Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.
Kortó, Mýsla og Eik eru ákveðin að sigra Hvalabikarkeppnina, drónaflugkeppni sem leiða á í ljós hver verður arftaki vistfræðisnillingsins Hvals Hvíta.
En Tíkíliðið sækist ekki aðeins eftir sigri; aðeins með því að komast í læri hjá Hval Hvíta fá þau aðgang að nýjustu vistvísindunum og geta forðað því að eyjan þeirra hverfi í hafið.
Í Nei sko ætlar Sævar Helgi Bragason að fræða okkur um hin ýmsu vísindi í okkar daglega lífi og gera flottar tilraunir - sumar getum við gert heima en aðrar eru aðeins hættulegri.
Í Nei sko í dag ætlar að Sævar Helgi að skoða hluti og gamla tækni og hvernig tæknin breytist með tímanum. Til að ræða þetta koma þau Guðrún og Bjarki sem kepptu í Víkingaþrautinni.
Þrjár leiknar stuttmyndir úr smiðju ungra höfunda sem framleiddar voru í tengslum við verkefnið Sögur hjá KrakkaRÚV. Handritin að stuttmyndunum þremur, Fimmhundruðkallinn, Dularfulla hálsmenið, Bókrollan og stuldurinn á hálsfestinni, voru valin í handritasamkeppni Sagna og eru höfundarnir á aldrinum 9-12 ára.
Í myndinni Fimm Hundruð kall þurfa þær Sigrún og Guðrún að ná til baka 500 krónum sem er rænt frá þeim. En þær komast að því að það er mun meira en bara 500 krónur í húfi.
Handrit: Salka Björt Björnsdóttir
Aðalhlutverk: Guðrún Gunnarsdóttir, Judith Stefnisdóttir og Fjölnir Gíslason
Leikstjórn : Sturla Holm Skúlason
Bíómynd eftir Gísla Snæ Erlingsson frá 2000. Undarlega veru rekur á ísjaka að ströndum afskekkts byggðarlags á Íslandi. Veturinn hefur verið erfiður og ekki þykir þorpsbúum ósennilegt að þessi vera og dularfull hegðan hennar sé ástæðan fyrir harðærinu. Þegar drengurinn Bóas vingast við hinn ókunna gest reynist hann færa fólkinu blessun, gleði og björg í bú. Meðal leikenda eru Hjalti Rúnar Jónsson, Hans Tittus Nakinge, Pálmi Gestsson og Elva Ósk Ólafsdóttir.
Spurningakeppni framhaldsskólanna þarf vart að kynna og einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar eru Steinþór Helgi Arnsteinsson og Bryndís Björgvinsdóttir en hún er einnig dómari keppninnar. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Nýir íslenskir viðtalsþættir þar sem skyggnst er inn í líf fólks sem nýtur eftirlaunaáranna á aðdáunarverðan og jákvæðan hátt. Í hverjum þætti fáum við innsýn í líf einnar manneskju, heyrum sögu hennar, lífssýn og lærdóm sem hún hefur dregið af lífinu, auk þess sem við ræðum þær áskoranir sem fylgja því að eldast. Dagskrárgerð: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Framleiðsla: Elín Sveinsdóttir.
Gestur Ólafsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, er með mörg járn í eldinum þótt hinn svokallaði eftirlaunaaldur hafi bankað upp á hjá honum fyrir nokkrum árum. Gestur starfar enn sem arkitekt auk þess sem hann þróar og ræktar þörunga til framleiðslu afurða og til manneldis. Hann er mikill íþróttamaður og hleypur alla morgna með hundinum sínum, Jakobínu, auk þess sem hann rær kajak og gengur á fjöll.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Tvíburasystur sem vistaðar voru á meðferðarheimilinu Laugalandi í Eyjafirði segja að það hafi ekki verið þess virði að stíga fram og lýsa ofbeldi sem þær og fleiri stúlkur urðu fyrir. Rannsóknarskýrsla sem unnin var um málið hafi verið tekin úr birtingu vegna formgalla og á meðan fái þær engin svör frá stjórnvöldum eða bætur. Kastljós ræddi við Gígju og Brynju Skúladætur.
Bergur Vilhjálmsson slökkviliðsmaður ætlar að ganga frá Akranesi til Reykjavíkur á tveimur dögum - með 200 kíló í eftirdragi.
Menningarfréttir eru líka á sínum stað þar sem við flökkum milli Hönnunarmars, Barnamenningarhátíðar og tónleikasýningarinnar Commitments.
Beinar útsendingar frá bikarkeppni karla í fótbolta.
Bein útsending frá leik ÍBV og Grindavíkur í 32 liða úrslitum í bikarkeppni karla í fótbolta.
Þáttaröð um samband mannsins við dýr, allt frá skordýrum og býflugum til sela. Kolbrún Vaka hittir skemmtilegt fólk sem varpar ljósi á sérstakt samband okkar mannfólksins við dýrin. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Við veltum fyrir okkur hvers konar hundur Sámur Gunnars á Hlíðarenda hefur verið. Spáum í dýrasiðfræði: Hvers vegna elskum við sum dýr en svo er okkur sama um önnur? Heimsækjum fjölskylduna í Stóru-Sandvík sem var að fá sér hvolp og hittum dýrateiknarann Jón Baldur Hlíðberg.
Þáttaröð í sex hlutum þar sem Steiney Skúladóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir kryfja til mergjar geðheilsu og greiningu á andlegri vanheilsu ungs fólks, en kvíði og aðrir andlegir kvillar eru sívaxandi vandamál. Í þáttunum er fjallað um nokkra tiltekna kvilla, meðferð og mögulegar úrlausnir, algengar mýtur og rætt við fólk sem greinst hefur með geðröskun, aðstandendur og fagfólk. Þættirnir eru sjálfstætt framhald Edduverðlaunaþáttaraðarinnar Framapots. Leikstjóri: Arnór Pálmi Arnarsson. Framleitt af Sagafilm.
Átraskanir eru mikið samfélagsmein og jafnframt geðröskun sem oft er erfitt að bera kennsl á. Samfélagsmiðlar, staðalímyndir og útlitsdýrkun ýta undir brenglaða sjálfsmynd ungs fólks og átraskanir virðast verða æ algengari í hinum vestræna heimi. Stelpurnar kanna málið í þessum þætti, þar sem Sigurlaug Sara heimsækir sálfræðing, þær hitta aðgerðateymi Hvíta bandsins og halda matarboð með ungu fólki sem hefur glímt við átröskun.
Dönsk matreiðsluþáttaröð. Mette Blomsterberg reiðir fram kræsingar sem henta vel á sumrin.
Þáttur um mannlífið í landinu. Landinn leitar uppi skemmtilegt fólk jafnt í borg sem sveit og skoðar áhugaverða staði landshorna á milli. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Edda Sif Pálsdóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Sigrún Þuríður Runólfsdóttir og Þórdís Claessen. Dagskrárgerð: Magnús Atli Magnússon, Jóhannes Jónsson, Björgvin Kolbeinsson og Elvar Örn Egilsson.
Í Landanum í kvöld förum við til Burkina Faso, við kynnumst ungum sjampóframleiðanda, við heimsækjum tréskurðarmann og við spyrjum hvort það þurfi alltaf að vera grín.
Rick föndrar, málar og býr til allskonar skemmtilega hluti. Engar hugmyndir eru of stórar og hann ræðst á þær eins og ninja!
Nico og Andrés mæta enn á ný með nýjar áskoranir fyrir upprennandi fatahönnuði.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Afhending Íslensku lýðheilsuverðlaunanna á Bessastöðum. Veitt eru verðlaun í tveimur flokkum, annars vegar einstaklingsverðlaun og hins vegar verðaun til samtaka, stofnunar eða fyrirtækis sem hefur látið gott af sér leiða á þessu sviði. Stjórn upptöku: Ragnheiður Thorsteinsson.
Þættir þar sem matar- og tónlistarmenning á Íslandi er skoðuð með viðtölum við landsmenn. Gunnar Karl Gíslason og Sverrir Þór Sverrisson hitta fólk víða um land og kynna sér hefðir þeirra og lífsstíl.
Gunnar Karl og Sveppi halda austur á firði þar sem þeir bjóða góðum gestum frá Breiðdalsvík í villibráðarveislu til að fagna sumardeginum fyrsta.
Dönsk heimildarmynd frá 2021. Leikkonan Anne Sofie Espersen var greind með MS árið 2019. Hún kannar hvort hægt sé að bæta ónæmiskerfið og styrkja líkamann með einföldum öndunaræfingum, oföndun og ísböðum.
Breskir spennuþættir frá 2023 í leikstjórn Dries Vos. Ung hjón flytja í nýtt og glæsilegt hverfi og horfa björtum augum til framtíðar. Fljótlega eftir flutninginn vingast þau við nágrannahjón sín en sá vinskapur á eftir að snúa ástarlífi unga parsins á hvolf og draga ófyrirséðan dilk á eftir sér. Þættirnir eru byggðir á hollensku sjónvarpsþáttaröðinni New Neighbours. Aðalhlutverk: Sam Heughan, Eleanor Tomlinson og Jessica De Gouw. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bandarísk þáttaröð um slökkviliðsmenn og bráðaliða í Chicago en hetjurnar á slökkvistöð 51 víla ekkert fyrir sér. Meðal leikenda eru Jesse Spencer, Taylor Kinney, Eamonn Walker og David Eignberg. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Portúgalskir sakamálaþættir frá 2019. Lögreglufulltrúinn Humberto og samstarfskona hans, Alice, rannsaka dularfull andlát tveggja ungra kvenna. Aðalhlutverk: Adriano Luz, Jani Zhao og Afonso Pimentel. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
Við Hafnarstræti á Ísafirði þar sem löngum var skóbúð er Hversdagssafnið nú til húsa. „Hversdagssafnið er svona safn sem mig um dreymir um að finna eða upplifa þegar ég er að ferðast erlendis. Mig langar að kynnast staðnum og fólkinu og á sama tíma finna eitthvað sem að tengir okkur öll. Eins og sögur um skóna, eða ömmu mína, eða bara eitthvað venjulegt,“ segir Vaida Braziunaité, sem stofnaði Hversdagssafnið ásamt Björgu Sveinbjörnsdóttur.
„Hversdagsleikinn er náttúrlega lífið. En það er það sem að gerist á milli mikilvægra viðburða sem að er svo skemmtilegt,“ segir Björg. „Við höfum stundum kallað það hulduefnið því að það heldur öllu saman en það er svolítið erfitt að benda á nákvæmlega hvað það er. En það er líka þannig að um leið og við bendum á það og setjum það upp á vegg þá hættir það að vera hversdagslegt,“ segir Björg.
Landinn fékk að kynnast hversdagsleikanum í Hversdagssafninu á Ísafirði.
Beinar útsendingar frá bikarkeppni karla í fótbolta.
Bein útsending frá leik Keflavíkur og Breiðabliks í 32 liða úrslitum í bikarkeppni karla í fótbolta.
Samantekt á leikjum í 32 liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.