ætla að fremja galdraseið til að kveða vættirnar aftur inn í jöklana. Allt fer á hliðina þegar Albert er tekinn höndum og hópurinn hrapar í fjallinu. Á ferðalaginu uppgötvar Ormhildur að hún býr yfir leyndum hæfileika og kemst að því að töfraverurnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar.
Álfur hefur loks fundið innri frið með aðstoð Björns. Friðurinn snýst fljótt upp í reiði og hann stefnir að Heklu. Ormhildur og vinir hennar festast í óheppnisbelti og bjarga fjörulalla með töfrum Ormhildar. Hallgrímur tapar völdum og handbendi hans yfirgefa hann.
Skemmtiþáttur um íslenska tungu í umsjón Braga Valdimars Skúlasonar og Vigdísar Hafliðadóttur. Þátttakendur etja kappi í fjölbreyttum leikjum og þrautum. Framleiðsla: Skot í samstarfi við RÚV.
Keppendur eru Hans Sævarsson, Jens Sævarsson, Rán Ingvarsdóttir og Rún Ingvarsdóttir.
Dóri DNA spjallar við marga af virkustu grínistum landsins og spyr hvort hægt sé að lifa á gríni einu saman. Hver er galdurinn við húmor og þarf maður að æfa sig í fyndni? Gestir Dóra eru meðal annarra Anna Svava, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Dóra Jóhannsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir, Steindi Jr. og Hugleikur Dagsson. Dagskrárgerð: Gaukur Úlfarsson.
Í fyrsta þætti kíkir Dóri í kirkjugarðinn með Sögu Garðars, skoðar bíla með Hjamma, mátar gleraugu hjá Önnu Þóru og fer með Þorsteini Guðmundssyni til dýralæknis.
Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Þáttaröð frá árinu 2006 um íslenska einleikara sem allir hafa staðið framarlega í íslensku tónlistarlífi um lengri eða skemmri tíma. Umsjón: Jónas Sen. Dagskrárgerð: Jón Egill Bergþórsson.
Jónas Sen ræðir við Gunnar Kvaran sellóleikara.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Ýmis óvenjuleg málefni krufin út frá skemmtilegu sjónarhorni í nýjum og spennandi þætti þar leitað er svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson.
Finnsk heimildarþáttaröð frá 2025. Hvernig birtist pólitík í ópólitískri keppni? Pólitík hefur alltaf verið samofin Eurovision þrátt fyrir bann EBU við hvers kyns pólitískum yfirlýsingum í keppninni. Fjallað er um Eurovision sem vettvang stjórnmála, skoðana og mótmæla.
Samantekt frá tónleikum í Hörpu árið 2023 þar sem fjórtán íslenskir kvennakórar flytja fjölbreytta tónlist. Kórarnir eru Héraðsdætur, Kvennakór Vestmannaeyja, Kvennakór Akureyrar, Jórukórinn, Kvennakór Hafnarfjarðar, Kvennakór Ísafjarðar, Kvennakór Suðurnesja, Kvennakórinn Ymur, Kvennakórinn Ljósbrá, Senjorítukórinn, Kyrjurnar, Kvennakórinn Heklurnar, Kvennakór Hornafjarðar og Kvennakór Reykjavíkur.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.

Loft hefur svifið um loftin blá frá örófi alda án þess að lenda nokkurn tímann á jörðu. Það kynnist ævintýralegri tilvist mannsbarna í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Loftfarið er alveg að gefa sig og Loft missir alla von um að finna galdraklútinn sinn aftur. Á meðan er Áróra veik heima og býr til galdraseyði með týnda klútnum sem nú er orðinn hennar.
Krökkunum í skátabúðunum leiðist en Sunna deyr ekki ráðalaus heldur fer hún með krakkana í kappát en maturinn er ekki fyrir alla. Ætli þau þurfi að borða eitthvað myglað?
Þorri og Þura eru álfar og heimsins bestu vinir. Einn daginn eiga þau von á Eysteini vini sínum en svo bólar ekkert á honum. Þorri og Þura leggja þá af stað í leit að vini sínum.
Þorri og Þura eru álfar og heimsins bestu vinir. Einn daginn finna þau dularfulla plöntu í garðinum hans afa sem Eysteinn álfastrákur vinur þeirra segir að sé Álfaþeykir. Eysteinn ákveður að koma til þeirra og skoða álfaþeykinn en svo bólar ekkert á honum!
Ætli Eysteini hafi verið rænt af trölli?
Þættir frá 2011 um íslenska tónlist í umsjá Sigtryggs Baldurssonar. Honum til halds og trausts er greiningardeild Hljómskálans, sem skipuð er þeim Guðmundi Kristni Jónssyni, öðru nafni Kidda í Hjálmum, og Braga Valdimar Skúlasyni í Baggalút. Farið er um víðan völl íslensku tónlistarsenunnar, reynt að ráða í meikdrauma, rýna í suðupotta og þræða fornar söguslóðir. Auk þess eru þekktir tónlistarmenn fengnir til að vinna nýtt efni fyrir þættina.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Amanda Guðrún Bjarnadóttir og Andri Freyr Viðarsson. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Hjalti Stefánsson, Benedikt Nikulás Anes Ketilsson, Björgvin Kolbeinsson og Adelina Antal.
Heimildarmynd frá 2024 eftir Óskar Pál Sveinsson. Fjallað er um áhrif sjókvíaeldis á laxi á lífríki og afkomu bænda sem hafa byggt lífsafkomu sína á hlunnindum af stangveiðum í Noregi og á Íslandi. Í júní 2024 var fjölda laxveiðiáa lokað í Noregi vegna skaðans sem sjókvíaeldi á laxi og loftlagsbreytingar hafa valdið villtum laxastofnum. Rætt er við eigendur norskra laxáa og íbúa í sveitum Íslands um þá framtíð sem gæti beðið þeirra.
Lífskúnstnerinn og bóheminn Frímann Gunnarsson deilir lífsreglum sínum með áhorfendum og flytur fyrirlesturinn „11 spor til hamingju“ þar sem hann kynnir niðurstöður glænýrra rannsókna og leiðréttir rangfærslur og klisjur sem eru allt of víða. Leikari og höfundur: Gunnar Hansson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.

Bandarísk dans- og söngvamynd frá 2021 í leikstjórn Steven Spielberg. Myndin fjallar um átök og forboðnar ástir í New York 1957 og byggir á leikriti Shakespeares um Rómeu og Júlíu. Ástarsamband tveggja ungmenna úr sitthvoru götugenginu kyndir undir ófriðinum á milli gengjanna sem berjast um yfirráð yfir hverfinu. Aðalhlutverk: Ansel Elgort, Rachel Zegler og Ariana DeBose. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.