Bjarney S. Annelsdóttir hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn fyrst kvenna hér á landi. Hún leiðir rannsóknardeild og almenna deild hjá embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Þar segir að Bjarney hafi byrjað í afleysingum hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli árið 1999 og útskrifast sem lögreglumaður úr Lögregluskóla ríkisins fjórum árum síðar. Hún vann við kennslu í Lögregluskóla ríkisins frá 2007 til 2013. Þá tók hún við starfi aðalvarðstjóra hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og hefur verið aðstoðaryfirlögregluþjónn í rúmt ár.