Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Fjármálaáætlun til næstu fimm ára var kynnt í dag. Þar er gert ráð fyrir milljarða hagræðingu en engum niðurskurði og að aðgerðir sem lagðar eru til dugi til að ná böndum á verðbólgu. En er það raunhæft eða er mjúk lending óskhyggja? Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður fjárlaganefndar, og Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, voru gestir Kastljóss.
Það þykir ekki tiltökumál þótt konur hlaupi maraþon nú til dags. Sú var ekki raunin þegar þær Fríða Bjarnadóttir og Ingunn Benediktsdóttur tóku fyrst í maraþonhlaupum og þótti reyndar algjör fásinna. Önnur var fyrst íslenskra kvenna til að hlaupa maraþon í Bandaríkjunum en hin á Íslandi fyrir yfir 40 árum.
Gyrðir Elíasson er eitt afkastamesta skáld landsins og handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. En hann málar líka heil ósköp og opnaði á dögunum myndlistarsýningu með yfir 1200 verkum í Garðinum suður með sjó.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Bláskóga/Kerhólsskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskóli Snæfellsbæjar, Grunnskóli Húnaþings vestra, Grunnskólinn í Hveragerði, Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Heiðarskóli í Hvalfjarðarsveit, Myllubakkaskóli og Setbergsskóli mæta til leiks.
Fyrir tíu árum fylgdi hópur kvikmyndagerðamanna börnum í bekknum 0.b í skólanum á Duevej í Frederiksberg í Danmörku í gegnum allt fyrsta skólaárið þeirra. Nú, þegar börnin eru á lokaári grunnskóla, heimsækjum við þau aftur og komumst að því hvernig manneskjur þau eru í dag og hvernig grunnskólinn hefur mótað þau.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Álfhólsskóli, Brekkubæjarskóli, Grunnskóli Grindavíkur, Kóraskóli, Laugalandsskóli í Holtum, Njarðvíkurskóli, Reykholtsskóli, Sandgerðisskóli og Kársnesskóli mæta til leiks.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðhræddur um að barnið sitt hverfi í alvörunni þegar það setur á svið töfrasýningu.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Ný könnun sýnir að stór hluti kennara sér framtíð sína ekki inni í skólunum. Álag í starfi, fjöldi nemanda og agi er meðal þess sem nefnt er sem skýring. Rætt við Magnús Þór Jónsson, formann Kennarasambands Íslands, og Guðbjörgu Írisi Atladóttur, trúnaðarmann kennara í Rimaskóla.
Afhverju fara flestar framkvæmdir langt fram úr áætlun? Dan Gardner er bandarískur sérfræðingur og rithöfundur sem mun fjalla um þetta á IMaR ráðstefnunni sem fer fram á morgun. Hann segir engan mun á opinberum og einkaframkvæmdum og skýringin á framúrkeyrslunni sé einföld.
Menntabúðir voru haldnar í vikunni en þar kemur skólafólk saman og skoðar hvernig nýjasta tækni og vísindi nýtist í skapandi skólastarfi.
Bein útsending frá keppni í Skólahreysti. Í Skólahreysti keppa nemendur í grunnskólum landsins sín á milli í hinum ýmsu greinum sem reyna á kraft, styrk og þol keppenda. Umsjón: Anna Sigrún Davíðsdóttir og Daníel Óskar Jóhannesson.
Árbæjarskóli, Garðaskóli, Grunnskóli Seltjarnarness, Hagaskóli, Heiðarskóli, Stapaskóli, Hraunvallaskóli, Lágafellsskóli, Norðlingaskóli, NÚ, Öldutúnsskóli og Seljaskóli mæta til leiks.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju kvöldsins fjöllum við um bókina Björn Pálsson flugmaður og þjóðsagnapersóna eftir Jóhannes Tómasson. Við förum norður á Akureyri og skoðum tvær af flugvélum Björns sem þar eru geymdar í fylgd Steinunnar Maríu Sveinsdóttur sem stýrir Flugsafni Íslands. Björn naut gríðarlegrar aðdáunar í lifanda lífi enda var hann frumkvöðull í sjúkraflugi og víst að hann bjargaði mörgum mannslífum. Frá Akureyri förum við á Siglufjörð og hittum Sigurð Ægisson sóknarprest en hann hefur fengist við margvísleg ritstörf, skrifað um þjóðleg fræði, ljósmyndað og ritað um fugla og hvali, en nýjasta bók hans nefnist Völvur á Íslandi. Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir segir okkur frá nýrri bók eftir sig sem heitir einfaldlega Einmana og fjallar, eins og titillin gefur til kynna, um einmanaleikann í ýmsum myndum, hjá ungum og öldnum. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Möndlu eftir Hildi Knútsdóttur, Tæpasta vað eftir Jón Hjartarson og Lofgjörð til Katalóníu eftir George Orwell.
Breskir heimildarþættir sem skoða kvikmyndasöguna í gegnum linsu kvikmyndagerðakvenna. Þættirnir skiptast í 40 kafla sem taka fyrir ólíkar hliðar kvikmyndagerðar og eingöngu er stuðst við dæmi úr kvikmyndum sem konur leikstýra. Sögukonur eru Tilda Swinton, Jane Fonda, Debra Winger, Adjoa Andoh, Kerry Fox, Thandie Newton og Sharmila Tagore. Leikstjóri: Mark Cousins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.