
Rotnandi minkahræ ryðja sér leið upp úr grunnum gröfum
Danska ríkisútvarpið greinir frá þessu og hefur fengið það staðfest hjá ríkislögreglunni, sem ber ábyrgð á slátrun minkanna og urðun þeirra. „Í tengslum við rotnunina geta myndast ýmsar gastegundir sem valda því að þetta tútnar allt saman svolítið út, og þá þrýstast hræin í versta falli upp úr jörðinni,“ segir Thomas Kristensen, fjölmiðlafulltrúi ríkislögreglunnar í samtali við DR.
Ekki fyrstu minkahræin til að ryðjast upp á yfirborðið
Þetta gerðist síðast nærri æfingasvæði hersins við Holsterbro á Vestur-Jótlandi, en samkvæmt ríkislögreglunni var það ekki í fyrsta skiptið. „Þetta er náttúrulegt ferli, sem við höfum reynt að hamla gegn með því að moka meiri jarðvegi yfir,“ segir Kristensen.
Hræin voru husluð í eins metra djúpum gryfjum og meðhöndluð með sótthreinsivökva og þakin kalki áður en mokað var yfir þau. Vandinn er sá, að sendinn jarðvegurinn á Vestur-Jótlandi er of léttur og laus í sér til að halda minkahræjunum niðri. Hér eftir verða öll minkahræ urðuð á minnst 2,5 metra dýpi.