Óskin mín
Texti
Lítur til mín lífið nýtt
Lítið andlit undurblítt
Horfir hugsandi mig á
heimsins svör öll virðist þrá
Sum ég glaður segi þér
sum þau kom' af sjálfu sér.
Önnur aðeins hægt að fá
með upplifun og því að rekast á.
Taktu flugið eltu drauminn, elt' 'ann alla leið
Ákveðin(n) ef leiðin er ei greið.
Megi allar vættir góðar vernd' og gæta þín,
vinur/vina, það er óskin mín.
Kynslóð kemur, kynslóð fer
Kollhnís lífsins þannig er
Meðan veginn göngum við
Var þú átt við mína hlið
Taktu flugið eltu drauminn, elt' 'ann alla leið
Ákveðin(n) ef leiðin er ei greið.
Megi allar vættir góðar vernd' og gæta þín,
vinur/vina, það er óskin mín.
Það liðna eru minningar sem læra má af margt
láttu ráða dómgreindin' og nýttu eigin kraft
Taktu flugið eltu drauminn, elt' 'ann alla leið
Ákveðin(n) ef leiðin er ei greið.
Megi allar vættir góðar vernd' og gæta þín,
vinur/vina, það er óskin mín.