Þóra Arnórsdóttir fékk stöðu sakbornings

20 Feb Þóra Arnórsdóttir fékk stöðu sakbornings

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri sendu frá sér tilkynningu 20. febrúar. Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks, auk annarra blaðamanna, fengu stöðu sakbornings við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra í tengslum við umfjöllun um Samherja og stjórnendur og starfsmenn fyrirtækisins. Á þeim tímapunkti, þegar mörg atriði í tengslum við rannsókn málsins voru óljós og til nánari skoðunar hjá héraðsdómi, þótti þeim engu að síður mikilvægt að horfa til eftirfarandi grundvallarsjónarmiða:

Forsenda fyrir því að fjölmiðlar geti rækt hlutverk sitt er að þeir geti aflað upplýsinga um mál sem hafa þýðingu fyrir almenning og miðlað þeim án afskipta annarra. Einn þáttur í þessu sjálfstæði fjölmiðla er að þeir geti tekið við slíkum upplýsingum í trúnaði án þess að þurfa að gera grein fyrir hvaðan eða frá hverjum þær stafi, líkt og staðfest hefur verið í dómum Hæstaréttar og dómum Mannréttindadómstóls Evrópu. Þá er ljóst að hafi gögn að geyma efni, sem eiga erindi til almennings og varða mál, sem styr hefur staðið um í þjóðfélaginu, er fjölmiðlum rétt að fjalla um slíkt, jafnvel þótt um sé t.d. að ræða einkagögn sem fjölmiðlum eru fengin. Ríkisútvarpið og starfsmenn þess hafa þessi sjónarmið að leiðarljósi í sínum störfum, enda grundvallarþáttur í lýðræðisþjóðfélagi, sem virða verður í hvívetna.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.