Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Fyrri umræðu um fjármálaáætlun fyrir næstu fimm árin lauk á Alþingi á tíunda tímanum í gærkvöldi. Við fórum ítarlega yfir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar í spjalli við Þórð Snæ Júlíusson, ritstjóra Heimildarinnar.
Í gær voru liðin 300 ár frá fæðingu eins merkasta hugsuðar seinni alda á Vesturlöndum, Immanuels Kant, og Þjóðverjar minntust þeirra tímamóta með margvíslegum hætti. Arthur Björgvin Bollason sagði okkur frá Kant og hátíðahöldunum í Berlínarspjalli. Hann sagði líka frá heimsókn Þýskalandsforseta til Tyrklands, en öld er síðan ríkin tóku upp stjórnmálasamband.
Vilhjálmur Árnason, prófessor emeritus í heimspeki, var svo síðasti gestur þáttarins. Bók hans, Siðfræði lífs og dauða, kom út á dögunum í þriðju útgáfu og á morgun verður efnt til opins málþings um bókina.
Tónlist:
Nafnlaus hljómsveit - They say it's wonderful.
Vold, Jan Erik - Et nytt møte.
Gestur þáttarins er Ólína Kjærúlf Þorvarðardóttir deildarforseti Félagsvísindadeildar við Háskólann á Bifröst. Ólína er doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræði. Starfsævi hennar er afar fjölbreytt, hún hefur verið kennari, skólameistari við MÍ, fréttamaður hjá RÚV, þingmaður, borgarfulltrúi rithöfundur og björgunarsveitarkona með leitarhund svo eitthvað sé nefnt. Líf hennar ekki alltaf verið dans á rósum, m.a. fór hún í mál vegna ráðningar þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum sem hún vann.
Tónlist: River deep mountain high - Tina Turner.
Umsjón: Lísa Pálsdóttir
Tæknimaður: Kári Guðmundsson
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Bergur Vilhjálmsson starfar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins. Hann er að fara í gang með styrktarverkefni fyrir Pieta samtökin. Hann ætlar að ganga frá Akranesi, í gegnum Hvalfjörðinn og í Grafarholtið og draga á eftir sér þyngdan sleða eða ýta honum á undan sér. Sleðin er rúm 100 kíló og 100 kíló af lóðum verða á sleðanum og eftir hverja 10 km. mun hann létta af sleðanum 10 kílóum. Þau kíló tákna að hann sé á réttri leið að vinna úr erfiðleikum. Sleðinn táknar erfiðleika sem við erum flest að burðast með í gegnum lífið en það eru til hlutir/verkfæri sem geta gert þessa byrði léttari. Bergur sagði okkur frá aðdraganda göngunnar og svo göngunni sjálfri sem hann hefur á fimmtudaginn kl.14.
Sumardagurinn fyrsti er núna á fimmtudaginn og þá verður að venju opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Gróðurinn blómstrar í garðskálanum og gróðurhúsunum og fyrsta uppskeran af fersku grænmeti er tilbúin. Hægt verður að skoða skoða verkefni nemenda, forseti Íslands veitir garðyrkjuverðlaun ársins, boðið verður upp á kaffi ræktað á Íslandi og fleira. Björgvin Örn Eggertsson, námsbrautarstjóri skógræktar í Garðyrkjuskólanum, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu í dag.
Hvernig getum við komið meira af grænmeti og ávöxtum inn í fæðið okkar? Nýjustu næringarráðleggingar frá Norðurlöndunum mæla með að við borðum um 500-800 grömm af því daglega til að halda góðri heilsu. Draga ætti úr kjötáti og unnum kjötvörum og auka neyslu á fiski, baunum ásamt öðru jurtafæði. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands gefur okkur góð ráð um hvernig við breytum gömlum venjum og innleiðum nýjar. Helga Arnardóttir ræddi við Önnu Sigríði í Heilsuvaktinni í dag.
Tónlist í þættinum
Yakketi yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason)
Útþrá / Kristjana Arngrímsdóttir (Kristjana Arngrímsdóttir og Elísabet Geirmundsdóttir)
Sumarvísa / Þorgerður Ása og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Poulson og Iðunn Steinsdóttir)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að reyna að drepa föður og unga dóttur hans í Hafnarfirði á aðfangadagskvöld. Maðurinn réðst við annan mann inn á heimili feðginanna og skaut sex skotum. Árásin var þaulskipulögð.
Karlmaður á sjötugsaldri var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á Akureyri í gærkvöld, grunaður um að hafa orðið konu sinni að bana. Parið er íslenskt og flutti til Akureyrar skömmu fyrir jól.
Lögreglan á Suðurlandi vill lítið gefa upp um rannsókn á mannsláti á Kiðjabergi á laugardag. Tveir eru í gæsluvarðhaldi og öðrum tveimur hefur verið sleppt úr varðhaldi.
Heilbrigðisráðherra ræðir við heimilislækna um hvernig hægt sé að draga úr skriffinnsku svo meiri tími gefist til að sinna sjúklingum. Formaður félags íslenskra heimilislækna vonar að fundurinn skili árangri.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir veitingamanninum Quang Lé, kærustu hans og bróður um fjórar vikur, þau eru þó laus úr einangrun.
Kvikuhólfið undir Svartsengi er að fyllast en lítið er vitað um hvert kvika leitar ef það kemur til nýs kvikuhlaups. Gosið gæti á nýjum stað eða kvika gæti einnig leitað upp á yfirborðið í gegnum núverandi gíg.
Viðskipti með líftæknifyrirtækið Oculis hófust á aðalmarkaði kauphallarinnar í morgun.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Tvær manneskjur létu lífið um helgina þar sem mjög mikill grunur leikur á að glæpur hafi verið framinn. Annað morðið var framið í sumarbústað á Suðurlandi, hitt í Naustahverfi á Akureyri. Fimm manns voru settir í fangelsi, fjórir vegna annars glæpsins og einn vegna hins. Morð eru ekki algeng á Íslandi, þó að þau séu vissulega að færast í aukana. Á þessu ári sem ekki er hálfnað hafa að öllum líkindum verið framin þrjú manndráp. Næstum því eitt á mánuði. Sunna Valgerðardóttir skoðar þessi voðaverk og er hlustendum bent á áframhaldandi umfjöllun í Speglinum.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við fjöllum um það sem kallað hefur verið hátækni-sorpbrennsla. Helgi Þór Ingason prófessor í verkfræði við Háskólann í Reykjavík fór fyrir hópi sem vann úttekt á fýsileika þess að reisa slíka brennslu hér á landi, enda stendur til að hætta nær allri urðun sorps. Ævar Örn Jósepsson ræddi um niðurstöður hópsins við Helga Þór. Við heyrum það á eftir.
Og við ætlum að halda okkur í úrgangsmálunum því Gunnar Dofri Ólafsson, samskiptastjóri Sorpu, kemur til okkar og ræðir um aðra af tveimur afurðum Gas- og jarðgerðarstöðvarinnar Gaju í Álfsnesi, moltuna! Á sumardaginn fyrsta býðst öllum sem vilja að koma þangað og fá moltu til að nota í garðinn og kynna sér þann farveg sem matarleifar frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu rata nú í.
Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall - við ætlum að ræða ýmis gömul orð tengd tíðarfari og árstíma. Einkum sumri, sem er handan við hornið.
Tónlist:
MANNAKORN - Óralangt Í Burt.
PAUL SIMON - Still Crazy After All These Years.
GRAFÍK - Komdu Út.
Tónlistarstraumar frá ýmsum löndum, úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Umsjón: Árni Matthíasson
Benedikt Hermann Hermannsson, Benni Hemm Hemm, setti upp útvarpsstöð sem sendir út hljóðskúlptúr byggðan á sólarhringsferðlagi hans um Ísland, með umhverfisupptökum víða að og skældum og beygluðum hljóðupptökum. Afraksturinn gaf hann síðan út á plötunni MUSIC FROM 24 HOURS AT THE END OF THE WORLD, 74 laga plata sem er rúmlega 12 klukkustunda löng.
Sjá einnig https://www.fiveradiostations.com/24hours
Lagalisti - lög af MUSIC FROM 24 HOURS AT THE END OF THE WORLD
Á morgun þá mætum við deginum
Garcon!
Rounds
Playground
Fávitar (Reverse Remix)
Stulli Fugue
Old young boy
Final Statement Music
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Hér víkur sögu eins og stundum áður til Úkraínumannsins Viktors Kravténkos og sjálfsævisögu hans, Ég kaus frelsið. Þegar þarna er komið sögu á 4. áratug 20. aldar er Kravténko óðum að komast í röð hinnar kommúnísku yfirstéttar í Sovétríkjunum, en honum er þó ekki að öllu leyti rótt. Þegar hann kynnist konu að nafni Jelana renna enn á hann nokkrar grímur.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Tómas Ævar Ólafsson.
Á dögunum kom út bókin Parísardepurð; stutt ljóð í lausu máli eftir Charles Baudelaire í fyrsta sinn í íslenskri þýðingu. Þýðandi er Ásdís Rósa Magnúsdóttir Prófessor í frönsku máli og bókmenntum en ritstjóri er Kristín Guðrún Jónsdóttir og er bókin hluti af ritröð þýðinga sem Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur stendur fyrir. Við ræðu við Ásdísi Rósu um bókina í þættinum.
Þorleifur Sigurlásson, tónlistarmaður, hefur verið að skoða tónlistarstefnur í ólíkum heimshornum sem eiga það sameiginlegt að hafa haft gríðarleg menningarleg áhrif, bæði á stöðum sem þær spretta fram sem og annarsstaðar í heiminum. Að þessu sinni ferðast hann til Zambíu ársins 1964.
Við höldum áfram að rifja upp umfjallanir Jóhannesar Ólafssonar um fugla frá árinu 2018. Að þessu sinni sest hann niður með Ragnari Helga Ólafssyni, rithöfundi og skáldi og ræðir við hann, meðal annars, um fugla-athuganir í Flatey.
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Borghildur, Sóley og Margrét tóku viðtal við bræðurna Matta og Hálfdán en saman eru þeir í hljómsveitinni VÆB. Hvað er uppáhalds bragðarefurinn þeirra? Hvernig gengur þeim að vinna saman? Og hver er apinn?
Fangelsi eru stofnanir sem ætlað er að refsa og endurhæfa einstaklinga sem hafa framið glæpi. En hver er raunveruleiki málsins? Jakob Friðrik, pistlahöfundur, veltir fyrir sér málefnum fanga í þætti dagsins.
Halldóra Geirharðsdóttir er ein ástsælasta leikkona landsins. Yrsu langaði mjög mikið að tala við hana um leiklist og fá hjá henni góð ráð.
Kvöldfréttir útvarps
Héraðssaksóknari gaf í morgun út ákæru á hendur konu sem er grunuð um að hafa orðið sex ára syni sínum að bana í janúar. Konan er ákærð fyrir manndráp.
Þung orð féllu á Alþingi í dag í umræðu um frumvarp matvælaráðherra um breytingar á lögum um lagareldi. Ráðherra var sakaður um að afhenda auðlindir þjóðarinnar laxeldisfyrirtækjum og norskum auðmönnum.
Mörg verkefni þarf að leysa þar til atvinnulífið í Grindavík öðlast fyrri styrk. Atvinnurekendur og bæjarstjórn í Grindavík eru nú á fundi þar sem horfur atvinnulífs í bænum eru til umræðu.
Heilbrigðisráðherra ætlar að bregðast við athugasemdum lækna um mikla pappírsvinnu og fella niður að hluta tilvísanir til barnalækna. Læknir líkir starfinu við pöntunarþjónustu.
Flestir vilja Katrínu Jakobsdóttur sem næsta forseta, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Baldur Þórhallsson nýtur næstmests fylgis. Halla Hrund Logadóttir fjórfaldar fylgi sitt milli kannana.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samþykkt að greiða fórnarlömbum fyrrverandi læknis bandaríska fimleikalandsliðsins bætur vegna kynferðisofbeldis sem hann beitti um árabil.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hverjir eiga möguleika á því að verða næsti forseti Íslands? Hver skoðanakönnunin rekur aðra þessa dagana, síðast í dag kom könnun sem sýnir mikið forskot tveggja frambjóðenda. Eiga fleiri möguleika? Hvað með þann þriðja sem er á fleygiferð og þann fjórða - gamalkunnugt ólíkindatól. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórmálafræði spáði í nýjustu skoðanakönnunina með Speglinum.
Síðustu tólf mánuði hafa komið upp átta mál þar sem lögregla hefur rannsakað hvort andlát hafi borið að með saknæmum hætti. Afbrotafræðingur segir að það væri skrýtið ef svona mál hefðu ekki áhrif á fólk og það sé mikilvægt fyrir almenning að málin séu upplýst.
Þáttur fyrir forvitna krakka og aðra fjölskyldumeðlimi. Sigyn Blöndal segir frá uppfinningum og algengum hlutum í umhverfi okkar á upplýsandi hátt.
Í þætti dagsins ætlum við að fræðast um Hubble geimsjónaukann sem hefur kennt okkur mönnunum ýmislegt um geiminn síðast liðin 25 ár.
Við fáum að heyra sögu sjónaukanna sem fer aftur um nokkur hundruð ár og menn eins og Galileo Galilei og Isak Newton koma við sögu.
Hvernig virka sjónaukar, spegilsjónaukar annarsvegar og linsusjónaukar hins vegar.
Hverju breytti sjónaukinn?
Hvað hefur Hubble kennt okkur?
Hvernig er gert við hann ef hann bilar?
Munum við einhverntímann fá svar við spurningunni um það hvort alheimurinn endi einhversstaðar?
Í lok þáttar tölum við svo aðeins um Mars.
Sérfræðingur þáttarins er: Sævar Helgi Bragason
Veðurstofa Íslands.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Við fjöllum um það sem kallað hefur verið hátækni-sorpbrennsla. Helgi Þór Ingason prófessor í verkfræði við Háskólann í Reykjavík fór fyrir hópi sem vann úttekt á fýsileika þess að reisa slíka brennslu hér á landi, enda stendur til að hætta nær allri urðun sorps. Ævar Örn Jósepsson ræddi um niðurstöður hópsins við Helga Þór. Við heyrum það á eftir.
Og við ætlum að halda okkur í úrgangsmálunum því Gunnar Dofri Ólafsson, samskiptastjóri Sorpu, kemur til okkar og ræðir um aðra af tveimur afurðum Gas- og jarðgerðarstöðvarinnar Gaju í Álfsnesi, moltuna! Á sumardaginn fyrsta býðst öllum sem vilja að koma þangað og fá moltu til að nota í garðinn og kynna sér þann farveg sem matarleifar frá heimilum á höfuðborgarsvæðinu rata nú í.
Anna Sigríður Þráinsdóttir málfarsráðunautur kemur svo til okkar í málfarsspjall - við ætlum að ræða ýmis gömul orð tengd tíðarfari og árstíma. Einkum sumri, sem er handan við hornið.
Tónlist:
MANNAKORN - Óralangt Í Burt.
PAUL SIMON - Still Crazy After All These Years.
GRAFÍK - Komdu Út.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Bergur Vilhjálmsson starfar sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og björgunarkafari hjá Slökkviliði höfuðborgasvæðisins. Hann er að fara í gang með styrktarverkefni fyrir Pieta samtökin. Hann ætlar að ganga frá Akranesi, í gegnum Hvalfjörðinn og í Grafarholtið og draga á eftir sér þyngdan sleða eða ýta honum á undan sér. Sleðin er rúm 100 kíló og 100 kíló af lóðum verða á sleðanum og eftir hverja 10 km. mun hann létta af sleðanum 10 kílóum. Þau kíló tákna að hann sé á réttri leið að vinna úr erfiðleikum. Sleðinn táknar erfiðleika sem við erum flest að burðast með í gegnum lífið en það eru til hlutir/verkfæri sem geta gert þessa byrði léttari. Bergur sagði okkur frá aðdraganda göngunnar og svo göngunni sjálfri sem hann hefur á fimmtudaginn kl.14.
Sumardagurinn fyrsti er núna á fimmtudaginn og þá verður að venju opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Gróðurinn blómstrar í garðskálanum og gróðurhúsunum og fyrsta uppskeran af fersku grænmeti er tilbúin. Hægt verður að skoða skoða verkefni nemenda, forseti Íslands veitir garðyrkjuverðlaun ársins, boðið verður upp á kaffi ræktað á Íslandi og fleira. Björgvin Örn Eggertsson, námsbrautarstjóri skógræktar í Garðyrkjuskólanum, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu í dag.
Hvernig getum við komið meira af grænmeti og ávöxtum inn í fæðið okkar? Nýjustu næringarráðleggingar frá Norðurlöndunum mæla með að við borðum um 500-800 grömm af því daglega til að halda góðri heilsu. Draga ætti úr kjötáti og unnum kjötvörum og auka neyslu á fiski, baunum ásamt öðru jurtafæði. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands gefur okkur góð ráð um hvernig við breytum gömlum venjum og innleiðum nýjar. Helga Arnardóttir ræddi við Önnu Sigríði í Heilsuvaktinni í dag.
Tónlist í þættinum
Yakketi yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason)
Útþrá / Kristjana Arngrímsdóttir (Kristjana Arngrímsdóttir og Elísabet Geirmundsdóttir)
Sumarvísa / Þorgerður Ása og Vigdís Hafliðadóttir (Mats Poulson og Iðunn Steinsdóttir)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fjallað er fordómalaust um menningu samtímans í öllum sínum fjölbreytileika, samfélagsmiðla, dægurmenningu, allt sem mótar líf okkar hér og nú og speglar frá degi til dags.
Umsjón: Lóa Björk Björnsdóttir og Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Borghildur, Sóley og Margrét tóku viðtal við bræðurna Matta og Hálfdán en saman eru þeir í hljómsveitinni VÆB. Hvað er uppáhalds bragðarefurinn þeirra? Hvernig gengur þeim að vinna saman? Og hver er apinn?
Fangelsi eru stofnanir sem ætlað er að refsa og endurhæfa einstaklinga sem hafa framið glæpi. En hver er raunveruleiki málsins? Jakob Friðrik, pistlahöfundur, veltir fyrir sér málefnum fanga í þætti dagsins.
Halldóra Geirharðsdóttir er ein ástsælasta leikkona landsins. Yrsu langaði mjög mikið að tala við hana um leiklist og fá hjá henni góð ráð.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.
Bólusetningar hafa verið mikið til umræða undanfarna daga en á morgun hefst alþjóðleg vika bólusetninga. Af því tilefni efna UNICEF á Íslandi, sóttvarnalæknir og Controlant til vitundarvakningar um bólusetningar barna á Íslandi með sérstökum fræðsluviðburði. Við fengum Birnu Þórarinsdóttur framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi til okkar og fengum að vita meira.
Nýjar ógnir og versnandi horfur: Staða Íslands í varnar – og öryggismálum er yfirskriftin á erindi sem Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur heldur ásamt Silju Báru Ómarsdóttur á árlegri ráðstefnu alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Að erindinu loknu verða pallborðsumræður um málið. Hverjar eru þessar nýju ógnir og versnandi horfur? Við heyrðum í Erlingi.
Hin árlega Hammond hátíð hefst á Djúpavogi á fimmtudag og að venju er boðið upp á fjölbreytta dagskrá og tónlist úr ýmsum áttum. Ólafur Björnsson veit allt um málið og við slógum á þráðinn austur og heyrðum aðeins af fjörinu fram undan og um leið hvernig Djúpivogur kemur undan vetri.
Eliza Reid forsetafrú leit við hjá okkur og ræddi m.a. glæpasagnaskrif sín og ritlistarbúðirnar Iceland Writers Retreat sem verða haldnar í tíunda sinn á Íslandi í vikunni. Víðfrægir höfundar frá mörgum löndum leiðbeina þar þátttakendum á málstofum um ritlist og bókaskrif.
Tónlistarmiðstöð verður formlega opnuð í nýjum höfuðstöðvum við Austurstræti 5 í dag. Hún er stofnuð með það að markmiði að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og -iðnaðar og leysir hún af hólmi Útón, Tónverkamiðstöð og Inntón. María Rut Reynisdóttir framkvæmdastjóri hinnar nýju tónlistarmiðstöðvar kom til okkar og sagði okkur af tilurð og tilgangi hennar.
Guðmundur Jóhannsson tæknispekúlant ræddi sæstrengi og viðhald þeirra.
Tónlist:
Hjaltalín - Þú komst við hjartað í mér.
Norah Jones - Running.
Allra meina bót - Mamma gefðu mér grásleppu.
Kristín Sesselja - Exit plan.
Ásdís - Angel eyes.
Þursaflokkurinn - Pínulítill kall.
Kaleo - Lonely Cowboy.
Santana og Rob Thomas - Smooth.
Ásgeir Trausti - Sumargestur.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Það mættu góðir gestir í útvarpsþáttinn Hjartagosa í morgun, Einar Bárðarson yfir plokkari plokkaði aðeins í Gosanna og sagði frá stóra plokkdeginum næstkomandi sunnudag. Þá hoppar íslenska þjóðin út fyrir garðinn sinn með ruslapoka og reynir að hreinsa upp allt rusl í kringum sig.
Við heyrðum í Ágústi Ólafssyni beint frá Akureyri en japanskur ofurhugi ætlar að reyna slá heimsmet í skíðastökki í Hlíðarfjalli.
Þá komu þeir Franz Gunnarsson og Bergsveinn Arilíusson í heimsókn og fræddu okkur um tónleikasýninguna The Commitments, að sjálfsögðu töldu þeir í eitt lag úr sýningunni og fengu þeir frábæra aðstoð Gosa í fluttningnum.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-23
MANNAKORN - Gamli Góði Vinur.
OFFBÍT & STEINGRÍMUR TEAGUE - Allt á hvolf.
ARCADE FIRE - Everything Now.
BILLY IDOL - Dancing With Myself.
PEGGY GOU - (It Goes Like) Nanana.
Lights On The Highway - A Little Bit of Everything.
Womack, Bobby - Across 110th street.
AMABADAMA - AI AI AI.
Emmsjé Gauti - Taka mig í gegn.
CARPENTERS - (They long to be) close to you.
Floni - Engill.
EGÓ - Móðir.
SUZANNE VEGA - Tom's Diner (Dna Mix).
KÖTT GRÁ PJE og NOLEM - Aheybaró.
STONE ROSES - Love spreads (edit).
Timberlake, Justin - Drown.
PRINS PÓLÓ - Málning þornar.
HIPSUMHAPS - Á hnjánum.
SELF ESTEEM - Fucking Wizardry.
MANIC STREET PREACHERS - You Stole The Sun From My Heart.
STRAX - Havana.
THE HOUSEMARTINS - Happy Hour.
Boone, Benson - Beautiful Things.
Vampire Weekend - Prep-School Gangsters.
PRINCE - Cream.
Una Torfadóttir - Yfir strikið.
SISTER SLEDGE - Thinking Of You.
Superserious - Let's consume.
PIXIES - Allison.
Ylja - Á rauðum sandi.
GDRN - Þú sagðir.
TALK TALK - Tomorrow Started
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að reyna að drepa föður og unga dóttur hans í Hafnarfirði á aðfangadagskvöld. Maðurinn réðst við annan mann inn á heimili feðginanna og skaut sex skotum. Árásin var þaulskipulögð.
Karlmaður á sjötugsaldri var úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald á Akureyri í gærkvöld, grunaður um að hafa orðið konu sinni að bana. Parið er íslenskt og flutti til Akureyrar skömmu fyrir jól.
Lögreglan á Suðurlandi vill lítið gefa upp um rannsókn á mannsláti á Kiðjabergi á laugardag. Tveir eru í gæsluvarðhaldi og öðrum tveimur hefur verið sleppt úr varðhaldi.
Heilbrigðisráðherra ræðir við heimilislækna um hvernig hægt sé að draga úr skriffinnsku svo meiri tími gefist til að sinna sjúklingum. Formaður félags íslenskra heimilislækna vonar að fundurinn skili árangri.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir veitingamanninum Quang Lé, kærustu hans og bróður um fjórar vikur, þau eru þó laus úr einangrun.
Kvikuhólfið undir Svartsengi er að fyllast en lítið er vitað um hvert kvika leitar ef það kemur til nýs kvikuhlaups. Gosið gæti á nýjum stað eða kvika gæti einnig leitað upp á yfirborðið í gegnum núverandi gíg.
Viðskipti með líftæknifyrirtækið Oculis hófust á aðalmarkaði kauphallarinnar í morgun.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Í tilkynningu frá Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er fólk sem hyggur á ferðalög hvatt til að fara yfir bólusetningar sínar og barnanna sinna hvort sem farið er á framandi slóðir eða stefnt í stutta ferð til nágrannalandanna. En hvernig nálgast fólk þessar upplýsingar og hvernig veit fólk hvaða áfangastaðir það eru það sem mikilvægast er að skoða þessi mál ? Ingibjörg Rós Kjartansdóttir fagstjóri hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins verður á línunni
Hjá Sorpu verður fagnað á sumardaginn fyrsta en þá lítur fyrsta uppskeran af næringarríkri moltu ljós og fólki boðið að taka með sér moltu þeim að kostnaðarlausu. Þetta verður á opnu húsi í GAJU. Gunnar Dofri Ólafsson samskitpastjóri Sorpu kemur til okkar á eftir og segir okkur frá deginum og því hvernig gengið hefur að búa til mikilvæga næringu úr því sem til hefur fallið úr eldhúsum höfuðborgarbúa.
Flestir hafa heyrt talað um smálán, sem ófáir hafa lent í vandræðum með. En skyndilán eru stærri flokkur – og fleiri eru að lenda í vanda vegna þeirra. Þetta er umfjöllunarefni í síðasta Kveiksþætti vetrarins sem er á dagsrká í Kvöld - Kristín Sigurðardóttir og Ingólfur Bjarni koma til okkar úr Kveiksteyminu og segja frá.
Í dag er alþjóðlegur dagur bókarinnar og merkilegt nokk er Halldór Laxness fæddur á þessum degi árið 1902 og enn meiri sagnfræði bæði Shakespeare og Cervantes létust á þessum degi. Og það sem meira er tilnefningar til Gullrýtingsins hafa verið kynntar en það eru virtustu glæpasagnaverðlaun Bretlands sem the Crime Writers‘ Association stendur að. Ein þeirra tilnefndu er Yrsa Sigurðardóttir en hún er tilnefnd fyrir Bráðina en sú bók hlaut Blóðdropann sem besta íslenska glæpasagan árið 2020. Þetta er sjálfstæð glæpasaga sem gerist austur í Lónsöræfum og á Stokksnesi og segir frá fólki sem fer í ferð inn í óbyggðir um miðjan vetur og eins og gefur að skilja fer það ekki vel
Yrsa kemur til okkar í þáttinn í dag.
Og áfram með bækur á degi bókarinnar en rithöfundarnir Gunnar Helgason og Bergrún Íris Sævarsdóttir hafa skrifað 18 smásögu-bók, LÆK, úr hugmyndum grunnskólabarna í Hafnarfirði. Stefnt er að því að halda stærsta útgáfuhóf landsins á Thorsplani í Hafnarfirði á síðasta vetrardegi sem sagt á morgun. Þau Gunnar og Bergrún koma til okkar á eftir og segja frá
Við höfum rætt hjólreiðar í Síðdegisútvarpinu síðustu vikur og nú er sumardagurinn Fyrsti framundan og því æltum við að halda áfram að ræða um hjólreiðar. Í dag ræðum við nokkur undarleg atriði í umferðarlögunum eins og t.d. það að reiðhjól eru silgreind sem ökutæki þar á bæ. Birgir Birgisson formaður reiðhjólabænda kemur hingaði í lok þáttar.
Nú stendur yfir stærsta netvarnaræfing heims Skjaldborg eða Locked Shields en æfingin er skipulögð af Netvarnarsetri Atlantshafsbandalagsins í Tallin. Um tuttugu manna hópur frá Íslandi tekur þátt og við ætlum að heyra í Brynju Huld Óskarsdóttur sem er sérfræðingur á varnarmálaskrifstofu Utanríkisráðuneytisins sem stödd er ytra á þessari æfingu.
Kvöldfréttir útvarps
Héraðssaksóknari gaf í morgun út ákæru á hendur konu sem er grunuð um að hafa orðið sex ára syni sínum að bana í janúar. Konan er ákærð fyrir manndráp.
Þung orð féllu á Alþingi í dag í umræðu um frumvarp matvælaráðherra um breytingar á lögum um lagareldi. Ráðherra var sakaður um að afhenda auðlindir þjóðarinnar laxeldisfyrirtækjum og norskum auðmönnum.
Mörg verkefni þarf að leysa þar til atvinnulífið í Grindavík öðlast fyrri styrk. Atvinnurekendur og bæjarstjórn í Grindavík eru nú á fundi þar sem horfur atvinnulífs í bænum eru til umræðu.
Heilbrigðisráðherra ætlar að bregðast við athugasemdum lækna um mikla pappírsvinnu og fella niður að hluta tilvísanir til barnalækna. Læknir líkir starfinu við pöntunarþjónustu.
Flestir vilja Katrínu Jakobsdóttur sem næsta forseta, samkvæmt nýrri könnun Gallup. Baldur Þórhallsson nýtur næstmests fylgis. Halla Hrund Logadóttir fjórfaldar fylgi sitt milli kannana.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samþykkt að greiða fórnarlömbum fyrrverandi læknis bandaríska fimleikalandsliðsins bætur vegna kynferðisofbeldis sem hann beitti um árabil.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hverjir eiga möguleika á því að verða næsti forseti Íslands? Hver skoðanakönnunin rekur aðra þessa dagana, síðast í dag kom könnun sem sýnir mikið forskot tveggja frambjóðenda. Eiga fleiri möguleika? Hvað með þann þriðja sem er á fleygiferð og þann fjórða - gamalkunnugt ólíkindatól. Eva H. Önnudóttir prófessor í stjórmálafræði spáði í nýjustu skoðanakönnunina með Speglinum.
Síðustu tólf mánuði hafa komið upp átta mál þar sem lögregla hefur rannsakað hvort andlát hafi borið að með saknæmum hætti. Afbrotafræðingur segir að það væri skrýtið ef svona mál hefðu ekki áhrif á fólk og það sé mikilvægt fyrir almenning að málin séu upplýst.
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Við byrjum Kvöldvaktina á nýju lagi frá Svavari Knúti og höldum síðan áfram og heyrum í Suki Waterhouse, Maya Hawke, Justin TImberlake, Floni, Dua Lipa, Vampire Weekend, Fontaines D.C. Travis, Kristín Sesselju og mörgum fleirum.
Lagalistinn
Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og í haust er 21 ár liðið síðan hann fór fyrst í loftið.