Linda Björk Pálsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri í Hvalfjarðarsveit frá 1. júlí. Hún hefur starfað sem skrifstofustjóri sveitarfélagsins í tæplega ár.
Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins. Linda Björk hefur áður verið sveitarstjóri, því starfi gegndi hún í Borgarfjarðarsveit 2003 - 2006.