Maraþonið fer vel af stað

Útvarpsmaraþon Á allra vörum og Rásar 2 stendur nú sem hæst og hefur söfnunin farið gríðarlega vel af stað.
Símarnir hafa varla stoppað og er nú þegar búið að kaupa inn fjöldann allan af lögum. Sem dæmi keypti Flugfélag Íslands lag með starfsmannasveit sinni, Föxunum, fyrir 100 þúsund krónur. Eimskipafélagið keypti einnig inn lag fyrir 100 þúsund krónur en það var Sjómannavalsinn með Hjaltalín. Starfsmannafélag Vigra keypti lag með Led Zeppelin fyrir 50 þúsund krónur og fangarnir á Skólavörðustíg söfnuðu saman fyrir laginu Stúlkuna með Todmobile, svo eitthvað sé nefnt.
Byrjunin lofar því mjög góðu en strákarnir í hljómsveitinni The Vintage Caravan mættu einnig til okkar og tóku lagið og hægt er að sjá myndband af því hér fyrir ofan.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














