Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Í Heimsglugganum sagði Bogi Ágústsson okkur meðal annars frá nýútkominni bók Liz Truss, skammlífasta forsætisráðherra Bretlands. Í bókinni fer Truss yfir dagana 49 í Downingstræti 10 og segir flest ef ekki allt sem miður fór vera öðrum að kenna. Ósiðleg og ólögleg framganga bresku götublaðanna var líka á dagskrá, sem og stutt umfjöllun um brunann í Kaupmannahöfn.
Svo töluðum við um hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Bílunum fjölgar en fjölgar stöðvunum nóg? Fjöldi fólks mátti bíða svo tímunum skipti eftir að koma bílnum í samband í Staðarskála um páskana. Ófremdarástand skapaðist, var sagt. Bilun var um að kenna. Ýmir Örn Finnbogason, framkvæmdastjóri N1, kom til okkar og ræddi um mikilvægi þéttara og áreiðanlegra hleðslustöðvanets og orkuskipti í samgöngum vítt og breitt.
Flest höfum við fylgst með eldsumbrotunum á Reykjanesskaga síðustu misseri, og mörg dáðst að þeim sem vinna hin ýmsu verk til að lágmarka skaðann sem af þeim hlýst eins og hægt er. Við ræddum um þau mál í síðasta hluta þáttarins, þegar við forvitnuðumst um vinnuna við hönnun hraunvarnargarðanna við Svartsengi og Grindavík. Hörn Hrafnsdóttir, vatnsauðlindaverkfræðingur hjá Verkís og aðjúnkt við Háskóla Íslands, sagði okkur frá.
Tónlist:
Í Reykjavíkurborg - Kristjana Stefánsdóttir, Ástvaldur Traustason.
Langomman = Ég langömmu á - Jógvan Hansen.
Tu vuò fà l'americano – Hetty and the Jazzato Band
Running - Jones, Norah.
Gestur þáttarins er Ólína Kjærúlf Þorvarðardóttir deildarforseti Félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst. Ólína er doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði. Starfsævi hennar er afar fjölbreytt, hún hefur verið kennari, skólameistari við MÍ, fréttamaður hjá RÚV, þingmaður, borgarfulltrúi rithöfundur og björgunarsveitarkona með leitarhund svo eitthvað sé nefnt. Líf hennar ekki alltaf verið dans á rósum, m.a. fór hún í mál vegna ráðningar þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum sem hún vann.
Tónlist: River deep mountain high - Tina Turner.
Umsjón: Lísa Pálsdóttir
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Jónatan Garðarsson kom til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Skapta Ólafssyni söngvara. Hann var með fyrstu rokksöngvurum Íslands og hann söng meðal fyrstur að syngja rokk á plötu hérlendis, sjónarmun á undan Erlu Þorsteins. Jónatan fór með okkur yfir feril Skapta, sem söng mörg lög sem urðu gríðarlega vinsæl og skipa sér í dag meðal klassískra dægurlaga, m.a. Allt á floti, sem við heyrðum einmitt á undan viðtalinu.
Í næstu viku er alþjóðlegur dagur leiðsöguhundsins. Á þeim degi mun Blindrafélagið fara af stað með verkefni sem heitir Vinir leiðsöguhunda, þar sem fyrirtæki og stofnanir geta fengið merki í gegnum samfélagsmiðla Blindrafélagsins og flaggað þeim á sínum miðlum og með límmiðum í raunheimum til að sýna að vel sé tekið á móti leiðsöguhundum og notendum þeirra. Þorkell Steindal, formaður leiðsöguhundadeildar og Kristinn Halldór Einarsson framkvæmdastjóri Blindrafélagsins komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá leiðsöguhundum og þessu nýja verkefni.
Við forvitnðumst um karlakóra í þættinum í dag, en á laugardaginn fara fram þrennir vortónleikar hjá þremur karlakórum í þremur kirkjum. Þetta eru karlakórarnir Söngbræður, Karlakór Kjalnesinga og Karlakórinn Esja, en samanlagt eru um 150 meðlimir í þessum kórum og sumir félagar aka 260 kílómetra á kóræfingar. Við fengum einn fulltrúa úr hverjum af þessum kórum, Gunnar Örn Guðmundsson frá Söngbræðrum, Bjarka Guðmundsson úr Karlakóri Kjalnesinga og Guðfinn Einarsson úr Karlakórnum Esju í viðtal í dag til að segja okkur frá starfseminni og stemningunni að vera í karlakór.
Tónlist í þættinum
Allt á floti / Skapti Ólafsson (Lionel Bart, Tommy Steele & M. Pratt, texti Björn Bragi Magnússon og Jón Sigurðsson)
Sófasjómaðurinn / Sniglabandið og Skapti Ólafsson (Pálmi J. Sigurhjartarson og Kári Waage)
You’ve Lost That Lovin’ feeling / Righteous Brothers (Barry Mann, Cynthia Weil & Phil Spector)
Undir dalanna sól / Karlakórinn Heimir (Björgvin Þ. Valdimarsson og Hallgrímur Jónsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Flóknar samningaviðræður við lánastofnanir hafa tafið gerð kaupsamninga við Grindvíkinga. Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir að það hafi verið mikil bjartsýni að ætla að afgreiða fasteignakaupin á nokkrum vikum. Kaup hafa verið samþykkt á 126 eignum.
Stórlega hefur dregið úr urðun á sorpi í Álfsnesi. Til skoðunar er að reisa stóra sorpbrennslu hér á landi sem gæti brennt 140 þúsund tonn af sorpi árlega.
Stjórnarþingmenn segja að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafi unnið stórsigur þegar vantrauststillaga var felld í gær. Stjórnarandstaðan var sökuð um málþóf og tímaeyðslu á Alþingi í morgun.
Dýraverndunarsamtökin World Wildlife Fund hóta að stefna norska ríkinu fyrir áætlanir um að bora eftir málmum á hafsbotni við strendur Noregs.
Flugvöllurinn í Dubai, sem er næststærsti flugvöllur heims, er nánast óstarfshæfur vegna úrhellisrigningar. Ekki hefur rignt meira þar á einum degi í 75 ár.
Smábátaeigendur lýsa vonbrigðum sínum með óbreyttar reglur um strandveiðar í ár. Þeir vænta þess að nýr matvælaráðherra auki heimildir til veiðanna. Annað sé ávísun á óbreytt ástand.
Mögulega verður hægt að ráðast fyrr í endurbætur á ryðguðu og leku þaki Fjarðabyggðarhallarinnar á Reyðarfirði. Ný lausn til að einangra og klæða þök gæti lækkað kostnað um helming.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Samheldin fjölskylda stofnaði fyrirtækið Fischer til að geta ræktað listsköpun í sameiningu. Fyrirtækið hefur þróast úr því að vera lítil tilraunagerð í kjallara yfir í framleiðslufyrirtæki með vörur markaði í Bretlandi, Bandaríkjunum og Asíu. Ingibjörg, Lilja og Sigurrós Birgisdætur, Sindri Már Sigfússon og Kjartan Hólm ræddu við Þóru Tómasdóttur um ævintýri Fischer.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Margir kannast við ljóð Jónasar Hallgrímssonar „Illur lækur" sem hefst á orðunum „Nú fór illa, móðir mín". Leikin verða lög við þetta ljóð eftir nokkur íslensk tónskáld. Þar á meðal er Atli Heimir Sveinsson, en lag hans er til í tveimur útgáfum, en Atli Heimir samdi fyrri útgáfu lagsins þegar hann var ekki nema 16 ára. Ljóð Jónasar er byggt á spænsku þjóðkvæði og í þættinum verður sagt frá rannsóknum Sveins Yngva Egilssonar, en honum tókst að finna spænska frumkvæðið eftir nokkra leit. Þegar það er skoðað kemur í ljós að kvæði Jónasar leynir á sér, við fyrstu sýn virðist það vera saga um litla stelpu sem bleytir kjólinn sinn í læknum, en í rauninni hefur ljóðið tvíræða merkingu. Einnig verður flutt hljómsveitarsvíta Páls Ísólfssonar „Úr myndabók Jónasar Hallgrímssonar", en hún kom nýlega út á geislaplötu hjá Chandos. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Anna Marsibil Clausen og Snorri Rafn Hallsson.
Útvarpsfréttir.
Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við fólk.
Þórarinn Björnsson heimsækir Þórnýju Þórarinsdóttur Kennara.
Þórný heldur áfram að rekja minningar sínar. Þau Haukur Eiríksson gifta sig 30. ágúst 1951 og eignast sitt fyrsta barn. Fyrstu hjúskaparárin búa þau á Akureyri og flytja síðar til Reykjavíkur. Og sagan heldur áfram...
Tónlistin í þáttunum um líf og ævi Þórnýjar, er flutt og leikin af sonum hennar, Haraldi, Eiríki og Hauki. Lokalagið syngur eiginmaður hennar, Haukur Eiríksson, sem lést árið 1963
Útvarpsfréttir.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Útvarpsfréttir.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Stolinn súpuilmur (Nígería)
Strákurinn sem fór í átkeppni við tröll (Noregur)
Kirkjusmiðurinn á Reyni (Ísland)
Leikraddir:
Arna Rún Gústafsdóttir
Helgi Már Halldórsson
Jóhannes Ólafsson
Sigyn Blöndal
Ragnar Eyþórsson
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Hlustendum veitt innsýn í efnisskrá tónleika kvöldsins.
Beinar útsendingar frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Bein útsending frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Eldborg, Hörpu.
Á efnisskrá:
*Sinfónía nr. 41, Júpíter-sinfónían eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
*Burleske eftir Richard Strauss.
*Tod und Verklärung, Dauði og uppljómun, tónaljóð eftir Richard Strauss.
Einleikari: Marianna Shirinyan.
Stjórnandi: Eva Ollikainen.
Kynnir: Ása Briem.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Jónatan Garðarsson kom til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Skapta Ólafssyni söngvara. Hann var með fyrstu rokksöngvurum Íslands og hann söng meðal fyrstur að syngja rokk á plötu hérlendis, sjónarmun á undan Erlu Þorsteins. Jónatan fór með okkur yfir feril Skapta, sem söng mörg lög sem urðu gríðarlega vinsæl og skipa sér í dag meðal klassískra dægurlaga, m.a. Allt á floti, sem við heyrðum einmitt á undan viðtalinu.
Í næstu viku er alþjóðlegur dagur leiðsöguhundsins. Á þeim degi mun Blindrafélagið fara af stað með verkefni sem heitir Vinir leiðsöguhunda, þar sem fyrirtæki og stofnanir geta fengið merki í gegnum samfélagsmiðla Blindrafélagsins og flaggað þeim á sínum miðlum og með límmiðum í raunheimum til að sýna að vel sé tekið á móti leiðsöguhundum og notendum þeirra. Þorkell Steindal, formaður leiðsöguhundadeildar og Kristinn Halldór Einarsson framkvæmdastjóri Blindrafélagsins komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá leiðsöguhundum og þessu nýja verkefni.
Við forvitnðumst um karlakóra í þættinum í dag, en á laugardaginn fara fram þrennir vortónleikar hjá þremur karlakórum í þremur kirkjum. Þetta eru karlakórarnir Söngbræður, Karlakór Kjalnesinga og Karlakórinn Esja, en samanlagt eru um 150 meðlimir í þessum kórum og sumir félagar aka 260 kílómetra á kóræfingar. Við fengum einn fulltrúa úr hverjum af þessum kórum, Gunnar Örn Guðmundsson frá Söngbræðrum, Bjarka Guðmundsson úr Karlakóri Kjalnesinga og Guðfinn Einarsson úr Karlakórnum Esju í viðtal í dag til að segja okkur frá starfseminni og stemningunni að vera í karlakór.
Tónlist í þættinum
Allt á floti / Skapti Ólafsson (Lionel Bart, Tommy Steele & M. Pratt, texti Björn Bragi Magnússon og Jón Sigurðsson)
Sófasjómaðurinn / Sniglabandið og Skapti Ólafsson (Pálmi J. Sigurhjartarson og Kári Waage)
You’ve Lost That Lovin’ feeling / Righteous Brothers (Barry Mann, Cynthia Weil & Phil Spector)
Undir dalanna sól / Karlakórinn Heimir (Björgvin Þ. Valdimarsson og Hallgrímur Jónsson)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.
Aðalfundur ADHD samtakanna skorar á Heilbrigðisráðherra að grípa nú þegar til aðgerða vegna þess kerfishruns sem blasir við í þjónustu hins opinbera við fólk með ADHD. Vegna aðgerðarleysis stjórnvalda á liðnum árum hafa biðlistar eftir greiningu og meðferð meira en tvöfaldast og nú bíða um fjögur þúsund einstaklingar eftir að komast í greiningarferli. Biðtími fullorðinna eftir ADHD greiningu og meðferð verður að óbreyttu vel á annan áratug hjá þeim sem nú hefja ferlið samkvæmt tilvísun Heilsugæslulæknis. Þetta segir í ályktun aðalfundar ADHD samtakanna. Við fengum Vilhjálm Hjálmarsson, formaður samtaka til okkar.
Hvað er réttast að gera þegar vísindamaður greinir heilbrigða manneskju með gen sem gæti valdið sjúkdómi en mun líklegast ekki gera það? Þetta og fleira verður til umræðu á málþingi Vísindasiðanefndar á föstudag. Þorvarður Löve, formaður VSN, verður þar fundarstjóri og mætti til okkar í spjall.
Skýrsla Hilary Cass, fyrrum forseta félags barnalækninga á Bretlandi, sem kom út á dögunum og var unnin að ósk breskra heilbrigðisyfirvalda -hefur verið talsvert til umræðu. Skýrslan tekur fyrir þjónustu við börn og ungmenni með kynama/kynmisræmi. Við ræddum málið við Bjarndísi Helgu Tómasdóttur formann Samtakanna 78.
Í fyrrasumar skipaði Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra starfshóp til að vinna tillögur um aðgerðir sem stuðlað geta að því að efla samfélagið á Langanesi. Áttu tillögurnar m.a. að snúa að friðlýsingu á hluta Langaness, t.d. með stofnun þjóðgarðs, eflingu hringrásarhagkerfisins og grænni atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Jafnframt verði hugað að bættu orkuöryggi svæðisins. Njáll Trausti Friðbertson, þingmaður Sjálfsstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, var formaður starfshópsins. Hann kom til okkar.
Boðað hefur verið til mótmæla á Austurvelli seinnipartinn í dag, þar sem vinnubrögðum Fasteignafélagsins Þórkötlu verður mótmælt. Borið hefur á mikilli óánægju meðal Grindvíkinga, sem vilja fá eignir sínar keyptar upp sem fyrst. Grindvíkingurinn Sverrir Árnason skipuleggur mótmælin og við heyrðum í honum.
Dagur verkfræðinnar fer fram á morgun föstudag á Hilton Reykjavík Nordica. Fjöldi erinda er á dagskrá. Eitt þeirra ber heitið Úrgangi breytt í orku og okkur fýsti að vita meira um það. Niðurstöður nýrrar skýrslu sýna að hagkvæmara er að reisa brennslustöð fyrir úrgang hér á landi en að flytja hann út til brennslu erlendis. Til að segja okkur nánar frá þessu og frá Degi verkfræðinnar kom til okkar Árni B. Björnsson framkvæmdarstjóri verkfræðingafélagsins.
Við hringdum í Ingu Sæland og fengum viðbrögð hennar við atkvæðagreiðslunni í gærkvöldi um vantrauststillögu Flokks fólksins og Pírata.
Lagalisti:
Björg Pé - Reiknaðu með mér
Kate Bush - Running Up That Hill
Depeche Mode - Enjoy The Silence
Bubbi Morthens - Skríða
America - A Horse With No Name
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Doddi lék á alls oddi þegar hann stillti þjóðinni upp gegn Andra í Gosar gegn þjóðinni. Elísabet Ormslef og Stefanía Svavars mættu og sungu Adel syrpu óaðfinnanlega!
Lagalisti þáttarins:
Haukar - Ferðin mín til Frakklands.
BRIMKLÓ - Skólaball.
LEAVES - Catch.
Ngonda, Jalen - Illusions.
ARETHA FRANKLIN AND GEORGE MICHAEL - I Knew You Were Waiting (For Me).
THE JAM - That's Entertainment.
SÁLIN HANS JÓNS MÍNS - Hvar Er Draumurinn?.
MASSIVE ATTACK - Protection.
Lifun - Fögur fyrirheit.
Júlí Heiðar, PATRi!K - Heim.
HAPPY MONDAYS - Step On.
DJ Shadow - You Played Me.
NÝDÖNSK - Flugvélar.
CREED - With Arms Wide Open.
Jóipé x Króli, JóiPé, USSEL, Króli - Í Fullri Hreinskilni.
THE B-52'S - Love Shack.
Lipa, Dua - Training Season.
Helgi Björnsson - Kókos og engifer.
Grande, Ariana - We can't be friends (wait for your love).
GDRN - Þú sagðir.
MADNESS - Baggy Trousers.
UXI - Paralyzed.
JAMIROQUAI - Little L.
FOO FIGHTERS - Love Dies Young.
FLOTT - L'amour.
ICEGUYS - Rúlletta.
THE COMMON LINNETS - Calm After The Storm (Eurovision 2014 Holland).
Canned Heat - On the Road again
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Flóknar samningaviðræður við lánastofnanir hafa tafið gerð kaupsamninga við Grindvíkinga. Framkvæmdastjóri Þórkötlu segir að það hafi verið mikil bjartsýni að ætla að afgreiða fasteignakaupin á nokkrum vikum. Kaup hafa verið samþykkt á 126 eignum.
Stórlega hefur dregið úr urðun á sorpi í Álfsnesi. Til skoðunar er að reisa stóra sorpbrennslu hér á landi sem gæti brennt 140 þúsund tonn af sorpi árlega.
Stjórnarþingmenn segja að ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar hafi unnið stórsigur þegar vantrauststillaga var felld í gær. Stjórnarandstaðan var sökuð um málþóf og tímaeyðslu á Alþingi í morgun.
Dýraverndunarsamtökin World Wildlife Fund hóta að stefna norska ríkinu fyrir áætlanir um að bora eftir málmum á hafsbotni við strendur Noregs.
Flugvöllurinn í Dubai, sem er næststærsti flugvöllur heims, er nánast óstarfshæfur vegna úrhellisrigningar. Ekki hefur rignt meira þar á einum degi í 75 ár.
Smábátaeigendur lýsa vonbrigðum sínum með óbreyttar reglur um strandveiðar í ár. Þeir vænta þess að nýr matvælaráðherra auki heimildir til veiðanna. Annað sé ávísun á óbreytt ástand.
Mögulega verður hægt að ráðast fyrr í endurbætur á ryðguðu og leku þaki Fjarðabyggðarhallarinnar á Reyðarfirði. Ný lausn til að einangra og klæða þök gæti lækkað kostnað um helming.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Glæný íslensk tónlist úr ýmsum áttum.
Umsjón: Þorsteinn Hreggviðsson.
Fréttastofa RÚV.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Útvarpsfréttir.
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.