Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Félags-og vinnumarkaðsráðherra boðaði í dag umbyltingu á örorkulífeyriskerfinu. Samkvæmt því hækka lífeyrisgreiðslur 95 prósent öryrkja, örorkumat verður einfaldað og samræmt milli stofnana, frítekjumark hækkað og dregið úr tekjuskerðingu til að hvetja til atvinnuþátttöku. Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður Öryrkjabandalagsins, segir að þetta sé sýnd veiði en ekki gefin. Þau Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra voru gestir Kastljóss.
Sálfræðiþjónusta hefur verið í boði á heilsugæslustöðvum í hartnær átta ár og gefist vel fyrir þá sem hana hafa fengið. Eftirspurnin er hins vegar langt umfram framboð og erfiðlega gengur að manna stöður. Dr. David Clark, prófessor við Oxford-háskóla, hefur tekið þátt í að innleiða sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvar víða í Evrópu. Hann hélt vinnustofu á Íslandi á dögunum og Kastljós tók hann tali.
Ein áhrifaríkasta leiðin til að sporna gegn öldrun og fylgifiskum hennar er að lyfta þungum lóðum, segir Maria Fiatarone Singh, bandarískur öldrunarlæknir sem rannsakað hefur vöðvavernd hjá eldra fólki. Við ræddum við hana og rifum í lóðin með Elsu og Páli, lyftingaköppum á besta aldri.
Spurningakeppni framhaldsskólanna þarf vart að kynna og einkennist af stemningu, spennu og virkri þátttöku allra í salnum. Spyrill er Björn Bragi Arnarsson, spurningahöfundar eru Steinþór Helgi Arnsteinsson og Bryndís Björgvinsdóttir en hún er einnig dómari keppninnar. Dagskrárgerð: Elín Sveinsdóttir.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur ræðir framtíð og rekstur sveitarfélagsins.
Margir reyndustu kosningastjórar landsins bera saman bækur sínar fyrir forsetakosningarnar framundan og reyna að svara því hvernig hægt sé að verða forseti Íslands. Ólafía B. Rafnsdóttir ráðgjafi, Friðjón Friðjónsson almannatengill og borgarfulltrúi, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir stjórnmálafræðingur, Hödd Vilhjálmsdóttir almannatengill og Björn Ingi Hrafnsson ritstjóri mæta í þáttinn.
Heimildarþáttur um störf heimilislækna. Vinnudagur þeirra hefur breyst umtalsvert á síðustu áratugum og í þættinum segja sex heimilislæknar frá viðfangsefnum sínum á heilsugæslustöðvum. Heimilislæknar í dag eru í síauknu samstarfi við ýmsar sérhæfðar starfsstéttir og sinna þjónustu við æ fjöbreyttari hóp skjólstæðinga. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.
Þáttur sem er löngu orðinn ómissandi í bókmenntaumræðunni í landinu. Egill og bókelskir félagar hans fjalla sem fyrr um forvitnilegar bækur af ýmsum toga og úr öllum áttum. Umsjón: Egill Helgason. Dagskrárgerð: Jón Víðir Hauksson.
Í Kilju kvöldsins fjöllum við um bókina Björn Pálsson flugmaður og þjóðsagnapersóna eftir Jóhannes Tómasson. Við förum norður á Akureyri og skoðum tvær af flugvélum Björns sem þar eru geymdar í fylgd Steinunnar Maríu Sveinsdóttur sem stýrir Flugsafni Íslands. Björn naut gríðarlegrar aðdáunar í lifanda lífi enda var hann frumkvöðull í sjúkraflugi og víst að hann bjargaði mörgum mannslífum. Frá Akureyri förum við á Siglufjörð og hittum Sigurð Ægisson sóknarprest en hann hefur fengist við margvísleg ritstörf, skrifað um þjóðleg fræði, ljósmyndað og ritað um fugla og hvali, en nýjasta bók hans nefnist Völvur á Íslandi. Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir segir okkur frá nýrri bók eftir sig sem heitir einfaldlega Einmana og fjallar, eins og titillin gefur til kynna, um einmanaleikann í ýmsum myndum, hjá ungum og öldnum. Gagnrýnendur þáttarins fjalla um þrjár bækur: Möndlu eftir Hildi Knútsdóttur, Tæpasta vað eftir Jón Hjartarson og Lofgjörð til Katalóníu eftir George Orwell.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.
Bólusetningar barna drógust saman í heimsfaraldrinum og hafa ekki náð fyrri þátttöku síðan. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, yfirlæknir bólusetninga hjá Landlæknisembættinu segir brýnt að auka bólusetningar yngstu aldurshópanna. Feneyjatvíæringurinn í myndlist er hafinn og stendur fram í nóvember. Gestir voru nokkurn veginn á einu máli um gæði hátíðarinnar í ár, þar á meðal voru Ólöf Rut Stefánsdóttir, Eva Ísleifs, Katrín Inga, Ólafur Ásgeirsson og Sólbjört Vera Ómarsdóttir.
Skautun í samfélagsumræðu á Íslandi er veruleg þegar kemur að málefnum innflytjenda og flóttafólks. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði og Bryndís Haraldsdóttir, forseti Norðurlandaráðs ræddu þennan aðskilnað og hvernig sporna má gegn honum.
Kveikur er fréttaskýringaþáttur þar sem áhersla er lögð á rannsóknarblaðamennsku og almennar fréttaskýringar. Ritstjórn og dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Árni Þór Theodórsson, Garðar Þór Þorkelsson, Ingólfur Bjarni Sigfússon, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Kristín Sigurðardóttir, María Sigrún Hilmarsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.
Skyndilánaskuldir eru að sliga stækkandi hóp í samfélaginu. Flestir hafa heyrt talað um smálán, sem ófáir hafa lent í vandræðum með. En skyndilán eru stærri flokkur – og fleiri eru að lenda í vanda vegna þeirra.
Sænskir matreiðsluþættir frá 2023. Grínistinn David Batra og fréttakonan Malin Mendel ætla að opna veitingastað á Indlandi. Þau ákveða hvað verður á matseðlinum með því að prófa sig áfram í að elda klassíska indverska rétti og gamlar fjölskylduuppskriftir.
Heimildarþættir frá 2023 í leikstjórn James Bluemel. Fjallað er um átökin á Norður-Írlandi sem stóðu yfir í meira en þrjátíu ár, eða þar til friðarsamningurinn var undirritaður árið 1998. Fólk frá öllum hliðum átakanna deilir persónulegum sögum frá þessum tíma. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Nýjustu fréttir og íþróttir kvöldsins. Alla mánudaga til fimmtudaga.
Veðurfréttir
Breskir sakamálaþættir frá 2023. Þrír nýliðar hefja störf í lögreglunni í Belfast. Álagið sem fylgir því að vera fyrsti viðbragðsaðili á vettvang er gríðarlegt og hætturnar miklar. Aðalhlutverk: Nathan Braniff, Sian Brooke og Martin McCann. Leikstjóri: Gilles Bannier. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Sænskir spennuþættir um hermanninn Max Anger sem hefur sagt skilið við sænska herinn og fundið ástina með rússneskri samstarfskonu sinni, Pashie. Eftir að Pashie hverfur sporlaust þarf Max að leggja líf sitt í hættu til að leita hennar. Aðalhlutverk: Adam Lundgren, Johan Rheborg og Malin Crépin. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.