„Ég get nú ekki neitað því að þetta hafi á köflum verið svolítið erfitt en þetta var bara gaman. Sérstaklega þegar maður er búinn, maður gleymir alltaf strax hvað var erfitt. “
Þorsteinn hjólaði alls 755 kílómetra á níu dögum en hann tók sér hvíldardag á Ísafirði.
„Ég hjólaði mest núna á sunnudaginn. Frá Ísafirði og alveg inn í Kjálkafjörð það eru 107 kílómetrar. Bæði yfir Gemlufallsheiði og Dynjandisheiði. Það var spáð svo leiðinlegu veðri daginn eftir þess vegna fór ég svona langt.
„Þannig þú hefur gefið í þá?“ Já svarar Þorsteinn.
Þetta er ekki fyrsta hjólaferð Þorsteins en sumarið 2015 hjólaði hann Snæfellsneshringinn og 2016 hringinn í kringum Ísland.
Hvert er svo förinni heitið næst? „Ég er ekki búinn að taka neina ákvörðun um framhaldið. Frúin mín segir líka að ég sé kominn með næga athygli í bili,“ segir Þorsteinn og hlær.
Þorsteinn missti tengdarson sinn í vetur en hann ákvað að hjóla í minningu hans til styrktar Píeta samtökunum. Hann er búinn að safna 1500 þúsund krónum til styrktar samtakanna.