Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.
Krúttlegir og vinalegir þættir fyrir þau allra yngstu. Molang er búttaður lítill „kanínugrís“. Hún er sérvitur, glaðvær og áhugasöm. Besti vinur hennar er litli hænuunginn Piu Piu. Molang er kóresk teiknimyndapersóna og afskaplega vinsæl í heimalandinu.
Matthildur er 12 ára stelpa sem býr yfir sérstöku leyndarmáli. Á hverjum degi þegar hún vaknar býr hún yfir nýjum ofurkrafti sem hún þarf að læra að stjórna. Aðeins besti vinur hennar veit af þessu og saman lenda þau í alls kyns ævintýrum.
Í þessum þáttum rýnir Ari inn í heim leikhússins og fylgist með uppsetningu á sýningunni Fíasól sem hefur farið vel af stað í Borgarleikhúsinu. Lifandi þættir fyrir alla fjölskylduna! Komiði með og sjáið hvernig söngleikurinn Fíasól gefst aldrei upp verður til.
Atriði frá Sögum verðlaunahátíð barnanna árið 2020.
Króli syngur lagið Pabbi minn er prestur á Sögum verðlaunahátíð barnanna árið 2020. Lagið var eiitt af þremur sigurlögum í lagakeppni hátíðarinnar. Lag & texti: Ásgerður Júlíusdóttir, Birgitta Rúnarsdóttir, Gabríela Uscio og Karolina Tarasiewicz.
Dönsk fjölskyldumynd frá 2017. Eftir að hafa farið í leikhús með leikskólanum langar Andra og Eddu að búa til sína eigin leiksýningu, sem þau og gera. Myndin er talsett á íslensku. Aðalhlutverk: Markus Tønseth, Janne Formoe og Anna Celine Bredal. Leikstjórar: Aurora Gossé og Arne Lindtner Næss.
Þáttaröð fyrir alla fjölskylduna byggð á samnefndri metsölubók eftir Gunnar Helgason. Jón fer til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta og skemmtilegasta fótboltamóti ársins. Draumar hans hafa þó verið slæmir þar sem eldgos og undarlega vondur markmaður eru að trufla hann. Í raunveruleikanum er það þó Ívar, brjálaði boltaþjófurinn, sem er hans helsti óvinur. Samtímis þarf Rósa að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki. Innan vallar eru þau öll andstæðingar en utan vallar þurfa þau að snúa bökum saman og berjast upp á líf eða dauða.
Á yfirborðinu er allt slétt og fellt en undir niðri kraumar eldurinn. Jón, Rósa og Ívar þurfa að berjast fyrir lífi sínu á kvöldskemmtun, í næturslagsmálum og á morgunfundi.
Íslensk fjölskyldu- og gamanmynd í tveim hlutum. Eldri borgararnir Hófí og Pétur sem eru olnbogabörn í kerfi sem hefur lítið gagn af þeim lengur. Þau eru orðin leið á aðbúnaðinum á elliheimilinu og ræna banka til að hafa efni á að kaupa sér litla íbúð. Ýmis ljón eru á veginum og Hófí og Pétri lendir saman við harðasta handrukkara bæjarins og skósveina hans. Aðalhlutverk: Edda Björgvinsdóttir, Þórhallur Sigurðsson, Steinþór Hróar Steinþórsson og Sverrir Þór Sverrisson. Leikstjóri: Gunnar B. Guðmundsson.
Þáttaröð frá 2015 úr smiðju Ævars vísindamanns. Í þessari þáttaröð leggur Ævar allt undir. Laufblásara-knúin svifbretti, segulskór og skordýrahamborgari eru bara nokkrar af þeim æsispennandi tilraunum sem koma fyrir. Dagskrárgerð: Ævar Þór Benediktsson og Eggert Gunnarsson
Í þessum þætti ætlar Ævar að skoða orku. Við notum laufblásara til að búa til svifbretti, vísindamaður dagsins er Niels Bohr sem kom að þróun kjarnorkusprengjunnar, Sprengju-gengið mætir á svæðið, heimsækjum Orkuverið Jörð og skoðum dýr í útrýmingarhættu.
Þáttaröð frá 1991 um sögu íslenskrar dægurtónlistar. Umsjón: Helgi Pétursson og Jónatan Garðarsson. Dagskrárgerð: Tage Ammendrup. e.
Sinfóníuhljómsveit BBC flytur klassísk verk í bland við minna þekktar perlur á tónleikum í Royal Albert Hall árið 2023. Lise Davidsen sópran syngur og Sheku Kanneh-Mason spilar á selló. Stjórnandi er Marin Alsop.
Heimildarþættir um fjölmenningu í íslensku samfélagi. Mannflóran er fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og þjóðarímyndin breytist með auknum fjölda fólks af erlendum uppruna. Ljósi er varpað á erfiðleikana sem fólk af erlendum uppruna mætir í íslensku samfélagi og fjallað um kosti fjölmenningar. Umsjón: Chanel Björk Sturludóttir.
Í þættinum er fjallað um kynþáttahyggju og rætt við fólk sem á það sameiginlegt að tilheyra minnihlutahópum í samfélaginu vegna kynþáttar eða uppruna. Sjónum er beint að áhrifum kynþáttahyggju á daglegt líf fólks sem er ekki hvítt á hörund.
Þættir um börn og ungmenni sem eiga annað móðurmál en íslensku og hafa hlotið Íslenskuverðlaun unga fólksins. Dagskrárgerð og umsjón: Hafsteinn Vilhelmsson.
Jeremiah Páll fæddist á Íslandi árið 2009. Hann ólst upp í Breiðholtinu hjá foreldrum sínum og systkinum. Móðurmál hans er filippseyska málið cebuano. Við förum í tónlistartíma með Jeremiah og kynnumst því hvernig er hægt að nýta tónlist til þess að læra nýtt tungumál.
Silverpoint er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga.
Árið 1997 hurfu fjórir krakkar úr Silfruskógi. Tuttugu og þremur árum seinna ákveður strákur einn að komast að því hvað í raun og veru gerðist í skóginum þennan örlagaríka dag.
Hvað ætli sé á bak við dularfullu rauðu hurðina?
Hugrökk stelpa bjargar apakónginum, guði sem hafði lengi verið fastur í steini, og leggst í för til að finna sjö heilög handrit og bjarga heiminum frá illu.
Atriði úr alls konar leikritum og sýningum frá leikfélögum landsins.
Við kíkjum í Þjóðleikhúsið þar sem við fáum að sjá brot úr sýningunni Dýrin í Hálsaskógi. Mikki refur syngur lagið "Refavísur". Mikki og Lilli klifurmús spjalla aðeins við krakkana og Lilli syngur svo fyrir okkur lagið "Raunarkvæði".
Leikarar:
Jóhannes Haukur Jóhannesson sem Mikki refur
Ævar Þór Benediktsson sem Lilli klifurmús
Vera Stefánsdóttir sem litla hrædda músin.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson um ævintýralegan feril Gunnars Þórðarsonar. Þroskasaga tónskálds sem aldrei fór í tónlistarskóla. Mörg vinsælustu lög síðustu áratuga eru frá Gunnari komin: Bláu augun þín, Þú og ég, Gaggó Vest, Vetrarsól, Þitt fyrsta bros og þannig mætti lengi telja. Árið 2005 voru hljóðrituð lög hans orðin 500 og síðan hefur bæst við. Á síðari árum hefur hann samið hljómsveitarverk og kórverk í klassískum stíl, enn fremur óperu sem þykir marka tímamót í íslenskri tónlistarsögu.
Mörg laga Gunnars Þórðarsonar eru orðin sígild í hugum Íslendinga. Fullyrða má að ekkert annað tónskáld eigi jafn mörg og fjölbreytt lög á sínum lagalista. Á síðari árum hafa komið frá honum tónsmíðar í sígildu formi, m.a. kórverk fyrir einsöngvara og sinfóníuhljómsveit. Óperan Ragnheiður kom í kjölfarið og sló í gegn jafnt hjá almenningi sem gagnrýnendum.
Upptaka af leiksýningunni Njála á hundavaði sem sýnd var í Borgarleikhúsinu. Tvíeykið Hundur í óskilum ræðst á einn af hornsteinum íslenskrar menningar, sjálfa Njálu. Í þessari drepfyndnu sýningu hlaupa þeir Hjörleifur Hjartarson og Eiríkur Stephensen meira en hæð sína í öllum herklæðum í gegnum skrautlegt persónugallerí Njálu. Við sögu koma taðskegglingar, hornkerlingar, kinnhestar, kartneglur og þjófsaugu svo fátt eitt sé nefnt. Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir. Dagskrárgerð: Ragnheiður Thorsteinsson.
Hörkuspennandi verðlaunamynd frá 2021 í leikstjórn Philips Barantini. Myndin er tekin í einni samfelldri töku þar sem fylgst er með kvöldstund á veitingastað á annasamasta degi ársins. Matreiðsluteymið og þjónarnir eru undir gríðarlegu álagi og allt er undir. Aðalhlutverk: Stephen Graham, Vinette Robinson og Alice Feetham. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bresk kvikmynd frá 2019 í leikstjórn Gurinder Chadha. Javed er breskur táningur af pakistönskum ættum, fæddur og uppalinn í Luton. Hann kynnist tónlist Bruce Springsteen árið 1987 og finnur svo sterka tengingu við lögin og textana að hann ákveður að heimsækja heimabæ Bruce í New Jersey í Bandaríkjunum, þvert á vilja foreldra sinna. Aðalhlutverk: Billy Barratt, Ronak Singh Chadha Berges og Viveik Kalra. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði.
Bein útsending frá tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði.