Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Margir bændur róa nú lífróður og mögulegt fjöldagjaldþrot er framundan grípi stjórnvöld ekki til aðgerða að sögn bænda. Við ræðum þetta við Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra í kvöld og einnig um samgöngusáttmála og borgarlínu, þar sem tímalína verkefnisins er löngu úrelt og fjárhagsáætlun stenst enga skoðun.
Það vakti óhug þegar kveikt var í bíl rannsóknarlögreglukonu í Reykjavík fyrir um mánuði. Málið hefur verið rannsakað sem hefndaraðgerð og er sagt tengjast skipulagðri glæpastarfsemi. Við ræddum við yfirmann greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.
Íslendingar geta gert ríkar kröfur til fiskeldisfyrirtækja enda hafi þau á fáa aðra staði að sækja að mati norsks blaðamanns. Ný bók sem hann skrifaði sýni vel að Fiskeldisfyrirtæki geri ávallt minna úr mögulegum vandamálum en þau komi alltaf upp að lokum.
Spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hefur um árabil verið með vinsælasta sjónvarpsefni á landinu, enda fer þar saman létt skemmtun og æsispennandi keppni. Nú er lokið forkeppni á Rás 2 með þátttöku liða frá 28 framhaldsskólum en aðeins átta lið standa eftir þegar sjónvarpshluti keppninnar hefst.
Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, spurningahöfundur og dómari Stefán Pálsson og Andrés Indriðason annast dagskrárgerð og stjórnar útsendingu.
Spyrill er Logi Bergmann Eiðsson, spurningahöfundur og dómari Stefán Pálsson, Steinunn Vala Sigfúsdóttir er stigavörður og Andrés Indriðason annast dagskrágerð og stjórnar útsendingu.
Hemmi Gunn og Þórhallur Gunnarsson rifja upp gamla tíma og kynna á ný gesti sem slógu í gegn í þáttum Hemma á sínum tíma. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson.
Dönsk heimildarþáttaröð um áhrif heimsfaraldurs af völdum COVID-19 á lífsviðurværi fólks víða um heim. Í þáttunum kynnumst við meðal annars nuddurum á ströndum Taílands sem skyndilega urðu mannlausar og norskum hóteleiganda sem þarf að endurskipuleggja allan rekstur sinn og taka erfiðar ákvarðanir.
Gisle fær hnút í magann þegar kærastinn hans tekur í höndina á honum á almannafæri. Í þessari heimildarþáttaröð frá NRK fer hann um ókunnar slóðir í von um að fá svör við spurningum sínum. Hvers vegna er það ennþá erfitt að vera samkynhneigður í Noregi árið 2017? Og nær Gisle að komast yfir það að skammast sín fyrir að vera „öðruvísi“?
Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kannar köku- og sætabrauðsmenningu annarra landa.
Í þessum þætti liggur leiðin til eyjunnar Isle of Skye í Skotlandi þar sem hrjúf náttúra og ekta viskí veita kökubakstri Tobiasar mikinn innblástur.
Þættir frá 2012-2013. Fjallað er um leiklist, kvikmyndir og myndlist með upplýsandi og gagnrýnum hætti. Einnig er farið yfir feril einstakra listamanna. Umsjónarmenn eru Guðmundur Oddur Magnússon, Vera Sölvadóttir, Símon Birgisson og Sigríður Pétursdóttir. Dagskrárgerð: Guðmundur Atli Pétursson og Kolbrún Vaka Helgadóttir.
Fótboltabaráttan heldur áfram og keppast Jamie og félagar um að gera liðið sitt sem sterkast. En með nýjum aðstoðarþjálfara og nýjum liðsmönnum koma ný átök. Bæði á vellinum og utan hans. e.
Við höldum áfram að kynnast matarmenningu heimsins. Fleiri krakkar fá vini sína í heimsókn og elda fyrir þá mat frá heimalandi sínu. e.