Karl Ágúst, Pálmi, Sigurður og Örn bregða á leik sprellfjörugir að vanda í vinsælasta sjónvarpsþætti á Íslandi.
Stjórn upptöku: Björn Emilsson.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Helena Margrét Jónsdóttir opnar sýna fyrstu einkasýningu í Hverfisgalleríi. Sýningin ber titilinn Draugur upp úr öðrum draug og þar má sjá köngulær og lakkrís út um alla veggi.
Fjallað er um Íslendinga sem settu svip sinn á íslenskt samfélag um sína daga með margvíslegum hætti. Þættirnir spegla jafnframt sögu þjóðarinnar og samtíð á ýmsum tímum, menningu, listir, stjórnmál og fleira. Þeir eru byggðir á efni úr safni RÚV á nærfellt hálfrar aldar tímabili. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Roy er aðeins nokkurra mánaða gamall þegar Maja fær þær upplýsingar að hann muni líklegast ekki lifa 2ja ára afmælið sitt - og að eina von hans sé tilraun með ný lyf. Sænsk heimildarmynd um baráttu fjölskyldunnar fyrir Roy litla.
Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kannar köku- og sætabrauðsmenningu annarra landa. e.
Sætabrauðsdrengurinn og ferðalangurinn Tobias Hamann-Pedersen leggur land undir fót og kannar köku- og sætabrauðsmenningu annarra landa.
Í þessum þætti liggur leiðin til eyjunnar Isle of Skye í Skotlandi þar sem hrjúf náttúra og ekta viskí veita kökubakstri Tobiasar mikinn innblástur.
Fjórir félagar frá Norður-Svíþjóð hittast reglulega í gufubaði og ræða málin. Nú hefur hins vegar danshöfundur gengið til liðs við þá og fær þá til að æfa dansverk saman.
Heimildamynd um tengsl Finnlands við Eystrasaltið og Svía á víkingaöld. Nýjar rannsóknir hafa leitt í ljós að án aðstoðar Finna í Eystrasaltinu hefðu ekki orðið neinar víkingaferðir austur.
Naomi er mætt aftur með enn þá fleiri furðuverur frá öllum heimshornum. Hvað óargardýr ætli hræði hana núna?
Stílistarnir Nico og Andrés leita að nýrri hönnunarstjörnu og leggja skemmtileg verkefni fyrir nýja keppendur.
Hrannar er klár og skemmtilegur strákur með fjörugt ímyndunarafl. Hann er alltaf að bralla eitthvað skemmtilegt í skúrnum sínum. Komdu með á hugarflug!
Umsjón: Hrannar Andrason
Hrannar notar stórkostlega ímyndunaraflið sitt og æfir sig í því að galdra!
Umsjón: Hrannar Þór Andrason
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Krakkafréttir dagsins: 1. 109 tungumál í íslenskum skólum 2. Hvað er bólusetningardagatal? 3. John Snorri ekki fundinn 4. Tónlist hefur áhrif á hænsnavarp
Umsjón: Kolbrún María Másdóttir
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. Fjallað á snarpan og líflegan hátt um það sem efst er á baugi hverju sinni í menningar- og listalífinu, jafnt með innslögum, fréttaskýringum, gagnrýni, pistlum og umræðu. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson og Halla Oddný Magnúsdóttir.
Stúlkan sem stöðvaði heiminn heitir nýtt íslenskt leikrit sem var frumsýnt í Borgarleikhúsinu á dögunum. Leikritið er þriðja sýning leikhópsins 10 fingur sem hafa vakið athygli fyrir verk sem dansa á barmi leikhúss og myndlistar.
Fram koma: Sólveig Guðmundsdóttir og Helga Arnalds
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Jasminu Vajzovic Crnac sem hefur búið á Íslandi frá árinu 1996. Hún flutti hingað sextán ára gömul en þá hafði stríð geysað í heimalandi hennar, Bosníu Hersegóvínu, í nokkur ár. Nokkuð áhyggjulaus æska breyttist í martröð á nánast einni nóttu þegar stríðið braust út og hún horfið á fólk deyja, var ofsótt og lifði í stöðugum ótta. En hún fékk tækifæri til að öðlast nýtt líf á Íslandi, tækfæri sem hún hefur heldur betur nýtt sér. Og skilaboð hennar í dag eru einföld, okkur ber skylda til að hjálpa fólki á flótta.
Norskar stjörnur eru eins og fólk er flest og ekki til fyrirmyndar í matarsóun. Í þessum þáttum eru eldaðar dýrindis kræsingar úr mat sem hefði annars lent í ruslinu.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir