Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Teiknimyndaþættir um Lóu sem er 12 ára og býr með mömmu sinni í stórborg. Lóu finnst hún ekki lengur vera barn og ekki alveg vera unglingur ennþá og reynir að takast á við allar þær tilfinningar sem vakna þegar unglingsárin eru að hefjast.
Skemmtilegir þættir sem um Múmínálfana sem allir ættu að þekkja, í nýju útliti úr smiðju Tove Janson
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Lím og stjórnlausir krakkar eru ekki góð hugmynd! Eddi strútapabbi kemst að því í þessum þætti!
Edduverðlaunaþættir frá 2016 úr smiðju Ævars vísindamanns. Sem fyrr kannar Ævar furðulega og spennandi hluti úr heimi vísindanna. Hann fer meðal annars í svaðilför til Surtseyjar og rannsaka stærstu tilraun í heimi. Stórskemmtilegir þættir fyrir alla fjölskylduna. Dagskrárgerð: Gunnar B. Gudmundsson og Ævar Þór Benediktsson.
Í þættinum fjallar Ævar um konur í vísindum. Við heimsækjum fornleifafræðing og skoðum beinagrind, förum út á land og rannsökum verkefni hjá Landvernd, fjöllum um konurnar sem björguðu NASA, fræðumst um Samtök kvenna í vísindum og svo ætlar hin eina sanna Sprengju-Kata að kíkja í heimsókn.
Fréttatengdur skemmtiþáttur þar sem keppendur spreyta sig á misalvarlegum spurningum sem sóttar eru í glóðvolgar fréttir og gamlar í bland. Stjórnandi og spyrill er Kristjana Arnarsdóttir og henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Framleiðsla: RÚV.
Keppendur kvöldsins eru Gunnar Reynir Valþórsson, Júlía Margrét Einarsdóttir, Kamilla Einarsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Fjölmiðlamaðurinn Andri Freyr Viðarsson kannar sívaxandi ferðamannastraum til Íslands og reynir m.a. að slá á fordóma sína í garð erlendra ferðamanna. Andri ákveður að leggja land undir fót og upplifa hvernig það er að vera ferðamaður í eigin landi en á ferðalagi sínu um borg og bæi, jökla og eldfjöll, fossa og sanda uppgötvar hann landið sitt upp á nýtt og eignast nýja vini, bæði erlenda og innlenda. Dagskrárgerð: Kristófer Dignus. Framleiðandi: Pegasus.
Í Hafnarfirði hittir Andri hinn litríka eiganda KúKú Campers áður en hann heldur í austur. Andri drífur sig í ferð um gullna hringinn í grenjandi rigningu, skoðar Eldfjallasafnið við Þorvaldseyri, íhugar að tjalda við Skógarfoss en ákveður að sleppa því og fá sér frekar fisk og franskar á sveitagrilli Míu. Andri fer loks í pílagrímsferð niður að Douglas 8 flakinu sem Íslandsvinurinn ástæli, Justin Bieber, gerði heimsfrægt um árið.
Ferskur og hispurslaus þáttur fyrir ungt fólk. Katrín og Unnsteinn halda áfram að kryfja ýmis óvenjuleg en aðkallandi málefni út frá skemmtilegu sjónarhorni og leita svara við spurningum sem brenna á ungu fólki í dag. Umsjón: Katrín Ásmundsdóttir og Unnsteinn Manuel Stefánsson. Framleiðandi: Sævar Guðmundsson.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju kvöldsins fjöllum við um bókina Björn Pálsson flugmaður og þjóðsagnapersóna eftir Jóhannes Tómasson. Við förum norður á Akureyri og skoðum tvær af flugvélum Björns sem þar eru geymdar í fylgd Steinunnar Maríu Sveinsdóttur sem stýrir Flugsafni Íslands. Björn naut gríðarlegrar aðdáunar í lifanda lífi enda var hann frumkvöðull í sjúkraflugi og víst að hann bjargaði mörgum mannslífum. Frá Akureyri förum við á Siglufjörð og hittum Sigurð Ægisson sóknarprest en hann hefur fengist við margvísleg ritstörf, skrifað um þjóðleg fræði, ljósmyndað og ritað um fugla og hvali, en nýjasta bók hans nefnist Völvur á Íslandi. Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir segir okkur frá nýrri bók eftir sig sem heitir einfaldlega Einmana og fjallar, eins og titillin gefur til kynna, um einmanaleikann í ýmsum myndum, hjá ungum og öldnum. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Möndlu eftir Hildi Knútsdóttur, Tæpasta vað eftir Jón Hjartarson og Lofgjörð til Katalóníu eftir George Orwell.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Í Landanum í kvöld förum við i snjóflóðahundapróf við Oddskarð, við búum til fiskisnakk á Hellu, við heimsækjum bifreiða- og vélaverkstæði og því tengt búum við til sneriltrommur úr bílfelgum.
Norsk fræðsluþáttaröð um hressandi tilraunir. Þeir Rune Nilson og Per Olav Alvestad láta sér detta ýmislegt misgáfulegt í hug og hrinda því yfirleitt í framkvæmd.
Sænskir heimildarþættir frá 2021. Stór hluti daglegs lífs okkar er stafrænn - en hversu örugg er staða okkar í stafrænum heimi? Í þáttunum taka þrautreyndir tölvuhakkarar sig til og brjótast inn í tölvur hjá einstaklingum og fyrirtækjum, bara til að sýna okkur hinum hversu sáraeinfalt það er að komast yfir gögn - og líf - fólks með því að hakka tilveru þeirra.
Þáttaröð í 12 hlutum. Í hverjum þætti er fjallað um tvær af þeim 24 þjóðum sem taka þátt á EM karla í fótbolta í Þýskaland. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um evrópumeistaratitilinn.
Þáttur um Íslandsmótin í rallý, torfæru og ýmsu öðru. Dagskrárgerð: Bragi Þórðarson.
Stuttir heimildaþættir um ólíkar tegundir myndavéla í gegnum tíðina, fólkið sem notaði þær og myndirnar sem voru teknar með þeim.
Töfratú er fantasíuland dásamlegra álfa og hafmeyja þar sem raunveruleg viðfangsefni á borð við systkinaerjur, sanngirni og sjálfstraust eru könnuð nánar.
Kortó, Mýsla og Eik eru álveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta og þar af leiðandi fá aðgang að nýjustu vistvísindunum til geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Fjórir krakkar eiga að vinna skólaverkefni um víkingatímabilið á Þjóðminjasafninu en leysa í staðinn ævafornan víking úr álögum. Krakkarnir þurfa að leysa sérstakar víkingaþrautir til að hjálpa víkingnum að komast til Valhallar - þangað sem fallnar víkingahetjur fara eftir að hafa dáið í bardaga.
Krakkarnir komast að því hvað rúnirnar þýðia og nú þurfa þau að leysa næstu víkingaþraut - en þar koma herklæði við sögu.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson.
Margrét Emilsdóttir hentist af stað þegar hún heyrði auglýst til sölu dúkkusafn í útvarpinu fyrir nokkrum árum. Hún hringdi samstundis í manninn sinn sem á sendiferðarbíl en vildi fyrir alla muni ekki segja honum hvað til stóð. „Svo hoppaði ég út úr bílnum og sagði að ég væri að kaupa fleiri hundruð dúkkur og svo hljóp ég inn. Þetta voru átján stórir pappakassar,“ segir Margrét. Safnið taldi þá 300 dúkkur en síðan hafa 1200 vinkonur bæst í hópinn og búa þær því 1500 saman á Flúðum. Þar eru þær í góðu yfirlæti því Margrét gerir á þær föt, þrífur þeim og greiðir hárið. Raunar hafa sjö lítrar af mýkingarefni farið í hárið á þeim stöllum. Safnið hefur verið opnað fyrir almenningi og þar hefur alls kyns fólk látið sjá sig, þó ekki miðlar sem er illa við safnið. „Ef þær gætu nú talað þá myndi maður heyra ýmislegt.“ Landinn skoðaði dúkkusafnið hennar Margrétar. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Karl Sigtryggsson.
Lottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Sjónvarpsþáttaröð fyrir alla fjölskylduna sem gerist í Lundúnum á Viktoríutímanum. Hetty Feather dvelur enn á Foundling-barnaheimilinu og sem fyrr gengur hún vasklega fram í baráttu sinni gegn harkalegum aðbúnaði barnanna og gegn erkióvininum, hinni illskeyttu og undirförlu Bottomly ráðskonu.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Bandarísk gamanmynd frá 2008. Þegar hjónin John og Jenny eignast Marley er hann líflegur og krúttlegur hvolpur. Þegar hann vex úr grasi verður hann sérlega fjörugur og fyrirferðarmikill 50 kílóa hundur og það getur reynt á fjölskyldulífið með skondnum afleiðingum. Leikstjóri: David Frankel. Aðalhlutverk: Owen Wilson, Jennifer Aniston og Kathleen Turner.
Bandarísk bíómynd frá 2017. Hópur hermanna sem snýr aftur heim eftir herþjónustu í Írak á í erfiðleikum með að aðlagast fjölskyldu og daglegu lífi á ný. Þó þeir hafi sloppið án meiðsla bera þeir ör á sálinni eftir stríðið og það ógnar lífi þeirra löngu eftir að þeir hafa yfirgefið vígvelli Íraks. Leikstjóri: Jason Hall. Aðalhlutverk: Miles Teller, Beulah Koale og Joe Cole. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.