Formlegar sameiningarviðræður að hefjast
Níu sveitarfélög eru í Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Auk Skagafjarðar og Skagabyggðar, eru það Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduós, Skagaströnd og Akrahreppur. Í vikunni var stofnuð samninganefnd fyrir viðræður Skagafjarðar og Skagabyggðar, en hin fengu öll formleg boð um að taka þátt, en engin svör hafa borist.
Formaðurinn vill allsherjarsameiningu
Vignir Sveinsson, oddviti Skagabyggðar og formaður samninganefndarinnar, segir að sveitarfélögin á svæðinu stæðu sterkari ef þau yrðu sameinuð.
„Mín skoðun er sú að þetta svæði sé það líkt að það geti alveg orðið,” segir hann. „Greinarnar okkar eru náttúrulega sjávarútvegur, landbúnaður og þjónusta. Þannig að ég sé alveg fyrir mér að þetta svæði geti verið eitt. Alveg algörlega.”
Segir allsherjarsameiningu ekki koma til greina nú
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, oddviti Húnaþings vestra, segir í samtali við fréttastofu að eins og staðan er í dag komi sameining ekki til greina. Allsherjarsameining sveitarfélaganna níu sé afar flókið mál, þetta sé mjög stórt svæði landfræðilega og allir þjónustuþættir verði að vera til staðar á hverjum stað. Áfram verði þó fylgst með framvindu viðræðna.
Austur Húnavatnssýsla skoðar málin í ágúst
Forsvarsmenn sveitarfélaga í Austur Húnavatnssýslu; Blönduósbær, Skagaströnd og Húnavatnshreppur, hittast í ágúst til og taka afstöðu til sameiningarviðræðna. Adolf Berndsen, oddviti á Skagaströnd, segir við fréttastofu að þau ætli að hafa samflot í málinu, hvernig sem það færi að lokum.