Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Ný könnun sýnir að stór hluti kennara sér framtíð sína ekki inni í skólunum. Álag í starfi, fjöldi nemanda og agi er meðal þess sem nefnt er sem skýring. Rætt við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambands Íslands, og Guðbjörgu Írisi Atladóttur, trúnaðarmann kennara í Rimaskóla.
Afhverju fara flestar framkvæmdir langt fram úr áætlun? Dan Gardner er bandarískur sérfræðingur og rithöfundur sem mun fjalla um þetta á IMaR ráðstefnunni sem fer fram á morgun. Hann segir engan mun á opinberum og einkaframkvæmdum og skýringin á framúrkeyrslunni sé einföld.
Menntabúðir voru haldnar í vikunni en þar kemur skólafólk saman og skoðar hvernig nýjasta tækni og vísindi nýtist í skapandi skólastarfi.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Foldaskóli, Grunnskóli Bolungarvíkur, Grunnskóli Hornafjarðar, Grunnskólinn á Ísafirði, Grunnskólinn í Borgarnesi, Háaleitisskóli Ásbrú, Háteigsskóli, Rimaskóli, Vallaskóli, Víkurskóli, Víkurskóli Vík og Grunnskólinn á Hellu mæta til leiks.
Nýir íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Auri Aurangsari Hinriksson er engin venjuleg kona á níræðisaldri. Hún er fædd og uppalin á Srí Lanka en flutti til Ísafjarðar á níunda áratugnum með eiginmanni sínum, Þóri Hinrikssyni heitnum. Auri hefur verið örlagavaldur í lífi margra því hún hefur í yfir þrjátíu ár aðstoðað fólk sem leitar uppruna síns á Srí Lanka. Hún var lengi kennari á Ísafirði og lauk doktorsprófi í ensku sjötug að aldri.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Akurskóli, Dalskóli, Fellaskóli, Flóaskóli, Flúðaskóli, Grundafjarðarskóli, Hvolsskóli, Landakotsskóli, Klébergsskóli, Laugalækjarskóli, Ölduselsskóli og Stóru-Vogaskóli mæta til leiks.
Stuttmyndir sem gerðar eru eftir handritum krakka sem að send voru inn í Sögur.
Telma á erfitt með að umgangast hina krakkana í bekknum sínum. Einn daginn kynnist hún nýjum strák á bókasafninu sem er líka útundan eins og hún, drauginum Konráð.
Höfundur: Urður Eir Baldursdóttir, 9 ára
Leikstjórn og framleiðsla: Bergur Árnason
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Hlíðaskóli, Holtaskóli, Lindaskóli, Réttarholtsskóli, Sæmundarskóli, Salaskóli, Skarðshlíðarskóli, Smáraskóli, Snælandsskóli, Vatnsendaskóli, Víðistaðaskóli og Vogaskóli mæta til leiks.
Breskir spennuþættir frá 2023 í leikstjórn Dries Vos. Ung hjón flytja í nýtt og glæsilegt hverfi og horfa björtum augum til framtíðar. Fljótlega eftir flutninginn vingast þau við nágrannahjón sín en sá vinskapur á eftir að snúa ástarlífi unga parsins á hvolf og draga ófyrirséðan dilk á eftir sér. Þættirnir eru byggðir á hollensku sjónvarpsþáttaröðinni New Neighbours. Aðalhlutverk: Sam Heughan, Eleanor Tomlinson og Jessica De Gouw. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Eamonn Walker og David Eignberg. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir sakamálaþættir frá 2023. Þrír nýliðar hefja störf í lögreglunni í Belfast. Álagið sem fylgir því að vera fyrsti viðbragðsaðili á vettvang er gríðarlegt og hætturnar miklar. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Martin McCann. Leikstjóri: Gilles Bannier. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2019. Lögreglufulltrúinn Humberto og samstarfskona hans, Alice, rannsaka dularfull andlát tveggja ungra kvenna. Aðalhlutverk: Adriano Luz, Jani Zhao og Afonso Pimentel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.