Rannsóknarleiðangur tónlistaramatörs.
Umsjón: Ólöf Ingólfsdóttir.
Rannsóknarleiðangur tónlistaramatörs.
Rætt er við prófessor Ásdís Egilsdóttir, miðaldafræðing og Systir Agnesi, nunnu í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði.
Lesarar: Sveinn Ólafur Gunnarsson og María Heba Þorkelsdóttir.
Umsjón: Ólöf Ingólfsdóttir.
*Kammerkórinn Schola Cantorum syngur trúarleg verk eftir Sigurð Sævarsson og Hafliða Hallgrímsson; Hörður Áskelsson stjórnar.
*Þættir úr óratoríunni Guðspjalli Maríu eftir Huga Guðmundsson.
Kammerkórinn Schola Cantorum syngur með Sinfóníettunni í Árósum. Einsöngvari er norska sópransöngkonan Berit Norbakken; Hörður Áskelsson stjórnar.
Útvarpsfréttir.
Fimmta apríl, nóttina eftir annan í páskum, 1994 féll stórt snjóflóð á skíðasvæði Ísfirðinga og steyptist svo yfir sumarhúsabyggðina í Tungudal. Bústaðirnir voru mannlausir þessa nótt utan tveggja. Fjórir lentu í flóðinu, þrjú björguðust en einn lést.
Nú þegar þrjátíu ár eru liðin rifjum við upp þetta mikla snjóflóð í Tungudal. Flóðið er rúmmálsmesta flóð sem Veðurstofa Íslands hefur mælt og virtist koma öllum að óvörum.
Umsjón og dagskrárgerð: Halla Ólafsdóttir.
Viðtalið við Gunnlaug Jónasson er tekið af Eduardo Abrantes.
Viðmælendur í þættinum eru:
Ásdís Guðmundsdóttir.
Ásgeir Lýðsson.
Gunnlaugur Jónasson.
Harpa Grímsdóttir.
Hermann Grétar Hermannsson.
Pétur Oddsson.
Sólveig Bára Guðnadóttir.
Sigurður Jónsson.
Tónlistin í þættinum er eftir Brynjar Daðason og Skúla Sverrisson.
Fimmta apríl, nóttina eftir annan í páskum, 1994 féll stórt snjóflóð á skíðasvæði Ísfirðinga og steyptist svo yfir sumarhúsabyggðina í Tungudal, sumarpardís Ísfirðinga. Langflestir bústaðanna voru mannlausir þessa nótt utan tveggja. Fjórir lentu í flóðinu, þrjú björguðust en einn lést.
Við rifjum upp þessa atburði nú þegar þrjátíu ár eru liðin frá þessum náttúruhamförum í Tunguskógi.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Árið 1970 fannst í París 19. aldar handrit að tónverki með yfirskriftinni „Ostersonate“ (Páskasónata) og höfundarnafninu F. Mendelssohn. Tónlistarfræðingum fannst liggja beinast við að álykta að hér væri um að ræða áður óþekkt verk eftir hið fræga tónskáld Felix Mendelssohn og þegar verkið kom út á hljómplötu árið 1972 var litið svo á að hann væri höfundurinn. Þegar fram liðu stundir komu fram tilgátur um það að verkið væri ekki eftir Felix, heldur eftir Fanny systur hans, sem einnig var tónskáld og fjórum árum eldri en Felix, fædd 1805. Þetta virtist því líklegra þar sem Fanny segir í dagbók sinni 26. ágúst 1829 að hún hafi spilað Páskasónötuna sína. En þar sem frumhandrit verksins var í einkaeign og ekki aðgengilegt almenningi var erfitt að sanna að verkið væri eftir Fanny. Eigandi handritsins, Henri-Jacques Coudert, sagði sjálfur að verkið gæti ekki verið eftir Fanny, það væri „meistaraverk“ og „mjög karlmannlegt“. Árið 2010 fékk amerískur tónlistarfræðingur, Angela Mace Christian, loks að sjá frumhandritið og var þá sannað að Fanny væri höfundur verksins. Handritið er skrifað með hennar hendi, í því eru breytingar og leiðréttingar svo það getur ekki verið uppskrift af verki eftir Felix og númer á blöðunum sýna að þau hafa verið rifin úr úr bók með verkum eftir Fanny sem varðveitt er annars staðar. Í þættinum „Fanny Mendelssohn og Páskasónatan“ leikur Gaia Sokoli sónötuna á píanó í hljóðritun sem kom út á geislaplötu árið 2020. Einnig verður fluttur þátturinn „Mars“ úr píanóverki Fannyjar: „Das Jahr“ (Árið) frá 1841, en þar vefur Fanny páskasálm inn í verkið, eins og í Páskasónötunni. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
Guðsþjónusta.
Prestar: Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari og flytur hugvekju.
Organisti: Björn Steinar Sólbergsson.
Kórstjóri: Steinar Logi Helgason.
Kór Hallgrímskirkju syngur.
Einsöngvari: Hildigunnur Einarsdóttir, messósópran.
Einleikur: Una Sveinbjarnardóttir, fiðla.
Messuþjónar lesa ritningarlestra.
Fyrir predikun:
Forspil: Herzlich tut mich verlangen BWV 727 eftir Johann Sebastian Bach.
Sálmur 129: Ó, höfuð dreyra drifið. Lag og texti: Hans Leo Hassler/Paul Gerhardt. Íslenskur texti: Helgi Hálfdánarson.
Kórsöngur: O vos omnes. Lag: Carlo Gesualdo. Texti úr Harmljóðunum.
Kórsöngur: Timor er tremor eftir Frances Poulenc.
Eftir predikun:
Erbarme dich, úr Mattheusarpassíunni BWV 244 eftir Johann Sebastian Bach.
Sálmur 131: Dýrð, vald, virðing. Þýskt lag frá 16. öld. Texti: Hallgrímur Pétursson.
Eftirspil: Mensch, bewein dein Sünde Gross BWV 622 eftir Johann Sebastian Bach.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Árið 1974 og framtíðin.
Hófst nútíminn á Íslandi fyrir alvöru fyrir 50 árum? Þetta er spurning sem tekin verður til skoðunar í þáttunum 1100 ár þar sem árið 1974 verður skoðað. Þetta ár héldu Íslendingar upp á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar og horfðu yfir farinn veg en jafnframt kom fjölmargt til sögunnar hér á landi sem horfði til framtíðar. Leitað verður fanga í safni Ríkisútvarpsins og hljóðritanir frá viðburðum þessa árs settar í nýtt samhengi.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Í þessum seinni þætti af tveimur koma meðal annars fyrir hringvegurinn og uppbygging Vestmannaeyja eftir gos, tölvutækni og roðsokkur, pylsur og gos og Halldór Laxness.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Allir hlutir eiga sér sögu. Friðgeir Einarsson fer oft í Góða hirðinn og veltir þá fyrir sér sögu hlutanna sem hann sér þar. Stundum rekst hann á hluti sem líta út fyrir að eiga ekki að vera þar, persónulega hluti sem hafa mögulega orðið viðskila við eiganda sinn fyrir slysni. Hvað er þá til ráða? Í þáttaröðinni Vondi hirðirinn gerir hann tilraun til að skila nokkrum slíkum munum til eigenda sinna.
Friðgeir finnur átekna filmu í Góða hirðinum. Hann sendir filmuna í framköllun og fær til baka myndir úr hópferð um suðurströnd Íslands sem virðist hafa verið farin öðru hvoru megin við síðustu aldamót. Hver ætli hafi tekið þessar myndir? Í þættinum heyrum við meðal annars í Kristínu Hauksdóttur, Guðbjörgu Sveinsdóttur, Halldóru Pálsdóttur, Inga Hans Ágústssyni og gestum í Vin við Hverfisgötu.
Föstudagurinn 10. nóvember 2023 var upphafið að nýjum kafla í sögu Grindavíkur. Íbúar bæjarins neyddust til að yfirgefa heimili sín í miklum flýti og við tók gríðarleg óvissa um framtíðina. Í þessum þáttum fylgjumst við með lífi Grindvíkinga þróast í takt við sífelldar breytingar.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Föstudagurinn 10. nóvember 2023 var upphafið að nýjum kafla í sögu Grindavíkur. Íbúar bæjarins neyddust til að yfirgefa heimili sín í miklum flýti og við tók gríðarleg óvissa um framtíðina. Í þessum þáttum fylgjumst við með lífi Grindvíkinga þróast í takt við sífelldar breytingar.
Viðmælendur: Bentína Frímannsdóttir, Marteinn Guðbjartsson, Eiður Aron Marteinsson og Bryndís Hauksdóttir.
Viðmælendur frá verðmætabjörgun grunnskólans: Eysteinn Þór Kristinsson, Andrea Ævarsdóttir og Kristjana Jónsddóttir.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Útvarpsfréttir.
Sópransöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir og píanóleikarinn Davíð Þór Jónsson sungu og spiluðu af hjartans lyst á tvöhundruðustu stofutónleikunum í húsi skáldsins í Mosfellsdalnum.
Tónleikarnir, sem hljóðritaðir voru í júlí 2023, voru haldnir í minningu Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur, píanóleikara og tónlistarráðunautar Gljúfrasteins.
Umsjón: Pétur Grétarsson.
Pétur Gunnarsson rithöfundur fjallar um fræðimenn sem fylgdust með gangi himintungla og settu fram kenningar sem breyttu hugmyndum manna um stöðu jarðarinnar í alheiminum.
Kvöldfréttir útvarps
Ævar Kjartansson ræðir við dr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor, um hin mismunandi stef sem kristnir menn hafa lesið út úr krossfestingunni. Einnig ræðir hann við dr. Arnfríði Guðmundsdóttur, dósent, um þjáninguna, hvernig hún hefur verið skilin um aldir, allt frá Job til okkar daga.
(Áður á dagskrá 2007)
Veðurstofa Íslands.
Á föstudaginn langa fyrir 300 árum var Jóhannesarpassía Johanns Sebastians Bachs frumflutt í Tómasarkirkjunni í Leipzig. Í tilefni tímamótanna verður þetta stórvirki kirkjutónbókmenntanna flutt í hljóðritun frá árinu 2013 þar sem Dunedin Consort tónlistahópurinn og stjórnandinn og fræðimaðurinn John Butt, flytja passíuna í litúrgískri umgjörð kvöldguðsþjónustunnar eða Vesper, líkt og gert var við frumflutninginn á sínum tíma.
Einsöngvarar með Dunedin Consort eru Joanne Lunn, Clare Wilkinson, Nicholas Mulroy, Matthew Brook og Robert Davies; John Butt stjórnar.
Umsjón: Rakel Edda Guðmundsdóttir.
Fjallað er um passíusálma Hallgríms Péturssonar (1614-1674) sem er eitt af höfuðskáldum Íslendinga. Í hugum flestra er hann fyrst og fremst trúarskáld. Meðal íslenskra sálmaskálda hefur hann þá sérstöðu að sálmar hans hafa verið sungnir og lesnir meira en nokkurs annars skálds og merkasta verk hans, Passíusálmana, hefur þjóðin lesið og sungið á hverri föstu um aldir. Enn þann dag í dag eru sálmarnir lesnir í útvarpinu á hverju kvöldi alla virka daga föstunnar.
Umsjón: Hjörtur Pálsson.
Í þættinum er fjallað um upphaf Passíusálmalestrar í útvarpi í viðtali við Andrés Björnsson, séra Sigurjón Guðjónsson gerist leiðsögumaður hlustenda í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og spjallað er við Hannes Pétursson sem les tvö ljóð sín um Hallgrím Pétursson.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Þátturinn var gerður árið 1998, en endurfluttur í tilefni þess að liðin eru 80 ár frá því að sálmarnir voru lesnir í heild sinni í fyrsta sinn. Í þættinum er sagt frá útvarpsflutningi sálmanna og umfjöllun um þá allt frá fyrstu árum Ríkisútvarpsins. Árið 1932 urðu deilur vegna erindaflokks Halldórs Laxness sem síðar kom á prenti undir heitinu Inngangur að Passíusálmum og er pólitísk túlkun á efninu. Árið 1944 var tekinn upp sá siður sem síðan hefur verið fylgt óslitið að láta lesa alla sálmana á föstunni. Séra Sigurbjörn Einarsson, síðar biskup, las fyrstur. Síðan hafa fjölmargir menn, prestar og leikmenn, karlar og konur, látið til sín heyra á þessum vettvangi. Í þættinum eru dæmi um flutning nokkurra lesara og einnig umfjöllun um sálmalesturinn og séra Hallgrím.
Lesarar með umsjónarmanni: Eiríkur Guðmundsson og Jórunn Sigurðardóttir.
Umsjón: Gunnar Stefánsson.
Fjallað um upprisuna og deilur um hana þegar spíritisminn kom til landsins. Rætt er við Hjalta Hugason prófessor, séra Sigurð Árna Þórðarson og séra Þórhall Heimisson um gildi upprisunnar fyrir kristna trú. Lesari: Stefán Jökulsson. Umsjón: Bergljót Baldursdóttir. (Frá 1999)
Fjallað um upprisuna og deilur um hana á síðustu öld þegar spíritisminn kom til landsins. Rætt er við Hjalta Hugason prófessor, séra Sigurð Árna Þórðarson og séra Þórhall Heimisson um gildi upprisunnar fyrir kristna trú.
Lesari: Stefán Jökulsson.
Umsjón: Bergljót Baldursdóttir.
Útvarpsfréttir.
Rúnar Róbertsson fer fyrstur á fætur og á notalega tónlistarstund með hlustendum í páskafríi.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Það er laglínan sem grípur þig en textinn sem heldur þér. Í þessu þætti fjalla fjölmargir ólíkir gestir um íslenska dægurlagatexta.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Í þættinum er fjallað um líf og dauða í íslenskum dægurlagatextum. Auðvitað er hægt að bera rök fyrir því að allir textar fjalli á einn eða annan hátt um lífið. En þegar kemur að dauðanum er það söknuðurinn sem er aðallega til umfjöllunar.
Viðmælendur í þættinum eru Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Erla Björnsdóttir, Örn Elías Guðmundsson (Mugison), Sesselía Ólafsdóttir og Davíð Þór Jónsson.
Meðal laga sem viðmælendurnir völdu eru Nótt, Ennþá man ég hvar, Ómissandi fólk, Með þér, Jón pönkari og Vegbúinn.
Útvarpsfréttir.
Andri Freyr Viðarsson verður með hlustendum á föstudeginum langa, hann verður á ljúfu nótunum og spilar lög í rólegri kantinum hvaðanæva að, frá mismunandi tímum.
Útvarpsfréttir.
Segja má að fyrirbærið popp fagni sjötíu ára afmæli í ár. Lovísa Rut kafar í tónlistarsöguna og rifjar upp mikilvæg augnablik sem mótað hafa poppið allt frá dögum Elvis Presley sem kannski var upphafið að þessu öllu. Bílskúrsrokk, Bítlarnir, diskó, rapp, streymisveitur og Taylor Swift koma m.a. við sögu.
Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir
Kvöldfréttir útvarps
Siggi Gunnars spilar soul og jazz sem lyftir andanum á páskum.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
Siggi Gunnars fór með hlustendur í suðrænt ferðalag og spilaði sömuleiðis lög um ástina.
Spiluð lög:
Mezzoforte - Nightfall
Masayoshi Takanaka - Brasilian Skies
Sergio Mendez - Mas Que Nada
Donny Hathaway - The Ghetto
Harold Melvin & the Blue Notes - Don't Leave Me This Way
Stevie Wonder - Knocks Me Off My Feet
Candi Staton - I'd Rather Be An Old Man's Sweetheart (Than A Young Man's Fool)
Doobie Brothers - What A Fool Believes
The Spinners - I'll Be Around
Roberta Flack - Making Love
Fréttastofa RÚV.
Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður.
Útvarpsfréttir.