
Samfylkingin í Kópavogi kynnir stefnumál sín
Samfylkingin vill brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og tryggja að öll börn fái leikskólapláss í bænum frá 12 mánaða aldri. „Í dag eru yfir 100 leikskólapláss sem standa auð í leikskólum bæjarins. Við viljum bæta starfsaðstæður leikskólakennara og starfsfólks í leikskólum meðal annars með styttingu vinnuviku,“ segir í tilkynningu.
Samfylkingin vill fjölbreytt framboð á húsnæði í Kópavogi þannig að ungir Kópavogsbúar þurfi ekki að leita í önnur sveitarfélög eftir húsnæði. „Nægilegt framboð af húsnæði fyrir leigjendur, námsmenn, eldri borgara og fyrstu kaupendur þarf að vera til staðar. Samfylkingin í Kópavogi vill samstarf við verkalýðshreyfinguna um uppbyggingu á öruggu leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði.“
Þá vill Samfylkingin í Kópavogi ráðast gegn fátækt. „Leiða má líkum að því að um 600 börn búi við fátækt, samkvæmt skilgreiningum í skýrslu UNICEF. Ein meginástæða fátæktar er skortur á húsnæði og því mikilvægt að fjölga félagslegum íbúðum.“ Auk þess vill Samfylkingin efla forvarnir og tryggja þjónustu við þá sem þess þurfa í baráttunni við fátækt. „Einn liður í því er að hækka íþrótta og tómstundastyrk upp í 80.000 krónur á ári,“ segir í tilkynningu.
„Við viljum grænni Kópavog, plastpokalausan Kópavog í samvinnu við verslanir, snjallari kópavog með lausnir í ferðamálum, sorpmálum ofl. og við viljum bæta þjónustu við eldri borgara þannig að það verði gott að eldast í Kópavogi.“