Keyrði síðasta kjörbúðarbílinn



  • Prenta
  • Senda frétt

Leikarinn, þýðandinn og röddin Hjalti Rögnvaldsson var Mánudagsdrottning í Virkum morgnum þennan mánudaginn og hafði hann frá mörgu að segja.

Hjalti er fæddur og uppalinn í Hveragerði en hann fæddist í sumarbústað þar um hávetur árið 1949. Hann varð ungur heltekinn af leikhúsi og laumaðist oft til Reykjavíkur á sýningar. Í gegnum tíðina hefur Hjalti tekið sér ýmislegt fyrir hendur, bæði tengt og ótengt leikhúsinu, og unnið m.a. sem kjörbúðarbílstjóri.

Mánudagsdrottningarviðtalið með Hjalta Rögnvaldssyni má heyra í heild sinni hér fyrir ofan.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku