Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Bólusetningar barna drógust saman í heimsfaraldrinum og hafa ekki náð fyrri þátttöku síðan. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, yfirlæknir bólusetninga hjá Landlæknisembættinu segir brýnt að auka bólusetningar yngstu aldurshópanna. Feneyjatvíæringurinn í myndlist er hafinn og stendur fram í nóvember. Gestir voru nokkurn veginn á einu máli um gæði hátíðarinnar í ár, þar á meðal voru Ólöf Rut Stefánsdóttir, Eva Ísleifs, Katrín Inga, Ólafur Ásgeirsson og Sólbjört Vera Ómarsdóttir.
Skautun í samfélagsumræðu á Íslandi er veruleg þegar kemur að málefnum innflytjenda og flóttafólks. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði og Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs ræddu þennan aðskilnað og hvernig sporna má gegn honum.
Ómissandi upphitun fyrir Eurovision. Í þáttunum verður eins og áður farið yfir öll lögin sem keppa í Eurovision í ár, þau vegin og metin og reynt að spá fyrir um gengi þeirra í keppninni. Umsjón: Eva Ruza. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Tekið er á móti góðum gestum í sjónvarpssal, slegið á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit: Ásgeir Óskarsson, Finnbogi Kjartansson, Magnús Kjartansson og Vilhjálmur Guðjónsson. Dagskrárgerð: Egill Eðvarðsson. Umsjónarmaður: Hermann Gunnarsson.
Heilinn er undarlegt fyrirbæri og hægt að hafa áhrif á hann og hegðun einstaklinga með mismunandi hætti. Fræðandi, danskur þáttur þar sem sjónhverfingarmanninum og dáleiðandanum Jan Hellesøe er fylgt eftir.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur þar sem áhersla er lögð á rannsóknarblaðamennsku og almennar fréttaskýringar. Ritstjórn og dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Garðar Þór Þorkelsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Kristín Sigurðardóttir, María Sigrún Hilmarsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Skyndilánaskuldir eru að sliga stækkandi hóp í samfélaginu. Flestir hafa heyrt talað um smálán, sem ófáir hafa lent í vandræðum með. En skyndilán eru stærri flokkur – og fleiri eru að lenda í vanda vegna þeirra.
Fyrir tíu árum fylgdi hópur kvikmyndagerðamanna börnum í bekknum 0.b í skólanum á Duevej í Frederiksberg í Danmörku í gegnum allt fyrsta skólaárið þeirra. Nú, þegar börnin eru á lokaári grunnskóla, heimsækjum við þau aftur og komumst að því hvernig manneskjur þau eru í dag og hvernig grunnskólinn hefur mótað þau.
Skemmtilegir þættir um hugmyndaríku stúlkuna Kötu sem ferðast með fjólubláu kanínunni Mumma til ævintýraheimsins Mummaheims.
Ólivía er sniðug svínastelpa sem tæklar hversdaginn með frumlegum leiðum. Hún dettur gjarnan í dagdrauma og hefur að auki sett sér ýmsar sniðugar lífsreglur.
Háværa ljónið Urri og félagar ferðast í gegnum frumskóginn. Á leiðinni lenda þau í skemmtilegum ævintýrum og þurfa að takast á við áskoranir og leita lausna í sameiningu.
Sprenghlægilegir þættir um strútapabbann Edda og áttburana hans. Eddi strútapabbi er fullkomnunarsinni og reynir að gera allt sem í hans valdi stendur til að vernda áttburana sína. Hann á fullt í fangi með það enda eru ævintýrin hjá stórri fjölskyldu mörg og ímyndunaraflið mikið.
Eddi strútapabbi er dauðhræddur um að ketilbjallan sem dóttir sín notar við lyftingaæfingar muni meiða hana og reynir að taka hana í burtu áður en það verður of seint!
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Vikinglottó-útdráttur vikunnar.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.
Íþróttafréttir.
Veðurfréttir.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju vikunnar förum við að Þjóðminjasafninu og hittum Sigrúnu Eldjárn. Hún hefur skrifað og teiknað fallega og skemmtilega bók sem nefnist Sigrún á Safninu og byggist á æskuminningum hennar frá því að alast upp í húsi sem á þeim tíma var ekki bara þjóðminjasafn, heldur líka listasafn og sjóminjasafn. Þórarinn Eldjárn og Kristján Þórður Hrafnsson koma í þáttinn og segja frá 100 kvæðum en það er nýtt úrval ljóða Þórarins sem Kristján hefur valið. Þórarinn flytur eitt sitt frægasta kvæði af mikilli hind. Hjónin Kristín Jórunn Hjartardóttir og Egill Eðvarðsson ferðuðust um landið, hún stakk sér í sjó og synti á fjöldamörgum stöðum en Egill myndaði. Saman settu þau saman bókina Fær í flestan sjó en þar kynnumst við rúmlega áttatíu stöðum sem henta til sjósunds. Við fjöllum um hin svonefndu austfirsku skáld, en þeirra helst voru Einar Sigurðsson í Heydölum og Stefán Ólafsson í Vallanesi. Gagnrýnendur þáttarins ræða um Eimreiðarelítuna eftir Þorvald Logason og Horfinn heim en það er sjálfsævisaga Þrastar Ólafssonar. ,
Upptökur frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu.
Eva Ollikainen aðalhljómsveitarstjóri heldur um tónsprotann á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem Burleske eftir Richard Strauss hljómar. Einleikari er armensk-danski píanóleikarinn Marianna Shirinyan.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Breskir heimildarþættir sem skoða kvikmyndasöguna í gegnum linsu kvikmyndagerðakvenna. Þættirnir skiptast í 40 kafla sem taka fyrir ólíkar hliðar kvikmyndagerðar og eingöngu er stuðst við dæmi úr kvikmyndum sem konur leikstýra. Sögukonur eru Tilda Swinton, Jane Fonda, Debra Winger, Adjoa Andoh, Kerry Fox, Thandie Newton og Sharmila Tagore. Leikstjóri: Mark Cousins. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur frá 1992 um íslenskan karlakór sem fer í söngferðalag til meginlands Evrópu og lendir í ýmsum ævintýrum. Meðal leikenda eru Egill Ólafsson, Garðar Cortes, Ragnhildur Gísladóttir, Sigurður Sigurjónsson, Laddi og Örn Árnason.
Myndin er hluti af þemanu Konur í kvikmyndagerð.
Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Beinar útsendingar frá bikarkeppni karla í fótbolta.
Bein útsending frá leik Vals og FH í 32 liða úrslitum í bikarkeppni karla í fótbolta.
Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.