Enginn lifði af flugslys sem varð í vesturhluta Frakklands í dag. Fisflugvél sem bar tvo farþega og lítil farþegavél með þrennt innanborðs skullu saman yfir bænum Loches, með framangreindum afleiðingum.
Flak fisflugvélarinnar féll til jarðar nærri íbúðarhúsi í bænum án þess að nokkur á jörðu niðri yrði fyrir meiðslum. Hin flugvélin sem var af gerðinni Diamond DA40 hrapaði til jarðar á óbyggðu svæði.
Flugbjörgunarlið var fyrst á staðinn og fann flök vélanna. Hálft hundrað slökkviliðsmanna var jafnframt kallað til og um þrjátíu lögreglumenn beindu allri umferð frá slysstaðnum.
Ekkert liggur fyrir um ástæður flugslyssins né hver hin látnu eru. Lögregla í Loches rannsakar nú málavöxtu.