Fjallað um vorkomuna og flutt ljóð og lög um vorið. Umsjón: Jóna Símonía Bjarnadóttir
Það hefur verið fastur siður hjá Ríkisútvarpinu að útvarpa að morgni sumardagsins fyrsta ljóð eftir Matthías Jochumsson, sem þeim degi er helgað. Ljóðið hefst á orðunum „Kom heitur til míns hjarta, blærinn blíði“ og þar heilsar skáldið sumargyðjunni af miklu andríki. Það var árið 1942 sem Lárus Pálsson las ljóðið inn á plötu og var hún leikin á hverju ári meðan hann lifði. Síðan hefur Herdís Þorvaldsdóttir flutt þetta ljóð á hverjum fyrsta sumardegi, í fjörutíu ár.
Samtal um Matthías Johannessen, skáld og ritstjóra.
Í þættinum er ferill Matthíasar Johannessen, skálds og ritstjóra, ræddur vítt og breitt. Þátturinn er frá árinu 2020 þegar Matthías stóð á níræðu og hafði sent frá sér hátt í áttatíu bækur og ritstýrt Morgunblaðinu í 42 ár.
Viðmælendur: Einar Falur Ingólfsson, Guðrún Nordal og Silja Aðalsteinsdóttir.
Umsjón: Þröstur Helgason og Ástráður Eysteinsson.
(Áður á dagskrá 2020)
Veðurstofa Íslands.
Fuglasöngur er flókið tungumál sem fuglar nota til að tjá ýmsar mikilvægar upplýsingar um sig sjálfa. Í þessari þáttaröð er fjallað um fuglasöng frá bæði líffræðilegum og menningarlegum hliðum. Hvað hafa fuglar að segja og hvað eigum við manneskjur sameiginlegt með fuglum þegar kemur að samskiptum?
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hljóðvinnsla: Lydía Grétarsdóttir
Í þessum fyrsta þætti fræðumst við um líffræðilegu hliðar fuglasöngs. Við pælum í þróun fuglasöngs, raddböndum og þeim upplýsingum sem líffræðileg tónlist hefur að geyma. Eigum við manneskjur mögulega eitthvað sameiginlegt með fuglum þegar kemur að samskiptum?
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Hljóðvinnsla: Lydía Grétarsdóttir.
Guðsþjónusta.
Séra Jóhanna Gísladóttir predikar og þjónar fyrir altari.
Organistar: Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Erla Rut Káradóttir.
Yngri barnakór Akureyrarkirkju, Eldri barnakór Akureyrarkirkju, Barna- og æskulýðskór Glerárkirkju og Perlukór Háteigskirkju syngja.
Stjórnendur: Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, Erla Rut Káradóttir og Margrét Árnadóttir.
Erla Rut Káradóttir leikur á píanó, Pétur Ingólfsson á bassa og Katrín Karlinna Sigmundsdóttir á flautu.
Konný Björk Þórðardóttir les fyrri ritningarlestur, Hanna Kristrún Vatnsdal les síðari ritningarlestur.
Bænir lesa Emilía Ingibjörg Guðjónsdóttir, Ástrós Eva Einarsdóttir, Gréta Petrína Zimsen, Karólína Orradóttir og Aþena Eir Stefánsdóttir.
Fyrir predikun:
Forspil: Vorið kemur. Lag: Valgeir Guðjónsson. Texti: Jóhannes úr Kötlum.
Sálmur 763: Ó, Guð, ég veit hvað ég vil. Lag: Torgny Erséus. Texti: Margareta Melin. Íslenskur texti: Kristján Valur Ingólfsson.
Sálmur 261: Drottinn, miskunna, miskunna þú oss. Lag: G.M. Kolisi. Texti: Úr Biblíunni.
Sálmur 270: Dýrð þér, dýrð þér. Lag og texti: Pablo Sosa. Íslenskur texti: Kristján Valur Ingólfsson.
Sálmur 341: Fel mig nú í faðmi þér. Lag og texti: Reuben T. Morgan. Íslenskur texti: Árný Björg Blandon.
Sálmur 159: Fræ í frosti sefur. Lag frá 16. öld. Texti: John M.C. Crum - Anders Frostenson. Íslenskur texti: Sigurbjörn Einarsson.
Ákall: Lag: Ralph Siegel. Texti: Bert Meinunger. Íslenskur texti: Jónbjörg S. Eyjólfsdóttir.
Eftir predikun:
Sálmur 465: Í svörtum himingeimi. Lag: Arngerður María Árnadóttir. Texti: Davíð Þór Jónsson.
Sálmur 307: Þú ert Drottinn, dýrð sé þér. Lag og texti: Per Harling. Íslenskur texti: Jón Ragnarsson.
Eftirspil: Sálmur 770: Ó, blessuð vertu sumarsól. Lag: Ingi T. Lárusson. Texti: Páll Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Framkvæmdastjóri Landverndar segir frumvarp matvælaráðherra um lagareldi ekki mega verða að lögum. Náttúruverndar- og dýravelferðarsjónarmið séu ekki höfð í heiðri. Firðirnir séu auðlind þjóðarinnar sem eigi að passa, en ekki úthluta einkaaðilum endurgjaldslaust.
Bandaríkjastjórn krefst svara frá ísraelskum stjórnvöldum vegna fjöldagrafa sem hafa fundist við sjúkrahús á Gaza. Fleiri en hundrað voru handtekin í mótmælum stúdenta gegn stríðinu á Gaza víðs vegar um Bandaríkin í gær.
Framboðsfrestur til embættis forseta Íslands rennur út á hádegi á morgun. Níu hafa safnað tilskildum fjölda meðmæla að eigin sögn og enn gæti bæst í hópinn. Landskjörstjórn tekur við framboðunum á morgun.
Forsætisráðherra Spánar íhugar að hætta í stjórnmálum, eftir að dómari ákvað að hefja rannsókn á meintu spillingarmáli sem tengist eiginkonu hans. Ásökunin kemur frá þekktum öfgasamtökum á hægri væng stjórnmálanna á Spáni
Veðrinu á sumardaginn fyrsta er misskipt eftir landshlutum. Í blíðunni á Suðvesturhorninu hefja margir sumarið með tiltekt og garðvinnu og leggja leið sína í Sorpu.
Það skýrist í dag hvaða lið verða í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. Umferðinni lýkur með leik Keflavíkur og Breiðabliks í kvöld.
Á Ólympíuleikunum í París í sumar verður ný keppnisgrein á dagskánni, mögulega í fyrsta og eina skiptið, er breikdansarar spreyta sig á stærsta sviði íþróttanna. Þegar breikið var að verða til á götum Bronx hverfis í New York fyrir hálfri öld benti fátt til þess að þetta frjálslega menningarfyrirbrigði ætti eftir að rata á þennan stóra vettvang við hlið íþrótta sem eiga sér strangar reglur og hefðir. En nú fær breikið breik.
Umsjón: Eyrún Magnúsdóttir.
Þátturinn fjallar um sýrenutré, sem einnig heita dísarunnar, í skáldskap og tónlist. Sýrenur eru af smjörviðarætt og bera oftast bleika eða ljósfjólubláa blómaklasa. Á Íslandi blómgast sýrenutré yfirleitt í júní eða júlí, en erlendis blómstra þau á vorin. Í þættinum verður meðal annars leikin tónlist eftir Johann Strauss, Sergei Rakhmaninov, Ernest Chausson og Richard Wagner. Lesnir verða textar eftir Oscar Wilde, Walt Whitman og Jóhann Sigurjónsson. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Björn Þór Sigbjörnsson.
Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við fólk.
Þórarinn Björnsson heimsækir Þórnýju Þórarinsdóttur Kennara.
Hér segir kennarinn Þórný Þórarinsdóttir, frá sínu ævistarfi. Hún kenndi í 36 ár og tók aldrei orlof. Þrátt fyrir að hún hafi glímt við ýmsa erfiðleika í lífinu, er hún sátt við guð og menn. Þórný er mikil félagsvera og starfaði hún m.a. lengi í kvennfélagi Langholtssóknar. Tónlistin í þáttunum um líf og ævi Þórnýjar, er flutt og leikin af sonum hennar, Haraldi, Eiríki og Hauki. Lokalagið syngur eiginmaður hennar, Haukur Eiríksson, sem lést árið 1963
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur ástsæla sögu Guðrúnar Helgadóttur í fallegum hljómsveitarbúningi Guðna Franzsonar.
Að auki hljóma tveir þættir úr Holbgergsvítu Edvards Griegs, Prelúdía og Tröllamars.
Söngvari og sögumaður: Jóhann Sigurðarson.
Stjórnandi: Ross Jamie Collins.
Hljóðritun frá fjölskyldutónleikum í Litla tónsprotanum sem fram fóru í Eldborgarsal Hörpu, 23. september 2023.
Kári Egilsson var valinn Bjartasta vonin þegar Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í mars 2024. Hann leikur nokkur lög ásamt hljómsveit sinn í útvarpssal. Guðni Tómasson ræðir við Kára í þættinum.
Hljómsveitina skipa:
Kári Egilsson á píanó (syngur í einu laganna)
Jóel Pálsson á saxafón
Nicolas Moreaux á bassa
Matthías Hemstock á trommur
Gísli Kjaran Kristjánsson hljoðritaði lögin í Stúdíó 12 í Ríkisútvarpinu.
Lögin sem leikin eru (öll eftir Kára Egilsson):
Journey's end
11. janúar
Something better
Frostnótt í Reykjavík
Hringhenda
Óróapúls
Gömlu göturnar
Kvöldfréttir útvarps
Hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að strax hafi verið gripið til aðgerða í fyrra þegar í ljós kom að naumlega tókst að koma í veg fyrir að rúmlega 140 þúsund tonna skemmtiferðaskip með um 4600 manns strandaði á grynningum undan Viðey.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill aflétta skýrslu innri endurskoðunar varðandi dótturfyrirtæki Orkuveitunnar. Leyndarhyggjan sé óeðlileg og ófagleg.
Áfrýjunardómstóll í New York ógilti í dag einn dóm yfir bandaríska kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein, vegna þess að hann hefði ekki fengið sanngjörn réttarhöld.
Sumardagurinn fyrsti stóð sannarlega undir nafni suðvestanlands í dag.
Tilviljun og túnfisksamloka urðu til þess að nýkrýndur Evrópumeistari í mávagargi uppgötvaði þennan leynda hæfileika sinn.
Veðurstofa Íslands.
eftir Gunnstein Ólafsson og Böðvar Guðmundsson.
Í aðalhlutverkum:
Baldursbrá: Fjóla Nikulásardóttir.
Spói: Eyjólfur Eyjólfsson.
Rebbi: Jón Svavar Jósefsson.
Hrútur: Davíð Ólafsson.
Í hlutverki yrðlinga eru Ásta Arnardóttir, Fanný Lísa Hevesi, Guðrún Ýr Guðmundsdóttir, Rrezarta Jónsdóttir, Benedikt Gylfason, Jóhann Egill Svavarsson, Kjartan Örn Styrkársson og Tryggvi Pétur Ármannsson.
Sögumaður: Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson.
Með þeim leikur kammersveit undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Hljóðritun frá tónleikum í Langholtskirkju sumarið 2014.
Gunnar Stefánsson fjallar um skáldið og ritstjórann Matthías Johannessen. Þátturinn er frá árinu 2015, þegar Matthías varð 85 ára.
Gunnar Kristjánsson, prófastur, flytur hugleiðingu um skáldið og ljóð hans.
Andrés Björnsson les ljóð úr ljóðabókunun Borgin hló og Mörg eru dagsaugu. Matthías les smásögu úr bókinni Nitján smáþættir og eigin ljóð.
Í þættinum er fjallað um dróttkvæði og rímur í ljósi nýstárlegra hugmynd. Umsjónarmenn gera að gamni sínu en þó af nokkurri alvöru og gera því skóna að flutningsmáti dróttkvæða hafi líkst nútíma rapptónlist. Auk þess eru rímur tengdar fornum seið og nýjum seið teknótónlistarinnar.
Umsjón: Jón Hallur Stefánsson og Bergsteinn Birgisson. Rætt er við Steindór Andersen og Gunnar Harðarson. Lesari: Jórunn Sigurðardóttir.
(Áður á dagskrá 1998)
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Í þættinum er saga M.A. kvartettsins rakin og flutt lög með honum, en kvartettinn starfaði í tíu ár, var geysivinsæll og átti nokkuð sögulega starfsævi.
Umsjón: Margrét Erlendsdóttir.
Bækur Astridar Lindgren verða eilífar, það tryggja margar dásamlegustu, fallegustu, sterkustu og brothættustu persónur bókmenntasögunnar. Viðmælendur í þættinum eru þýðendurnir Sigrún Árnadóttir og Þorleifur Hauksson, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Þórdís Gisladóttir þýðandi og bókmenntafræðingur og ungur lesandi Steinunn Jónsdóttir.
Nokkur orð um sagnaheim Astridar Lindgren.
Viðmælendur: Þórdís Gísladóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigrún Árnadóttir, Steinunn Jónsdóttiir, Þorleifur Hauksson og Erna Sóley Ásgrímsdóttir.
Lesarar: Helgi Seljan og Steinunn Jónsdóttir.
Umsjón: Guðni Tómasson.
(Áður á dagskrá 2015)
Útvarpsfréttir.
Hafdís Helga Helgadóttir tekur á móti sumri og fylgir hlustendum af stað inn í þennan fyrsta sumardag.
Útvarpsfréttir.
Framkvæmdastjóri Landverndar segir frumvarp matvælaráðherra um lagareldi ekki mega verða að lögum. Náttúruverndar- og dýravelferðarsjónarmið séu ekki höfð í heiðri. Firðirnir séu auðlind þjóðarinnar sem eigi að passa, en ekki úthluta einkaaðilum endurgjaldslaust.
Bandaríkjastjórn krefst svara frá ísraelskum stjórnvöldum vegna fjöldagrafa sem hafa fundist við sjúkrahús á Gaza. Fleiri en hundrað voru handtekin í mótmælum stúdenta gegn stríðinu á Gaza víðs vegar um Bandaríkin í gær.
Framboðsfrestur til embættis forseta Íslands rennur út á hádegi á morgun. Níu hafa safnað tilskildum fjölda meðmæla að eigin sögn og enn gæti bæst í hópinn. Landskjörstjórn tekur við framboðunum á morgun.
Forsætisráðherra Spánar íhugar að hætta í stjórnmálum, eftir að dómari ákvað að hefja rannsókn á meintu spillingarmáli sem tengist eiginkonu hans. Ásökunin kemur frá þekktum öfgasamtökum á hægri væng stjórnmálanna á Spáni
Veðrinu á sumardaginn fyrsta er misskipt eftir landshlutum. Í blíðunni á Suðvesturhorninu hefja margir sumarið með tiltekt og garðvinnu og leggja leið sína í Sorpu.
Það skýrist í dag hvaða lið verða í 16-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. Umferðinni lýkur með leik Keflavíkur og Breiðabliks í kvöld.
Kristján Freyr klæðir sig í sumargallann og tekur púlsinn á landsmönnum í upphafi sumars. Hverjar eru vonir og væntingar hlustenda til íslenska sumarsins? Hvernig verður tískan og tónlistin? Hitað verður upp fyrir sumarið með hlýjum sumartónum.
Umsjón: Kristján Freyr Halldórsson
Gunni Hilmars var einna helst þekktur sem tískumógúll þegar hann vaknaði á nýársmorgun 2016, staðráðinn í að byrja að semja tónlist. Hann virtist spretta upp úr engu, þessi fertugi, fullmótaði tónlistarmaður, en ferill Gunna í tónlist hófst reyndar mun fyrr, þegar hann fór ásamt vonarstjörnunni Davíð Traustasyni til London að taka upp plötu haustið 1991.
Framtíðin var björt en þegar til stóð að klára verkið mætti Davíð ekki á flugvöllinn og raunar hvarf með öllu.
Gunni stóð eftir með höfuð fullt af spurningum. Hvar var Davíð? Af hverju mætti hann ekki? Hvað yrði nú um tónlistardrauminn?
Umsjón: Gunnlaugur Jónsson
Kvöldfréttir útvarps
Hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að strax hafi verið gripið til aðgerða í fyrra þegar í ljós kom að naumlega tókst að koma í veg fyrir að rúmlega 140 þúsund tonna skemmtiferðaskip með um 4600 manns strandaði á grynningum undan Viðey.
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vill aflétta skýrslu innri endurskoðunar varðandi dótturfyrirtæki Orkuveitunnar. Leyndarhyggjan sé óeðlileg og ófagleg.
Áfrýjunardómstóll í New York ógilti í dag einn dóm yfir bandaríska kvikmyndaframleiðandanum Harvey Weinstein, vegna þess að hann hefði ekki fengið sanngjörn réttarhöld.
Sumardagurinn fyrsti stóð sannarlega undir nafni suðvestanlands í dag.
Tilviljun og túnfisksamloka urðu til þess að nýkrýndur Evrópumeistari í mávagargi uppgötvaði þennan leynda hæfileika sinn.
Siggi Gunnars spilar soul og jazz sem lyftir andanum á hátíðardögum.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
Siggi Gunnars spilaði fjölbreytta blöndu af sálar og jazztónlist, allt með góðu grúvi. Hann ljóstraði upp um innihaldið í Memphis sálar kássunni, sagði frá manni sem var kallaður elsti unglingur heims, dóttur hans og svo tónlistarmanni sem er vottur jehóva og vill að ástarlögin hans séu túlkuð eftir því. Svona er Upp, upp mín sál.
Spiluð lög:
Level 42 - Love Games
King Curtis - Memphis Soul Stew
Rufus Thomas - Push and Pull pt. 1
Ann Peebles - I Can't Stand The Rain
George Benson - Lady Love Me (One More Time)
Jeff Goldblum - A Baptist Beat
The Wild Magnolias - (Somebody Got) Soul Soul Soul
Ezra Collective - Ajala
Gregory Porter - 1960 What?
Young Gun Silver Fox - Moonshine
Fréttastofa RÚV.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Sumardeginum fyrsta fagnað í skipulagðri óreiðu í Ólátagarði, ginhörpu tvenna var spiluð í bland við danska, franska, íslenska og finnska raftónlist og svo mættu þær Anna og Amylee úr hljómsvetinni Fókus í gott spjall og spilaðir voru tónleikar þeirra á Upprásinni sem fram fóru 5.mars. Auk þess mættu Sleikur með óvænta ræðu.
Pamela - Dúkkulísur
You Should All Be Murdered - Another Sunny Day
Tea for tillerman - Cat Stevens
E-ð - Torfi
All my friends - Cell7
Gæti einhver? - Kvikindi
Hypnic Jerk - Matching Drapes
Mer du Japon (Teenagers remix) - Air
VBMM - Ztonelove
Cathcing up - Sigrún
Bassline junkie - Dizzie Rascal
Ana-Dammi-Falasteeni - Hassan Shaikh
TTT - slummi
Hallingen - Kenneth Lien, Center of the universe
Fanten - Thov G. Wetterhus
alarmed x wiley dub - eloq
Weight - sideproject
Pitää vaan uskaltaa - Nelma U
Ua - Tarrak
Nytrogen (Upprásin 5.mars 2024) - MC Myasnoi
Útvarpsfréttir.
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.