24 stærstu sveitarfélög landsins keppa sín á milli í skemmtilegum spurningaleik. Sigmar Guðmundsson og Þóra Arnórsdóttir stýra þættinum. Dómari og spurningahöfundur er Ólafur Bjarni Guðnason. Útsendingu stjórnar Helgi Jóhannesson.

Leikir á EM kvenna í fótbolta.
Leikur Portúgal og Ítalíu á EM kvenna í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.
Sannsöguleg sænsk leikin þáttaröð um þrjá unga menn sem deildu þeirri sýn að fólk ætti að hafa frjálsan aðgang að upplýsingum, tónlist, bókum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum á netinu. Árið 2003 stofnuðu þeir niðurhalssíðuna The Pirate Bay sem varð fljótt ein sú stærsta í heiminum og gjörbylti internetinu. Aðalhlutverk: Simon Gregor Carlsson, Arvid Swedrup og Willjam Lempling. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Heimildarmynd frá 2018 um samband John Lennons og Yoko Ono og áhrif þess á tilurð plötunnar Imagine sem kom út árið 1971. Leikstjórn: Michael Epstein.

Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Leikir á EM kvenna í fótbolta.
Leikur Portúgal og Ítalíu á EM kvenna í fótbolta.

Umfjallanir um leiki á EM kvenna í fótbolta.
Uppgjör á leik Portúgal og Ítalíu á EM kvenna í fótbolta.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.