Guðrún Gróa skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Val en hún lék síðast með KR í 1. deildinni. Guðrún lék síðast í efstu deild með Snæfelli tímabilið 2013 - 2014 en þá varð hún Íslandsmeistari með liðinu.
Hinn ungi Darri Freyr Atlason tók nýverið við þjálfun Vals en hann þjálfaði Guðrúnu Gróu hjá KR tímabilið 2015 - 2016.
“Ég er virkilega ánægður með að fá tækifæri til þess að vinna aftur með Gróu,” sagði Darri Freyr í samtali við heimasíðu Vals í dag og bætti við:
“Gróa er frábær leikmaður og enn betri manneskja. Hún bindur saman liðsheildina með smitandi varnarleik, auðmýkt og fórnfýsi og verður mikill styrkur fyrir okkur innan vallar sem utan. Við hjá Val leggjum mikið upp úr því að gera rétta hluti en ekki síður því að gera hlutina rétt. Gróa er fullkomin viðbót við liðsheild sem vinnur eftir þeim skilaboðum.”