
Með þessu er ljóst að stór skarð er hoggið í útgerð í Þorlákshöfn. Þegar fréttastofa hafði samband við Gunnstein R. Ómarsson, bæjarstjóra Ölfuss, var honum brugðið. Hann er í sumarfríi og hafði ekki fengið neinar fregnir af sölunni. Eigendur Hafnarnes VER höfðu ekki greint bæjarstjórn frá stöðunni. Gunnsteinn sagði að ef rétt reynist þá sé þetta mikið reiðarslag fyrir bæinn. Um sé að ræða stóran vinnustað og með þessu væri nær allur kvótinn horfinn úr bæjarfélaginu. Þá hafði forseti bæjarstjórnar, Sveinn Steinarsson, ekki heldur fengið fregnir um söluna en hann er í útlöndum.
Í tilkynningu frá HB Granda segir að með kaupunum sé verið að greiða úr skuldavanda Hafnarnes VER. Sala aflaheimildanna hefði verið nauðsynlegur þáttur til að unnt væri að halda áfram rekstri með breyttum áherslum. Með kaupunum fer aflahlutdeild HB Granda úr um 43.800 þorskígildistonnum í um 45.400 eða úr 10,7% af heildaraflahlutdeild í 11,1%.