Það er allt að verða vitlaust!

Nú er Virkum morgnum að ljúka - en örvæntið ekki, því Popplandið er rétt handað við hornið og heldur söfnunarmaraþonið áfram þar!
Á allra vörum söfunin hefur gengið vonum framar fyrstu klukkutímana og símarnir varla stoppað en Andri og Gunna hafa ekki haft undan við að spila öll þau lög sem keypt hafa verið inn. Hæsta upphæðin sem greidd hefur verið fyrir lag hingað til er 500.000kr, sem áhöfnin á Aðalsteini Jónssyni frá Eskifirði greiddi fyrir lagið Grásleppu Gvendur. Áhöfnin skoraði jafnframt á önnur skip í uppsjávarflotanum að leggja málefninu lið.
Hinu ýmsu fyrirtæki, starfsmannahópar og einstaklingar hafa einnig keypt lög og hafa hundraðþúsundkallarnir, fimmtíuþúsundkallarnir og allskonar þúsundkallar flogið inn. Ljóst er að góð upphæð hefur nú þegar safnast, en við erum hvergi nærri hætt! Popplandið tekur við keflinu eftir hádegisfréttir og Síðdegisútvarpið frá kl. 16-18 en átakinu líkur svo í kvöld í beinni útsendingu í sjónvarpi allra landsmanna, RUV.
Nokkrir listamenn tóku lagið í Virkum morgnum í morgun, eins og The Vintage Caravan, Jónas Sig, Magni Ásgeirs og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, sem mætti með heljarinnar mannskap inn í stúdíó og tók frumsamið lag, Harðir naglar - hraustir menn, en myndband af því má sjá hér fyrir ofan.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is












