
Fundað með Almannavörnum vegna skjálftanna í nótt
Í tilkynningu frá Almannavörnum segir að fjöldi skjálfta á bilinu 3 - 5 að stærð hafi orðið á svæðinu frá Fagradalsfjalli að fjallinu Þorbirni, sem er í túnfætinum hjá Grindvíkingum, og fólk þar í bæ því skiljanlega órólegt.
Hræringarnar líklega ekki „skammtímafyrirboði eldgoss“
Fram kemur að líklegast þyki að skjálftarnir séu „afleiðingar spennubreytinga í jarðskorpunni, en ekki vegna tilfærslu á kviku. Það er því ekki metið sem svo að þeir séu skammtímafyrirboði eldgoss."
Ennfremur segir að mannskapur frá Vegagerðinni og Lögreglunni á Suðurnesjum sé að kanna hvort skemmdir hafi orðið á vegum, og að staðan verði endurmetin í fyrramálið.
Tilkynning Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra í heild:
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra og Veðurstofa Íslands funduðu ásamt Lögreglunni á Suðurnesjum og fulltrúa Grindavíkurbæjar kl. 03.30 í nótt vegna fjölda jarðskjálfta af stærðinni 3-5 á svæðinu frá Þorbirni að Fagradalsfjalli. Jarðskjálftarnir finnast vel í Grindavík og fólk er skiljanlega órólegt.
Líklegast er að skjálftarnir sem finnast núna í Grindavík séu afleiðingar spennubreytinga í jarðskorpunni, en ekki vegna tilfærslu á kviku. Það er því ekki metið sem svo að þeir séu skammtímafyrirboði eldgoss.
Áfram má búast við jarðskjálftum í nótt sem finnast vel í Grindavík. Náttúruvásérfræðingar Veðurstofunnar og Almannavarnadeild fylgjast vel með þróun mála í nótt.
Vegagerðin og Lögreglan á Suðurnesjum eru á ferð og kanna hvort skemmdir hafi orðið á vegum. Staðan verður endurmetin í fyrramálið.