Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Öld er liðin frá stofnun Barnavinafélagsins sumargjafar. Félagið sinnti margvíslegum verkefnum er varða börn en í lögum þess sagði að félagið skildi stuðla að andlegu og líkamlegum heilbrigði og þroska barna og vernda þau fyrir óhollum áhrifum. Kristín Hagalín Ólafsdóttir formaður sagði frá stofnun félagsins og starfsemi og Guðjón Friðriksson sagnfræðingur sagði frá bók sem félagið fól honum að skrifa í tilefni af aldarafmælinu um sögu barna í Reykjavík í hundrað ár. Hún kemur út í haust.
Borgþór Arngrímsson sagði tíðindi frá Danmörku og mest var fjallað um eldsvoðann í Börsen í síðustu viku. Eldsupptök eru enn óljós.
Á Borgarbókasafninu í Kringlunni er, í tilefni forsetakosninganna 1. júní, stillt fram bókum um forseta og bókum eftir forseta og forsetaframbjóðendur. Þær eru fjölmargar líkt og Guttormur Þorsteinsson bókavörður rakti.
Tónlist:
Vikivaki - Diddú,
Aravísur - Ingibjörg Þorbergs,
Búkolla í Bankastræti - Alfreð Clausen og brúðan Konni,
Kisa mín - Hanna Valdís,
Ég á lítinn skrýtinn skugga - Björgvin Halldórsson,
Lagið um það sem er bannað - Sveinbjörn I. Baldvinsson,
Der bor en ung pige - Anne Linnet,
On the sunny side of the street - Ella Firzgerald.
Gestur þáttarins er Ólína Kjærúlf Þorvarðardóttir deildarforseti Félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst. Ólína er doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði. Starfsævi hennar er afar fjölbreytt, hún hefur verið kennari, skólameistari við MÍ, fréttamaður hjá RÚV, þingmaður, borgarfulltrúi rithöfundur og björgunarsveitarkona með leitarhund svo eitthvað sé nefnt. Líf hennar ekki alltaf verið dans á rósum, m.a. fór hún í mál vegna ráðningar þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum sem hún vann.
Tónlist: River deep mountain high - Tina Turner.
Umsjón: Lísa Pálsdóttir
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Veðurstofa Íslands.
Útvarpsfréttir.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Dánarfregnir.
Útvarpsfréttir.
Fólk úr ýmsum áttum flytur stuttar hugleiðingar sem tengjast sama umfjöllunarefni.
Umsjón hefur Haukur Már Helgason rithöfundur
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Útvarpsfréttir.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Útvarpsfréttir.
Fólk og menning í strandbyggðum á Íslandi.
Umsjón: Pétur Halldórsson.
Rætt er við Jón Björnsson sjómann á Borgarfirði, sem man þar tímana tvenna, var til sjós en vann líka við bátasmíðar. En stundum gaf ekki á sjó og stundum voru lausar stundir. Þá var spilaður lomber. Jón var í annáluðum lomberklúbbi á Borgarfirði og spilaði með nokkrum öðrum. Hann segir frá klúbbi fjögurra lomberspilara sem stundum sátu við spilin kvöld eftir kvöld. Einnig er rætt við Jón Sigmarsson, rekur sauðfjárbú sitt með um fimm hundruð fjár en er líka formaður á litlum fiskibáti, ekki ósvipað því sem var á árum og öldum áður þegar vel megandi menn, oftast bændur, áttu bátinn en réðu til sín formann og aðra áhöfn. Jón Sigmarsson er alinn upp á Desjarmýri en fór fyrst til sjós sextán ára gamall. Umsjón: Pétur Halldórsson.
Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Þættir fyrir börn og fjölskyldur þar sem Margrét Kristín Blöndal útskýrir fyrirbæri úr heimi tónlistarinnar þannig að allir skilja.
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Tónleikahljóðritanir frá Sambandi evrópskra útvarpsstöðva.
Umsjón: Bergljót Haraldsdóttir og Guðni Tómasson.
Hljóðritun frá tónleikum sópransöngkonunnar Katharinu Ruckgaber, barítónsögvarans Marcus Farnsworth og Sholto Kynoch píanóleikara sem fram fóru í Fundacion Juan March í Madrid á síðasta ári.
Á efnisskrá eru sönglög og atriði úr óperum eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Franz Schubert og Joseph Haydn.
Umsjón: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.
Á morgun ætlar Bergur Vilhjálmsson, slökkviliðs, sjúkraflutningarmaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins, að ganga hundrað kílómetra til styrktar Píetasamtökunum. Og ýmist draga á eftir sér eða ýta á undan sleða með 100 kg af lóðum. Hann leggur af stað frá líkamsræktarstöðinni Ultraform á Akranesi og að Ultraform í Grafarholti og mun fara i gegnum Hvalfjörðinn. Bergur var á línunni.
Félagsvísindasvið Háskóla Íslands hleypir af stokkunum nýrri fyrirlestraröð í dag undir merkjum Þjóðarspegilsins. Árdís K. Ingvarsdóttir, aðjunkt í félagsfræði, er önnur þeirra sem flytja erindi í dag, en það ber titilinn: Útlendingur, innflytjandi eða fólk í leit að alþjóðlegri vernd. Málefni innflytjenda á Íslandi og fólks í leit að alþjóðlegri vernd eru reglulega í opinberri umræðu og þar eru réttindi fólks og skyldur, menning, lagalegt umhverfi, áhrif innflytjenda á hagkerfið, útgjöld og tekjur hins opinbera og vinnumarkaðurinn meðal þess sem er undir. Árdís kom til okkar og ræddi þessi mál.
Björn Berg Gunnarsson leit við í sitt reglulega fjármálaspjall og ræddi m.a. reiðufé og hönnun peningaseðla.
Lárus Jón Björnsson sjúkraþjálfari verður gestur okkar eftir átta fréttir en hann hefur sérhæft sig í neðanbeltis karlheilsu. Við ræddum það mikilvæga mál við Lalla eins og hann er kallaður sem og fleira, eins og t.d. jákvæða sálfræði sem hann segir hjálpa sér á ýmsum sviðum, bæði í vinnu og einkalífi.
Flest þekkjum við til starfseminnar á Sólheimum í Grímsnesi og þar er ekki síður rekin blómleg menningarstarfsemi en mannrækt og gróðurrækt. Öflugt leiklistarstarf er á staðnum og á morgun verður frumsýnd glæný leiksýning. Við fengum góða gesti, þá Eirík Þórðarson leikara, Ólaf Hauksson leikara og Hallbjörn Rúnarsson tónlistarstjóra og sögumann.
Á morgun, Sumardaginn fyrsta, munu Samgöngustofa, Sniglarnir, Ökukennarafélag Íslands, Kvartmíluklúbburinn og Ökuskóli 3 standa fyrir Vorfagnaði bifhjólafólks við Ökuskóla 3 í Álfhellu í Hafnarfirði. Þetta er í þriðja sinn sem Vorfagnaðurinn er haldinn, en á fyrri viðburði mættu um 200 aðilar á hjólum sínum og komu þeir víðs vegar að af landinu. Ingólfur Snorrason frá Kvartmíluklúbbnum kom til okkar.
Tónlist:
GDRN - Ævilangt.
Van Morrison - Brown eyed girl.
Daði Freyr - I'm not bitter.
Mannakorn - Gamli góði vinur.
KK og Magnús Eiríksson - Óbyggðirnar kalla.
Elton John - Crocodile Rock.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Ólafur Páll Gunnarsson leikur tónlist úr ýmsum áttum með sínu nefi.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Útvarpsfréttir.
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 14. - 21. apríl 2024.