Ferðamaður gekk fram á heldur óvenjulegt fyrirbæri á ferð sinni um Seltjarnarnes eftir hádegi. Í fjörunni, á leið út Gróttu, kom hann að hræi af einhvers konar hval og er beinagrindin um átta metra löng. Lagði mikinn daun og óþef af því.
Ferðamaðurinn lét þjónustumiðstöðina á Seltjarnarnesi vita af hræinu og fóru starfsmennirnir á staðin. Ekki er búið að greina hræið og því ekki vitað hverrar tegundar það er. Starfsmennirnir segja að í fljótu bragði líti út fyrir að þetta sé 6-8 metra langt hræ af dýri, jafnvel hrefnu, sem hafi verið lengi í sjó. Á morgun ætlar náttúrufræðistofnun að reyna að greina dýrið.