Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Mikil kuldatíð að undanförnu á hefur sett strik í reikninginn hjá mörgum bændum. Á norðurlandi er víða snór yfir öllu og því fylgja áskoranir. Við tókum púlsinn á bændum í Eyjafirði.
Brettafélag Hafnarfjarðar hefur byggt upp eina glæsilegusta hjólabrettaaðstöðu í Evrópu sem verður tekin formlega í noktun í næsta mánuði. Yfir 400 iðkendur eru í félaginu sem eru í skýjunum með aðstöðuna.
Feneyjatvíæringurinn, stærsta myndlistarhátíð í heimi, er að hefjast. Íslenski skálinn var opnaður við hátíðlega athöfn í dag en fulltrúi Íslands er Hildigunnur Birgisdóttir. Kastljós var á staðnum.
Spurningakeppni framhaldsskólanna þarf vart að kynna og einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar eru Steinþór Helgi Arnsteinsson og Bryndís Björgvinsdóttir en hún er einnig dómari keppninnar. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Stuttir þættir þar sem þátttakendur og gestir deila frásögnum úr 50 ára sögu Listahátíðar í Reykjavík.
Þórunn Sigurðardóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar árin 2002-2008, segir frá Risessunni. Hjálmar Ragnarson, tónskáld, segir frá Sinfóníutónleikunum 1970.
Danskir heimildarþættir um sérkennilega dýrategund sem virðist oft misskilin og utangátta. Dýrin geta ekki ákveðið hvort þau flokkist með hópi fullorðinna eða barna. Í fjórum þáttum skoðum við líf unglingsins og hvernig hann þroskast og lifir í samfélagi mannanna.
Sænsk þáttaröð um mikilvægi jákvæðrar líkamsímyndar. Blaðakonan og aðgerðasinninn Anni Emilia Alentola hittir fólk af öllum stærðum og gerðum og ræðir um líkamann og hvernig maður getur losað sig undan samfélagslegum normum.
Valin myndskeið úr Landanum þar sem áhugaverðir staðir eru skoðaðir og merkilegir Íslendingar heimsóttir. Dagskrárgerð: Gísli Einarsson og Karl Sigtryggsson.
"Við erum að upplifa þá tíma sem er hvað mest myndið í heiminum. Það eru allir með flotta myndavél í símanum sínum og það eru allir að mynda allt sem gerist. En við höfum áhyggjur af því að þetta verði sá tími sem verður mest myndaður en minnst verður til af myndum af," segir Þórhallur Jónsson eigandi ljósmyndaþjónustunnar Pedrómynda á Akureyri.
Líklega höfum við aldrei verið jafn dugleg við að skrásetja daglegt líf okkar. Við tökum ógrinni af ljósmyndum og erum í stöðugum samskiptum við vini okkar í gegnum samfélagsmiðla og samskiptaforrit. En hvað af þessu varðveitist eftir okkar dag? Ömmur okkar og afar geta iljað sér við að lesa gömul ástarbréf en rómantísk skilaboð á snapchat eða "læk" á instagram er erfiðara að varðveita.
Landinn veltir því fyrir sér í kvöld hvort stafræna byltingin sé mögulega að stela frá okkur minningunum.
Önnur sería af Silfruskógi, sem er bresk sjónvarpsþáttaröð úr heimi vísindaskáldskapar fyrir unglinga.
Lous, Meg, Glen og Kaz uppgötva að hópurinn þeirra er bara einn þeirra fjögurra sem taka þátt í leiknum um að bjarga heiminum.
Í Stundarglasinu er keppt í einkennilegum og stórundarlegum íþróttagreinum sem ekki er keppt í á Ólympíuleikum.
Dagskrárgerð: Sigyn Blöndal og Sindri Bergmann Þórarinsson
Í lokaþætti fyrstu þáttaraðarinnar kepptu Elísabet Ása Einarsdóttir og Víðir Jökull Valdimarsson í Risa-Jenga sem er frábær íþróttagrein.
Fréttatengdur skemmtiþáttur þar sem keppendur spreyta sig á misalvarlegum spurningum sem sóttar eru í glóðvolgar fréttir og gamlar í bland. Stjórnandi og spyrill er Kristjana Arnarsdóttir og henni til halds og trausts er fréttamaðurinn Birta Björnsdóttir. Framleiðsla: RÚV.
Keppendur kvöldsins eru Gunnar Reynir Valþórsson, Júlía Margrét Einarsdóttir, Kamilla Einarsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson
Gísli Marteinn tekur á móti góðum gestum á föstudagskvöldum í vetur og fer með þeim yfir helstu atburði vikunnar í stjórnmálum, menningu og mannlífi. Persónur og leikendur koma í spjall og brakandi fersk tónlistaratriði koma landsmönnum í helgarstemninguna. Stjórn útsendingar: Ragnar Eyþórsson.
Bresk leikin þáttaröðin um hina litríku og lífsglöðu Larkin-fjölskyldu. Þættirnir gerast í Kent-sýslu á Englandi um 1950 og eru byggðir á sígildri sögu H. E. Bates, The Darling Buds of May, eða Maíblómin. Aðalhlutverk: Bradley Walsh, Joanna Scanlan og Lydia Page.
Dönsk kvikmynd frá 2020 í leikstjórn Jeanette Nordahl. Ida flytur inn til móðursystur sinnar og sona hennar þegar móðir hennar deyr í bílslysi. Fjölskyldan tekur á móti Idu með ást og umhyggju en ekki líður að löngu þar til hún áttar sig á því að þau búa yfir leyndarmáli sem á eftir að hafa gríðarleg áhrif á líf hennar. Aðalhlutverk: Sandra Guldberg Kampp, Sidse Babett Knudsen og Joachim Fjelstrup. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Þriðja þáttaröð þessara bresku sakamálaþátta um hið sérkennilega tvíeyki einkaspæjara, Luellu Shakespeare og Frank Hathaway, sem fæst við margvísleg sakamál í heimabæ þeirra og fæðingarbæ hins eina og sanna Shakespeare, Stratford-upon-Avon. Aðalhlutverk: Mark Benton og Jo Joyner.