Uppboð á einstökum gítar

Þráinn og Snæbjörn Skálmaldarliðar ásamt Sigríði frá Blátt áfram
Hljómsveitin Skálmöld stendur þessa dagana fyrir uppboði á einstökum Fender gítar en allur ágóði af sölu hans mun renna til samtakanna Blátt áfram.
Skálmöld notaðist við gítarinn við upptökur á nýjustu breiðskífu sinni, Börn Loka, ásamt því að spila á hann á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu í sumar. Gítarinn er sérstaklega skreyttur af listakonunni Ýri Baldursdóttur.
Þessi glæsilegi Fender mun seljast hæstbjóðanda en hægt er að bjóða í gítarinn með því að hringja í Poppland eða Virka morgna í síma 5687-123, senda póst á 123@ruv.is eða senda skilaboð á Facebook síðum Popplands og Virkra morgna. Allur ágóði af sölu gítarsins mun renna til Blátt áfram, sem eru samtök gegn kynferðisofbeldi á börnum á Íslandi.
Uppboðinu lýkur á föstudaginn en gítarinn verður afhentur hæstbjóðanda á rokktónleikunum Rokkjötnum sem fram fara í Kaplakrika á laugardaginn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












