
„Vanstillt viðbrögð“ fulltrúaráðsins
„Ég geri svo sem ekki mikið með þessi fremur vanstilltu viðbrögð í Ásgarði í gærkvöldi,“ segir Páll. „Í stað þess að axla ábyrgð á eigin mistökum er nú reynt að finna sök hjá öðrum. Það er út af fyrir sig mannlegt en aðalatriðið er að finna leiðir til sátta þegar sjatnar í örvæntingunni og reiðinni.“
Páll segist hafa haldið sig til hlés í kosningabaráttunni í Vestmannaeyjum þar sem hann hafi talið sig þannig best gæta heildarhagsmuna Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi öllu. Þetta hafi hann gert að mjög vel yfirveguðu ráði og eftir að hafa ráðfært sig við bestu og reyndustu menn. Eftir að flokkurinn klofnaði í Eyjum hafi verið ljóst að mjög stór hluti hans myndi fylgja hinu nýja framboði að málum. Páll segist líta á það sem skyldu sína sem oddvita flokksins í kjördæminu að laða þetta fólk aftur til fylgis við Sjálfstæðisflokkinn.