Hann segir að ríkisstjórnin hafi náð miklum árangri og að það skipti máli að hún nái að klára það. Með því sé hagsmunum þjóðarinnar best borgið. Hann gerir ráð fyrir að verða dæmdur af verkum sínum í næstu alþingiskosningum.
Sigmundur Davíð segir tíðindi gærdagsins ekki vera ný. Hann hafi verið búinn að gera grein fyrir öllum atriðum sem þarna komu fram og baðst afsökunar á frammistöðu sinni í viðtalinu. „Ég stóð mig ömurlega í sjónvarpsviðtali í þessum þætti, það kom flatt upp á mig þegar spurt var um allt annað en hafði verið boðað.“
Sigmundur Davíð var í viðtali í fréttatíma Stöðvar 2 spurður að því hvort það kæmi til greina að víkja tímabundið á meðan rannsókn fer fram.
„Það er endalaust hægt að leika þann leik að kalla eftir rannsóknum til að ýta mönnum til hliðar. Það er ekki þannig að menn séu settir í þá stöðu að þurfa að sanna sakleysi sitt. Konan mín hefur strax stigið býsna stórt skref með því að afhenda formlega staðfestingu á því að hún hafi alltaf greitt alla sína skatta. [...] Það einfaldlega að saka einhvern um eitthvað til þess að neyða þá til að stíga til hliðar er held ég ekki í samræmi við það hvernig við viljum haga hlutum í okkar samfélagi.“







