Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Stýrivextir voru lækkaðir í fimmta skiptið í röð í dag um 25 punkta og standa nú í 7,5 prósentum. Seðlabankinn varar þó við að þetta kunni að vera síðasta lækkunin í bili, nema verðbólgan fari að þokast meira niður en undanfarið. Á sama tíma hefur matvöruverð farið hækkandi. Kastljós greip nokkra neytendur glóðvolga að lokinni verslunarferð norður á Akureyri og ræðir í framhaldinu við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR og Þorstein Víglundsson, forstjóra Hornsteins.
Hvernig ætli sé að alast upp og lifa með Tourette sjúkdóminn á Íslandi? Óðinn Svan hitti ungan mann á Akureyri sem hefur lært að lifa góðu lífi með sjúkdómnum.
24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.
Spurningakeppni sveitarfélaganna. Lið Álftaness og Fjarðabyggðar eigast við. Lið Álftaness skipa: Edda Arinbjarnar, Einar Sverrir Tryggvason og Gunnsteinn Ólafsson. Lið Fjarðabyggðar skipa: Jón Svanur Jóhannsson, Kjartan Bragi Valgeirsson og Guðmundur Rafnkell Gíslason. Umsjónarmenn: Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir. Spurningahöfundur og dómari: Ólafur B. Guðnason. Aðstoð við dagskrárgerð: Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Helgi Jóhannesson.
Þáttaröð frá 2009 þar sem Eva María Jónsdóttir ræðir við nokkra af ástsælustu leikurum þjóðarinnar. Dagskrárgerð: Haukur Hauksson.
Róbert Arnfinnsson var næstum ekki orðinn leikari. Örlagarík hettusótt hagaði því þannig að hann lærði leiklist hjá Lárusi Pálssyni. Róbert var fastráðinn hjá Þjóðleikhúsinu frá upphafi og átti líka gríðarlegri velgengni að fagna í Þýskalandi um nokkurra ára skeið. Leiklistarhæfileikar hans eru nánast óumdeildir, en hann hefur þó marga fjöruna sopið í listgreininni og stundum helst viljað biðjast afsökunar. Í þættinum eru sýndar áður óbirtar myndir af Róberti að dansa grískan dans og einnig heyrist margvísleg tónlist, þar sem tónlistarhæfileikar Róberts koma í ljós.
Ida er ung norsk kona sem ákveður að taka tilveruna föstum tökum og einsetur sér að bæta sig á flestum sviðum daglegs lífs.
Ida er ung norsk kona sem ákveður að taka tilveruna föstum tökum og einsetur sér að bæta sig á flestum sviðum daglegs lífs. Í þessum þætti fer Ida yfir farinn veg og ígrundar hvort allar ráðleggingar, sem hún hefur fengið frá sérfræðingum, skili sér í fullkomnu lífi.
Félagarnir og fyrrum Hraðfréttamennirnir Benni og Fannar réðu sig sem háseta á frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson frá Grindavík. Í þáttunum fáum við að fylgjast með strákunum í ævintýralegum 30 daga túr. Dagskrárgerð: Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson. Framleiðsla: Skot.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk í bæjum og sveitum og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórdís Claessen, Hafsteinn Vilhelmsson, Elsa María Guðlaugs - Drífudóttir og Amanda Guðrún Bjarnadóttir. Dagskrárgerð: Jóhannes Jónsson, Elvar Örn Egilsson, Hjalti Stefánsson og Björgvin Kolbeinsson.
Í Landanum í kvöld ferðumst við aftur til fortíðar og höngum útí sjoppu í Keflavík, við kynnum okkur nýja aðstöðu á Stöng í Þjórsárdal, spjöllum við kokk sem flutti til Litháen og fékk veitingastað upp í hendurnar og hittum útvarpsvirkja sem hefur gert við útvörp frítaíma sínum í rúm 40 ár.

Keppni í skapandi þrautum. Skaparar og keppendur hafa 10 mínútur til að klára þraut og taka þátt í Stórhættulegu spurningakeppninni. Þegar tíminn er hálfnaður draga keppendur babb-spjöld. Að sjálfsögðu endar þetta á vænni slímgusu. Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson.
Hér búum við til Landvættaspil. Hefur þú prófað að búa til spil? Jökull Jónsson og Svanhildur Margrét Arnalds eru í gula liðinu og Hjalti Böðvarsson og Sigrún Marta Arnalds í bláa liðinu. Hljóðkútarnir eru í miklu keppnisskapi hér og Hermikrákan er í miklu fjöri en hvenrig fer Stórhættulega spurningakeppnin? Hvaða lið fer heim allt í slími?
Þau Ylfa og Máni standa vaktina í eldhúsinu og kenna okkur hvernig á að elda og baka ýmislegt góðgæti. Dagskrárgerð: Eva Rún Þorgeirsdóttir. Umsjón: Ylfa Blöndal og Hilmar Máni Magnússon.
Ylfa og Máni elda egg sem eru full af góðri næringu. Ylfa steikir eggin sín en Máni býr til ommilettu.
Þau rista sér brauð, setja á það allskonar álegg og skera niður ávexti til að hafa með eggjunum.
Uppskriftin:
egg
brauð
ávextir
álegg
olía
salt og pipar

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Dómur Jónasar Sen um kóruppfærslu Carmina Burana vakti úlfúð margra, en skrif Jónasar eru afdráttarlaus í gagnrýni á verkið. Atburðarásin á sér fordæmi í íslensku menningarlífi fortíðarinnar þar sem sterkorður gagnrýni vekur reiði. Bryndís Loftsdóttir fyrrum gagnrýnandi og Njörður Sigurjónsson prófessor í menningarmiðlun ræða hlutverk og markmið gagnrýni. Metfjöldi nemenda útskrifast úr Listaháskóla Íslands í ár, þar með taldir myndlistarnemarnir Helga Thorlacius Finnsdóttir, Silja Rún Högnadóttir og Sigurlinn Maríus Sigurðarson auk Dags Eggertssonar, nema í grafískri hönnun. Leiklistardeild skólans setur upp söngleikinn Leg og Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikstýrir.
Sundhöll Hafnarfjarðar verður að leikhúsi í nokkrar kvöldstundir þegar sviðslistahópurinn Gleym-mér-ei ásamt kvennakórnum Kötlu setur upp verkið Konukroppar. Höfundar verksins eru Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Snædís Ingadóttir.

Heimildarþættir sem fjalla um tónlistarmyndbönd nokkurra af stærstu poppstjörnum heims. Rætt er við leikstjóra, danshöfunda, gagnrýnendur og listafólkið sjálft.

Kokkurinn Nisha Katona ferðast um Ítalíu og kynnist matreiðslu í ýmsum héruðum.
Þriðja þáttaröð þessara norsku leiknu þátta um samfélagið í Stafangri og breytingarnar sem urðu þegar olía fannst í sjónum úti fyrir bænum og norska olíuævintýrið hófst. Meðal leikenda eru Anne Regine Ellingsæter, Malene Wadel, Mads Sjøgård Pettersen og Pia Tjelta.
Þátturinn er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.

Veðurfréttir
Úkraínsk spennuþáttaröð. Þegar þrjár ungar stúlkur finnast látnar með stuttu millibili í borginni Osijek í Króatíu ákveða tveir rannsóknarlögreglumenn og tveir blaðamenn að hjálpast að við að leysa málin, en rannsókn málsins leiðir þau á hættulegar slóðir. Aðalhlutverk: Kseniia Mishyna, Goran Bogdan og Darko Milas. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Breskir dramaþættir frá 2023. Læknirinn Lucinda Edwards er virt og farsæl í starfi, en eitt örlagaríkt kvöld deyr einn sjúklingur hennar úr of stórum skammti af ópíóíðalyfi og allt breytist. Aðalhlutverk: Niamh Algar, James Purefoy og Lorne MacFadyen. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.